Morgunblaðið - 09.04.1987, Side 34

Morgunblaðið - 09.04.1987, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987 Bókin „Veður- far á íslandi“ fáanleg á ný VEÐURFAR á íslandi eftir Markús Á. Einarsson veður- fræðing er nú aftur fáanleg hjá Bókaútgáfunni Iðunnni en hún hefur verið uppseld um tíma. Bókin gefur yfirlit um helstu niðurstöður rannsókna á veðurfari íslands og skiptist í tíu megink- afla. í fréttatilkynningu frá útgáfunni segir að hún sé í 'enn handbók og almennt fræðslurit — jafnt til fróðleiks áhugamönnum sem og til nota fyrir verkfræð- inga, náttúrufræðinga og fleiri þá sem upplýsinga er þörf um veður- far starfa sinna vegna. Morgunblaðið/Júlíus Á blaðamannafundi félaga í BHM í gær. Frá vinstri: Sigurrós Sigurðardóttir frá Stéttarfélagi íslenskra félagsráðgjafa, Ólafur Karvel Pálsson frá Félagi íslenskra náttúrufræðinga, Ólöf Steingrímsdóttir frá Félagi íslenskra sjúkraþjálfara, Hugó Þórisson frá Sálfræðingafé- lagi íslands, Valgerður Gunnarsdóttir fundarstjóri, Eydís Arnviðardóttir frá Félagi bókasafnsfræðinga, Rósa Hauksdóttir frá Iðjuþjálfafélagi íslands, Hildur Einarsdóttir frá Félagi íslenskra hjúkrunarfærðinga, Júlíus Björnsson formaður BHMR og Birgir Björn Siguijónsson hag- fræðingur BHMR. Semjum ekki til tveggja ára án kaupmáttartryggingar - segja fulltrúar í samninganefndum háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna ÝMSAR stofnanir ríkisins hafa lamast að miklu leyti vegna verk- falla félaga í Bandalagi háskóla- manna. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraþjálfarar hafa nú verið í verkfalli í þijár vikur, félagsráð- gjafar, sálfræðingar og iðjuþjálf- ar í tvær vikur og náttúrufræð- ingar og matvæla- og næringarfræðingar og bóka- safnsfræðingar í eina viku. Ágreiningur samninganefnda stendur um lengd samningstímans og verðtryggingarákvæði. I upphaf- legum kröfugerðum félaganna var krafist að kjarasamningur gilti til eins árs, frá 1. janúar 1987 til 31. desember 1987. Fjármálaráðherra býður hinsvegar kjarasamninga til tveggja ára án verðtryggingar síðara árið. Félögin standa enn við upphaflega kröfu um árssamning en eru einnig reiðubúin að gera tveggja ára samning með annað tveggja uppsagnarákvæðum eða kaupmáttartryggingu. Þetta kom meðal annars fram á blaðamannafundi í gær er boðað var til af þeim átta félögum í BHMR sem nú standa í samningaviðræðum fyrir félagsmenn sína við samninga- nefnd ríkisins. „Viðræðumar við öll félögin hafa strandað á kaupmáttartrygging- unni. Við erum tilbúin til að semja til tveggja ára, eins og samninga- nefnd ríkisins, er að reyna að þvinga okkur til, en ekki án kauptrygging- ar síðara árið. Við verðum að tryggja félagsmönnum okkar út- gönguleið um áramótin komi til óðaverðbólgu," sagði Júlíus Bjöms- son, formaður BHMR, í samtali við Mórgunblaðið. „Ég skil ekki af hverju ríkið getur ekki boðið okkur þessa útgönguleið eins og kennur- um var boðið upp á úr því þeir sömdu til tveggja ára,“ sagði Júlíus. „Það er verið að setja okkur afar- kosti, sem við göngum aldrei að enda höfum við aldrei ætlað að semja til tveggja ára með slíkum ákvæðum. Við fengum samnings- réttinn í okkar hendur í fyrra og við emm ekki hrifin af því ef það á að fara að taka hann af okkur á næsta ári aftur," sagði Ólafur Kar- vel Pálsson, náttúrufræðingur. Upp úr viðræðum slitnaði við félögin um og upp úr sl. helgi og ekki hefur verið boðað til formlegra funda við félögin aftur. Að sögn fulltrúa fé- laganna er viðræðugrundvöllur fyrir hendi um ýmis mikilvæg at- riði, til dæmis varðandi röðun í launaflckka og fleira. Á fundinum kom fram að upp- lausn ríki hjá ýmsum stofnunum. I heilbrigðiskerfinu yfirgefur fólk nú störf sín og ekki er von til þess að hæft fólk fáist í staðinn til að sinna þeim sérhæfðu störfum sem þannig losna. Brýnar rannsóknir til dæmis fyrir sjávarútveginn eru ekki fram- kvæmdar með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. VJterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! JHfargnttÞlðfcifc SIEMENS Hann er venjulegur ofn, grillofn og örbylgjuofn, allt í senn. Kjörinn í mötuneyti, kaffistofur, sumarhús og svo vitaskuld á venjuleg heimili. íslenskur leiðarvísir. (Mfeí/®OT@00© SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 Rekstrarvandi Hraðfrystihúss Stokkseyrar: Tekið allt of seint á þessu vandamáli - segir Árni Johnsen alþingismaður „ÞAÐ ER nettóskuld 200 á milljóna króna Hraðfrystihúsi 00 Tímarit fyrír áhugafólk um þjóðfélagsmál! Nerdisk Kontakt Einstakt tímarit sem stendur á gömlum merg. Kemur nú út í nýjum búningi. Fjallar um þjóöfélags-og menningarmál á Norður- löndum. Gefió út afNorðurlandaráði sautján sinnum á ári. Sjálfstæó ritstjómastefna. Skrifaó á dönsku, finnsku, norsku og sænsku. Blaóamenn í Danmörku, Finnlandi, íslandi, Noregi, Svípjóö, Grænlandi, Færeyjum og á Álandseyjum. Gerist áskrifendur að hinu nýja NORDISK KONTAKT. Áskriftargjald ÍSK 600 fyrir allan árganginn 1987 greióist inn á póstgíró- reikning S-851236-0. Skrifið heimilisfang greinilega á póstgíróseðilinn. Hió nýja NORDISK KONTAKT ergagn- legt tímarit fyrir fólk i stjómmálum og í opinberri pjónustu, Qölmiðla - og listafólk, áhugamenn um þjóófélagsmál og aðra þá sem vilja hafa yfirlit um þróun mála á Norðurlöndum. Afgreiðsla: Nordisk Kontakt (Nordiska rádets presidiesekretariat) Tyrgatan 7, Box 19506, S-10432 Stockholm 19. Telefon: 143420. Stokkseyrar og sennilega stend- ur ekkert frystihús á landinu jafn illa. Hverju sem þar er um að kenna er ljóst að það var tek- ið allt of seint föstum tökum á þessum vanda fyrir hönd Stokks- eyringa. Sú ábyrgð er samtvinn- uð á milli stjórnar fryustihússins og hreppsnefndar Stokkseyrar- hrepps og auðvitað ber Margrét Frímannsdóttir sem oddviti ekki hvað sísta ábyrgð í því máli,“ sagði Árni Johnsen alþingismað- ur í samtali við Morgunblaðið. í Þjóðviljanum_ í gær er haft eft- ■ ir Ólafi M. Óskarssyni fram- kvæmdastjóra Hraðfrystihúss Stokkseyrar að það sé lúalegur áburður Árna Johnsen á hendur Margreti Frímannsdóttur oddvita og frambjóðanda Alþýðubandalags- ins til Alþingis, að hún eigi sök á rekstrarvanda hraðfrystihússins. Erfiðleikarnir hafí byijað fyrir odd- vitatíð Margrétar, eða árið 1979 þegar húsið brann og það síðan endurbyggt á verðbólgutíma fyrir dýrt lánsfé. í samtali við Morgunblaðið sagð- ist Ámi hafa gert þetta að umtals- efni á sérstökum fundi út af hraðfrystihúsmálinu og í srná klausu í blaðinu Suðurlandi. Álit sitt væri samhljóða áliti Byggða- stofnunar og fleiri aðila sem fylgst hafi með vanda Hraðfrystihússins, og þótt núverandi framkvæmda- stjóri væri ef til vill að ná tökum á rekstrinum nú hefði hann aðeins starfað þar í ár og það afsakaði ekki að ekki var tekið á þessu máli fyrr. Passíusálmar fluttir í sjónvarpi í fyrsta sinn PASSÍUSÁLMAR eru nú lesnir í sjónvarpi í fyrsta sinn f sögu þess. Sigurður Pálsson rithöf- undur les og eru myndskreyting- ar eftir Snorra Svein Friðriks- son, deildarstjóra leikmynda- deildar sjónvarpsins. Einn sálmur er lesin í hvert skipti í lok dagskrár á sunnudögum og byrjaði lesturinn sunnudagskvöldið 29. mars sl. Þá var annar sálmur fluttur þann 5. apríl og síðan verða passíusálmar lesnir í lok dagskrár þann 12. apríl og á páskadag, þann 19. apríl. Samkvæmt upplýsingum frá sjónvarpinu hafa undirtektir sjón- varpsáhorfenda verið góðar og hefur það fólk, sem látið hefur í sér heyra vegna þessarar nýbreytni, helst viljað fá alla passíusálmana fiutta í sjónvarpi á þennan hátt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.