Morgunblaðið - 09.04.1987, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
25
IHtENCEHi
8UBAN MJCCJl*TONY CURTIS
Dagskrá að eigin vali
MYNDBANDALEIGUR LANDSINS BJOÐA UPPA ÞUSUNDIR GOÐRA KVIKMYNDA MEÐ ISLENSKUM TEXTA.
ÞÚ GETUR VALIÐ ÚR ÚRVALI NÝRRA MYNDA Á HVERJUM DEGI OG HORFT Á ÞÆR ÞEGAR ÞÉR HENTAR
MYNDBANDIÐ ER LYKILLINN AÐ EIGIN DAGSKRÁRSTJÓRN.
OUT OF BOUNDS
Eftirlýstur af lögreglunni og hundeltur
af eiturlyfjasölum á Daryl litla mögu-
leika í stórborginni. Og allt vegna
þess að hann tók ranga tösku á flug-
vellinum! Samfelld spenna. Skífan.
EXTREMITIES
Farrah Fawcett í hlutverki fórnar-
lambs nauðgara sýnir meistaraleik í
þessari sterku og vönduðu mynd,
sem lætur engann ósnortinn. Stór-
kostleg mynd. Videoval og
Skallavideo.
UNFAITHFULLY YOURS
Dudley Moore er óendanlega
skemmtilegur, Nastassja Kinski ótrú-
leg — hvernig sem á er litið. Saman
eru þau ógleymanleg i þessari vönd-
uðu gamanmynd um ást og afbrýði-
semi. Steinar hf.
RAN
Fjölskylduharmleikur leiðir til striðs,
hefnda, brjálæðis og valdabaráttu i
Japan miðaldanna. Ástríöur og ofbeldi
eins og Kurosawa einn getur fram-
leitt. Mögnuð verölaunamynd. Stein-
ar hf.
WANTED DEAD OR ALIVE
Pottþétt spennumynd úr heimi
hryðjuverkamanna. Rutger Hauer í
hlutverki hausaveiðarans sér um að
halda hörkunni uppi í heimi þar sem
engin grið eru gefin. Videoval og
Skallavideo.
WHEN DREAMS COME TRUE
Susan fer að dreyma rómantíska og
kynæsandi drauma á sama tíma og
hún stendur í erfiðleikum viö sambýl-
ismann sinn. En skyndilega fara
draumar hennar að veröa að veru-
leika. Myndform.
TAKE IT EASY
Ungt fóik í fimleikum, ástir þess og
barátta eru í brennidepli i þessari
mynd. Tónlist í sérflokki frá m.a. Mr.,
Mister, Andy Taylor, Inxs og Stevie
Nicks. JB Myndbönd.
INSIDE STORY
Roy Marsden (Dalgliesh i Svarta turn-
inum) leikur ósvífinn og tillitslausan
kaupsýslumann í valdabaráttu í blaöa-
heiminum í þessari tveggja spólu
mynd. Arnar-Vldeo.
WATCH OUT WE'RE MAD
Aðdáendur þeirra Terence Hill og Bud
Spencer mega ekki missa af þessari
mynd. Gamanleikur og slagsmál, sem
þeir félagar þekkja manna best. Elt-
ingaleikur í sérflokki. Skífan.
OXFORD BLUES
Unglingastjarnan Rob Lowe fer á
kostum i hlutverki bandaríska glaum-
gosans, sem svindlar sór inn í
háskólann í Oxford til aö nálgast sína
heittelskuðu. JB Myndbönd.
A BREED APART
Klassaleikararnir Rutger Hauer og
Kathleen Turner fara með aðalhlut-
verkin i þessari mynd, sem fjallar um
hörkutól á höttum eftir verðmætum
arnareggjum. JB Myndbönd.
THE MOUSE THAT ROARED
Peter Sellers, gamanleikarinn óvið-
jafnanlegi, leikur flest aöalhlutverkin
í þessari síglidu gamanmynd um litla
hertogadæmið sem segir Banda-
ríkjunum stríð á hendur. Skífan.
MOUNTAINTOP MOTEL
MASSACRE
Fjarri alfaraslóðum er vegvilltum
ferðalöngum boðið upp á gistingu á
Mountaintop hótelinu.
Hrollvekja fyrir taugasterka. FM
Video.
THROUGH NAKED EYES
Hann njósnar um nágrannana, hún
njósnar um nágrannana og hann. Og
einhver njósnar um þau bæði. En þá
byrja morðin. Spennandi sakamála-
saga. FM Video.
LOST!
Þrjár manneskjur týndar á úthafi reka
stjórnlaust um í litlum báti. Engin von
um björgun, matarskortur og þjáning-
ar leiða til brjálæðis og svika. Sönn
saga. Myndform.
EVMAS'UEL LEWIS
VAMP
Kvöldiö i Myrkurklúbbnum endaði
öðruvisi en ætlað var. Þeir þurftu að
flýja blóðsugur, slást við tryllta
hvitingja og óta kakkalakka. Sannar-
lega DREPfyndin mynd. Videóval og
Skallavídeó.
LOST IN LONDON
Daviö heldur að hvorki faðir hans né
móöir vilji neitt með hann hafa. Hann
ákveður að strjúka og gengur til liös
við vafasama unglinga. En öll él stytt-
ir upp um siöir. J.S. Vídeó.
THE MASTER NINJA
Hundeltur af fyrrum félögum sinum
leggur Ninjameistarinn upp i leit að
dóttur sinni. Á leið sinni hittir hann
Max Keller, ungan Bandaríkjamann.
Saman verða þeir ósigrandi. FM
Vídeó.
ENEMY MINE
Þeir voru tveir, jarðarbúinn og geim-
veran. Óvinir, þvi þeim hafði verið
kennt það, vinir því þeir vildu lifa.
Ómissandi mynd fyrir alla aðdáendur
vísindaskáldsagna. Steinar hf.
MAFIA PRINSESSAN
Hún var litla prinsessan hans pabba
síns þar til hún komast að því að
hann verslaöi með ofbeldi og morð.
En enginn losnar frá mafíuforingja,
ekki einu sinni mafiuprinsessa. J.S.
Vfdeó.
Þessar myndir eru
vænfanlegar í sjónvarpi
Samtök
íslenskra
myndbandaleiga