Morgunblaðið - 09.04.1987, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
------------------------------1 A
13
Ragnheiður Elfa Amardóttir og Sigurður Sigurjónsson
i hlutverkum Fay og Guy
sýningin ansi langt niður: það
stendur vonandi til bóta. Kannski
þrengslin á sviðinu hafí valdið því
að sýningin rann ekki alltaf nógu
lipurlega. Samt eru kostimir fleiri.
Fyrst ber að telja þennan ágaeta
texta, og Karl Ágúst Úlfsson hefur
snarað á hið bezta mál, þjált og
eðlilegt. Þá sýna leikarar í aðal-
hlutverkum, vönduð vinnubrögð.
Sigurður Siguijónsson þræðir af
faglegri kúnst milliveg hláturs.og
gráturs á þann hátt sem fáum er
lagið. Kjartan Ragnarsson, Dafyð
leikstjóri, vinnur eftirminnilegan
sigur, að mínum dómi. Hér verður
hvergi vart kækja og stæla og yfír-
borðsleiks, sem oft hefur staðið
Kjartani fyrir þrifum. Hann leikur
á ailar nótur og nær fram minnis-
stæðum áhrifum, og trúverðugri
manniýsingu. Margrét Ákadóttir
mun nú koma fram í fyrsta skipti
hjá LR, en hún hefur leikið við
vaxandi gengi hjá Alþýðuleikhúsi
og víðar síðustu ár. Eftir nokkuð
hik í byijun, fannst mér Margrét
ná tökum á hlutverki sínu og dró
upp í senn hina átakanlegu og skop-
legu hliðar Hönnu. Þessi þijú em
í áberandi stærstu hlutverkunum,
en margir góðir ieikarar eru í minni
hlutverkum. Margrét Ólafsdóttir og
Karl Guðmundsson eru hin elsku-
legu Washbrook-hjón og gerði Karl
alveg sérlega, Ted sannfærandi
skil. Jakob Þór Einarsson og Ragn-
heiður Elfa Amardóttir eru kynóðu
hjónin og léku á ósköp „ hefð-
bundinn“ hátt ef ég mætti leyfa
mér að orða það svo. Guðrún As-
mundsdóttir var Rebekka Huntley-
Pike. Ég skal játa, að mér fannst
Rebekka á engan hátt eftirtektar-
verð þegar ég las leikritið. En
Guðrún hefur augljóslega nostrað
við litla rullu af listfengi og leikni
að hún átti nánast sviðið, þá sjaldan
hún birtist. Vinnubrögð sem er
ástæða til að lofa. Hanna María
Karlsdóttir gerði Bridget góð skil,
en var ekki allat sjálfri sér sam-
kvæm. Steindór Hjörleifsson var í
ágætu gervi og átti nokkrar vel
unnar senur. Þröstur Leó Gunnars-
son var full ýktur sem Crispin, það
verður að skrifast hjá leikstjóra.
Sigrún Edda Bjömsdóttir átti góða
spretti en þarf, sýnist mér agaðri
leikstjóm. Píanóleikarinn og raf-
virkinn stóðu fyrir sínu. Það segir
sig nokkum veginn sjálft, að leik-
stjóm Þorsteins hefur tekizt að
mörgu leyti. Eins og áður segir er
sýningin full sveiflótt. Staðsetning-
ar em góðar, en ekki hnökralausar.
Búningar, ekki sízt í Betlaraóper-
unni vom afbragð og leiktjöldin
einkar skynsamlega hugsuð.
Þetta er sýning líkleg tii vinsælda
og hressandi með hækkandi sól.
Og að verðleikum um flest.
Þverholt
— Mosfellssveit
Á jarðhæð 240 fm verslunarhúsnæði sem afhendist í
september nk. Á miðhæð eru tvær 120 fm 3ja-4ra
herbergja íbúðir. Verð 3150 þúsund. Á efstu hæð er
112 fm 3ja herbergja íbúð. Verð 2,9 millj.
Húsnæðið skilast tilbúið undir tréverk. Teikningar á
skrifstofu.
HRAUNHAMARhf
A A FASTEIGNA-OG
m m SKIPASALA
aú Reykjavikurvegi 72,
I Hafnarftrði. S-54511
Sími 54511
SölumaAur:
Magnús Emilsson, hs. 53274.
Lögmenn:
Guðmundur Kristjánsson,
Hlööver Kjartansson.
43307
641400
Suðurhólar — 4ra
Falleg 110 fm íb. á 3. hæfi.
Laus í júní. Ákv. sala. V. 3,5 m.
Fannafold — tvíb./parh.
Önnur íb. ca 130 fm hin ca 80
fm ásamt bílsk. Afh. í sumar.
Hrauntunga — parh.
Fallegt 163 fm ásamt 24
fm bílsk. Afh. tilb. u. trév.
og frág. að utan.
Túngata — Álftanes
Fallegt 140 fm hús á hornlóð
ásamt 40 fm bflsk.
Hjallabrekka — einb.
220 fm á tveimur hæðum. Efri
4ra herb. íb. og neðri hæðin 3ja
herb. íb. Bílsksökklar.
KjörByli
FASTEIGNASALA
Nýbýlavegi 14, 3. hæð
Rafn H. Skúlason lögfr.
af
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
iHOTngttttfybifrifr
EINSTAKUR LISTVIÐBURÐUR
ÓPER UHLJÓMLEIKAR
MEÐ RENATA SCOTTO
OG SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Ein frœgasta sópransöngkona heims,Renata Scotto,
syngur á óperuhljómleikum með Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjórn
ítalska hljómsveitarstjórans Maurizio Barbacini
í Háskólabíói 11. apríl nœstkomandi kl. 5.
Þarflytur hún margar fallegustu óperuaríur sem skrifaðar hafa verið.
Notið einstakt tœkifœri til að hlusta á þessa miklu listakonu.
ítalski hljómsveitarstjór-
inn Maurizio Barbacini.
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA
NÚ ÞEGAR
ÍHÁSKÓLABÍÓI
OCTAVO/SlA