Morgunblaðið - 09.04.1987, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRIL 1987
22
Heilbrigðisdagur Alþj óðaheilbrigðismálastof nunarinnar:
Bólusetning handa
hveiju bami
7. apríl er árlegur heilbrigðis-
dagur Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar. Að þessu sinni er
dagurinn helgaður bólusetningum
og á að minna á mikilvægi þess að
gefa hveiju mannsbarni kost á vörn
gegn sjúkdómum sem unnt er að
koma í veg fyrir.
Bólusetning er eitt skýrasta
dæmið um mátt virks forvamar-
starfs í heilbrigðismálum. Bóluefni
eru annað hvort unnin úr dauðum
sýklum eða em veiklaðir lifandi
sýklar. Gjöf bóluefnis, t.d. mislinga-
bóluefnis, veldur framleiðslu
mótefna sem vernda síðan einstakl-
inginn gegn því að sýkjast af
mislingum síðar komist hann í
snertingu við sjúkdóminn. Bóluefni
em því vemdandi og því ólík lyfjum
sem notuð em til að lækna sjúk-
dóma sem þegar hafa búið um sig.
Virk bóluefni em nú til gegn ýmsum
smitsjúkdómum. Má þar helst telja
mænuveiki, barnaveiki, stífkrampa,
kíghósta, mislinga, rauða hunda,
hettusótt, bólusótt og fleira. Lítill
vafi leikur á því að til þess að út-
rýma tilteknum sjúkdómi með öllu
em bólusetning og nákvæm skrán-
ing á útbreiðslu sjúkdómsins
veigamestu vopnin. Á þann hátt
tókst að útrýma bólusótt úr heimin-
um á einungis 10 ámm. Það dæmi
bendir til þess að eina raunhæfa
leiðin til útrýmingar alnæmis úr
heiminum verði einnig bólusetning.
Virks bóluefnis gegn þeim sjúkdómi
þarf þó að bíða í nokkur ár enn.
Evrópudeild Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar hefur sett sér
það markmið að útrýma mislingum,
mænusótt, stífkrampa í nýbumm,
barnaveiki og meðfæddum rauðum
hundum úr Evrópu fyrir 1996. Um
80% barna í Evrópu em nú bólu-
sett gegn þessum sjúkdómum. Til
þess að ofangreint markmið náist
þarf þessi hlutfallstala að aukast
vemlega eða í 95% árið 1990.
Ástand þessara mála er nú einna
best á Norðurlöndum og í löndum
Austur-Evrópu og á íslandi getum
við vel unað okkar hlut hvað snert-
ir ofangreinda sjúkdóma með
96—99% bólusetningarhlutfall. Hér
á landi snúast umræður í bólusetn-
ingarmálum helst um bólusetningu
gegn öðmm sjúkdómum en þeim
sem hér um ræðir. Ber þar hettu-
sótt hæst. Sá sjúkdómur gengur í
faröldrum hér og veldur miklum
óþægindum (munnvatnskirtils-
bólgu, briskirtilsbólgu, heilahimnu-
bólgu, eistnabólgu) þó dauðsföll séu
nær óþekkt. Til er virkt bóluefni
gegn hettusótt og notkun þess í
öðmm löndum hefur fækkað tilfell-
um allt að 1.000-falt miðað við tíðni
sjúkdómsins hér.
Vandamál okkar í þessum efnum
em þó hjóm eitt miðað við þann
vanda sem þróunarlöndin eiga við
að stríða. Árið 1974 hóf Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin bólusetn-
ingarherferð um heiminn gegn
berklum, mænusótt, kíghósta,
stífkrampa, barnaveiki og misling-
um. Á þeim tíma fengu innan við
5% barna í þróunarlöndunum þessar
bólusetningar. Vegna þessa átaks
er hins vegar nú nær helmingur
barna í þessum löndum bólusettur.
Þrátt fyrir að enn sé langt í land
að ná æskilegu bólusetningarhlut-
falli, t.d. í líkingu við það sem
hérlendis hefur náðst, er talið að
um milljón dauðsfalla barna sé forð-
að árlega nú þegar. Enn deyja þó
3,5 milljónir barna á hverju ári í
þróunarlöndunum úr sjúkdómum
sem unnt væri að koma í veg fyrir.
Þessi mál snerta okkur ekki ein-
ungis óbeint, heldur er ljóst að
endanleg útiýming þessara sjúk-
dóma hérlendis er háð því hvernig
til tekst annars staðar. ísland er
ekki lengur einangraður útkjálki og
hingað berast flestar sóttir fyrr eða
síðar. Utrýming umræddra sjúk-
dóma í þróunarlöndum er því
forsenda þess að þeim verði útrýmt
hér og öfugt. Samstillt átak er því
nauðsynlegt og þátttaka okkar mik-
ilvæg í því efni.
Megin vandamál margra þróun-
arríkja er þó enn hungur og helsta
verkefni þeirra sem vilja leggja
hönd á plóginn er að efla leiðir til
fæðuöflunar, stemma stigu við
fólksfjölgun, bæta menntun svo
eitthvað sé nefnt. Eigi að síður
nægir það eitt ekki til að hemja
útbreiðslu margra þeirra sjúkdóma
sem þessi lönd hijá. Þess vegna er
ástæða fyrir yfirvöld og allan al-
menning í tilefni af Alþjóðaheil-
brigðisdegi 1987 að íhuga hver
okkar hlutur skuli vera til að veita
þessum málum brautargengi.
Landlæknir
Osköp venjuleg maísstöng, en...
... veislubiti með smjöri!
Fáðu þér smjör og finndu muninn!