Morgunblaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
ODYRU
UNGLINGAHÚSGÖGNIN
KOMIN
KommóÖur
4ra skúffu 2.825,- stgr.
6 skúffu 3.700,- stgr.
8 skúffu 4.210,- stgr.
Svefnbekkir meÖ dýnu og rúmfataskúffu. Verö
frá kr. 7.850,- stgr.
Fataskápar kr. 6.685,- stgr.
KYNNTU ÞÉR OKKAR VERÐ,
ÞAU KOMA Á ÓVART
Smiðjuvegi 6, Kópavogi símar 45670 — 44544.
Kynning á starfsemi Iðnlánasjóðs á Akureyri
Iðnlánasjóður getur veitt fyrir-
tækjum hagstæðari lán en aðrir
— sagði Bragi Hannesson, bankastjóri og forstöðumaður sjóðsins
IÐNLÁNASJÓÐUR var
stofnaður árið 1935. Hlut-
verk hans er að efla fram-
leiðslu og framleiðni í iðnaði
með því að veita stofnlán og
styðja við almennt umbóta-
starf í iðnaði. Forstöðumað-
ur sjóðsins er Bragi
Hannesson, bankastjóri.
Iðnlánasjóður gekkst fyrir
kynningarfundi á Akureyri
fyrir skömmu þar sem Gísli
Benediktsson, Hreinn Jak-
1 obsson og Stefán Melsteð,
ásamt Braga Hannessyni,
kynntu starfsemi sjóðsins
ítarlega. Áður hefur slíkur
kynningarfundur verið
haldinn í Hafnarfirði og
' framhald verður á þeim.
Fyrstu áratugina var lánageta
; Iðnlánasjóðs lítil en gjörbreyttist
árið 1963 þegar ákveðið var með
lögum að ieggja sérstakt iðnlána-
sjóðsgjald á öll iðnfyrirtæki í
landinu. Árið 1984 yfírtók sjóðurinn
verkefni Iðnrekstrarsjóðs með
stofnun sérstakrar deildar sem lán-
ar og veitir styrki til vöruþróunar
1 og markaðsstarfsemi. Vorið 1986
var svo með lögum stofnuð trygg-
ingadeild útflutningslána við Iðn-
lánasjóð. Iðnaðarbanki íslands hf.
annast samkvæmt lögum daglegan
Bragi Hannesson
rekstur Iðnlánasjóðs og hefur sjóð-
urinn aðsetur í húsnæði bankans,
Lækjargötu 12 í Reykjavík. í stjórn
sjóðsins, sem skipuð er af iðnaðar-
ráðherra, sitja Jón Magnússon hdl.,
formaður, Gunnar S. Bjömsson
húsasmíðameistari og Olafur Daví-
ðsson framkvæmdastjóri. Skrif-
stofustjóri sjóðsins er Gísli
Benediktsson viðskiptafræðingur.
Sjóðurinn skiptist í fjórar deildir:
Fjárfestingarlánadeild, vöruþróun-
ar- og markaðsdeild, tryggingadeild
útflutningslána og áhættufjár-
magnsdeild.
Gísli Benediktsson
Fjárf estingarlánadeild
Gísli Benediktsson kynnti fjár-
festingarlánadeild. Fram kom í
máli hans að deildin veitir stofnlán
til véla- og tækjakaupa fyrir iðnað-
inn, til byggingar og kaupa verk-
smiðju- og iðnaðarhúsa, endur-
skipulagnirigar iðnfyrirtækja,
hægræðingar í iðnrekstri og til
framkvæmda er auka hollustu og
öryggi og bæta starfsumhverfi á
vinnustöðum. Gísli skýrði síðan
hvað þyrfti að fylgja umsóknum;
og með byggingarlánum er það eft-
irfarandi: sundurliðaður byggingar-
kostnaður, byggingarlýsing á
sérstökum eyðublöðum, teikningar,
ráðgerður byggingartími og ef um
kaup á fasteign er að ræða þarf
að fylgja umsókninni kaupsamning-
ur eða drög að kaupsamningi.
Umsóknum um vélalán þarf hins
vegar að fylgja eftirfarandi: kostn-
aðarverð einstakra véla, nafn og
ríkisfang framleiðenda, ráðgerður
kauptími, flutningur og aðflutn-
ingsgjöld, niðursetningarkostnaður
og ef um kaup eldri véla hér á landi
er að ræða kaupsamningur. Gísli
gat þess í erindi sínu að lánshlut-
fall væri allt að 50% af fjárfestingu.
Hámarkslánstími byggingalána er
15 ár en 7 ár hvað vélalánin varð-
ar. Lánskjör eru þannig, varðandi
byggingalánin, að lán undir 5 millj-
ónum er með 6,5% vöxtum, verð-
tryggð en lán yfir 5 milljónum króna
eru lánuð í SDR og með 8% vöxt-
um. Vélalán undir 700.000 eru
verðtryggð með 6,5% vöxtum en lán
yfir þeirri upphæð eru í SDR og
með 8% vöxtum.
Gísli sagði eftirspurn eftir lánum
frá fjárfestingarlánadeild hafa verið
mikla. Ráðstöfunarfé deildarinnar í
fyrra voru 595 milljónir króna en
verða 602,6 milljónir á þessu ári.
Vöruþróunar- og
markaðsdeild
Hreinn Jakobsson sagði markmið
deildarinnar þríþætt: að stuðla að
vöruþróun og aukinni samkeppnis-
hæfni iðnaðarins, að örva nýsköpun
VERTU ÁHYGGJUIAUS
MEÐAN BÖRNIN BAÐA SIG!
Danfoss baöblöndunartækin eru hitastillt. Þú
ákveöur hitastigiö og skrúfar frá - Danfoss held-
ur hitanum stöðugum. öryggishnappur kemur í
veg fyrir að börnin stilli á hærri hita en 38°C.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2.SIMI 24260
LAGER-SÉRRANTANIR-WÓNUSTA
75ÁRA
VATNSLEKI ?
THORO á svarið við vandræðum vegna vatns-
I e ka
THOROSEALer upplagt til að bera á t.d. sökkla.
Það fyllir og lokar steypunni en andar þó tii
jafns við steypuna. WATERPLUG þenst út við
hörðnun og rýrnar ekki. Það stöðvar vatns-
leka.
Kynntu þér kosti THORO — efnanna og hafðu
samband við Steinprýði. Við hjálpum þér.
steinprýöi
Stangarhyl 7. s. 672777