Morgunblaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
Verð á pillaðri rækju lækkar enn
Framleiðendur uggandi um sinn hag
AÐ UNDANFÖRNU hefur verð
á pillaðri rækju fallið verulega
á helztu mörkuðum okkar Is-
lendinga eða um 30%. Þetta
hefur valdið vaxandi hlutfalli
hráefniskostnaðar af andvirði
afurðanna og auk þess greiðir
rækjuvinnslan nokkurt fé í
verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðar-
ins. „Að undanförnu hefur
sjóðurinn innheimt 14% af sölu-
verði rækjunnar og þannig gert
framleiðendum nánast ókleift
að reka fyrirtæki sín,“ sagði
Guðmundur Stefán Maríasson,
framkvæmdastjóri Félags
rækju- og hörpudiskframleið-
enda, í samtali við blm.
Morgunblaðsins.
Guðmundur sagði ennfremur,
að menn væru mjög óhressir með
þessa þróun, sérstaklega þegar á
það væri litið að á síðasta ári
hefðu um 10% af framleiðsluverð-
mæti pillaðrar rækju verið tekin
í verðjöfnunarsjóð. Eftir tvö mög-
ur ár hefði það verið kærkomið
að fá að halda einhverju af því fé
í rekstrinum og bæta með því fjár-
hagsstöðuna.
Félagið hélt aðalfund í síðustu
viku og sagði Guðmundur að
hljóðið hefði verið mjög dauft í
mönnum. Miklar umræður hefðu
verið á meðal framleiðenda um
verðjöfnunarsjóðinn og hefðu þeir
undrazt að ekki skyldi vera búið
að leggja hann niður eins og öll
samtök framleiðenda hefðu farið
fram á. Þá væru framleiðendur
undrandi á því að sjávarútvegs-
ráðuneytið skyldi enn vera að
leyfa stofnsetningu fleiri rækju-
vinnslustöðva, þegar ákveðið
hefði verið að ekki yrði veitt meira
á þessu ári en því síðasta.
FERMINGARTILBOÐ I (sjá mynd að ofan)
Svefnbekkur, fataskápur 80 cm,' fataskápur 40 cm,
skápur, snyrtiborð og tveir skúffuskápar .. kr. 70.300.-
Tilboðsverð............................. kr. 62.900,-
staðgreitt.............................. kr. 59.755,-
FERMINGARTILBOÐ II
Rúm, náttborð, skápur og bókahilla....... kr. 27.700,-
Tilboðsverð............................. kr. 25.500.-
staðgreitt.............................. kr. 24.225.-
FERMINGARTILBOÐ III
Svefnbekkur, skápur, bókahilla og tölvuborðkr. 34.450,-
Tilboðsverð............................. kr. 31.900.
staðgreitt.............................. kr. 30.305.-
FERMINGARTILBOO IV
Svefnbekkur, 6 skúffu kommóða, bókahilla og
tölvuborð............................... kr. 43.050.-
Tilboðsverð............................. kr. 38.500.-
staðgreitt.............................. kr. 36.575.-
FERMINGARTILBOÐ V
Rúm og 5 skúffu kommóða............... kr. 20.700 -
Tilboðsverð........................... kr. 19.500.-
staðgreitt............................ kr. 18.525.-
FERMINGARTILBOÐ VI
Svefnbekkur, fataskápur 80 cm, skápur, skrifborð og
spegill................................... kr. 45.650.-
Tilboðsverð............................... kr. 43.900.-
staðgreitt................................kr. 41.705,-
20% útborgun, eftirstöðvar til alltað 12 mánaða.
FERMIMQAR-
TILBOÐ VIÐJU
Þar sem
góðu kaupin
gerast
2 Kopavogi
44444
Morgunblaðið/Einar Falur
Margrét Jónasdóttir og Ásdís
Asgeirsdóttir úr 5b í MR. Þessi
mál eru í brennidepli og þess
vegna tókum við þau fyrir, sögðu
þær.
Menntaskólinn
í Reykjavík:
Strákar byrja
kynlíf fyrr
en stelpurnar
NEMENDUR í MR gerðu um
miðjan mars könnun í skólanum
á kynlífshegðun og viðhorfum
nemenda til eyðni. Helstu niður-
stöður könnunarinnar voru þær
að tveir þriðju hlutar aðspurðra
svöruðu játandi spurningunni um
hvort þeir hefðu sofið hjá og
strákar sögðust hafa byrjað á því
16 ára, en stelpur 17 ára. Flestir
sögðust vera varkárari í vali á
rekkjunautum eftir að umræðan
um eyðni hófst og hræðsla við
eyðni er minni meðal nemenda
en hræðsla við kjarnorkustyijöld
og krabbamein. Um 20% nem-
enda MR voru i úrtakinu, 155
ungmenni úr öllum bekkjum
skólans.
Allir nemendur að einum undan-
skyldum kváðust vita hvernig eyðni
smitast og flestum fannst að hafa
ætti reglubundið eftirlit með þeim
sem smitaðir eru. Aðeins lítill hluti
nemenda er í föstu sambandi, eða
20—25% þeirra sem stunda kynlíf
og athygli vekur að smokkurinn er
tiltölulega lítið notaður, þrátt fyrir
að nemendur álíti flestir að auglýs-
ingaherferð landlæknis hafi tekist
sæmilega. í ljós kom að, stelpur
voru frekar á þeirri skoðun að fólk
þyrfti að vera í föstu sambandi til
að stunda kynlíf, eða 52,8%, en
meirihluti strákanna svaraði þeirri
spurningu neitandi, eða tæp 60%.
Algengara var að strákarnir svæfu
hjá eftir stutt kynni en stelpumar
Þeirri spurningu svöruðu 41% strá-
kanna, en 24,7% stelpnanna.
Rúmlega 90% nemenda sem þátt
tóku í könnuninni búa í foreldrahús-
um.
Að könnuninni stóðu 26 nemend-
ur í 5b, ásamt félagsfræðikennara
sínum Kristni Einarssyni.
Maraþon körfu-
bolti á Lauga-
landi í Holtum
Selfossi.
NEMENDUR 9. bekkjar í Lauga-
landsskóla í Holtum ætla að leika
maraþon körfubolta á laugar-
daginn kemur í nýja íþróttahús-
inu á Laugalandi. Byrjað verður
klukkan eitt og leikið meðan
kraftar endast.
Krakkarnir leggja þetta á sig til
þess að afla fjár til skólaferðalags
í lok skólans. Fyrirhugað er að fara
til Danmerkur í sjö daga fræðslu-
og skemmtiferð. Aheit á körfubolt-
ann hafa fengist hjá fyrirtækjum á
Selfossi og víðar. I fyrra var farið
til Færeyja og þótti ferðin takast
vel.
— Sig. Jóns.