Morgunblaðið - 09.04.1987, Page 36
36__
Kúba
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
Kastro í nöp við
markaðshyggjuna
Havana, Reuter.
KASTRO, forseti Kúbu, sagði
í fyrradag, að markaðsstefn-
an, sem nú væri að skjóta upp
kollinum í sumum kommún-
istaríkjum, ætti ekkert erindi
við Kúbumenn og fór höröum
orðum um neysluhyggjuna.
„Gróði, gróði, gróði — hvað
kemur hann byltingunni við,“
sagði Kastro í lokaræðunni á
fimm daga þingi æskulýðssam-
taka kommúnistaflokksins.
Sagði hann, að það væri „blekk-
ing og heimska“ að halda, að
markaðsöflin og arðbær ríkis-
fyrirtæki gætu tekið við því
hlutverki kommúnistaflokksins
að byggja upp sósíalismann og
stuðla að framförum.
Kastro talaði blaðalaust í þijár
klukkustundir samfleytt og
sagði, að neysluhyggjan, þessi
þráhyggja, væri „kapitalísk upp-
finning". Kvaðst hann vera mjög
ánægður með pólitíska vitund
þingfulltrúanna og að hann og
aðrir frammámenn á Kúbu væru
„vissir um, að framtíð byltingar-
innar væri í góðum höndum".
Reuter
Jóhannes Páll páfi II blessar sjúka konu
Cordoba í Argentínu í gær.
í dómkirkju borgarinnar
Samkomulag náðíst
um heimsókn páfa
Varsjá, Reuter.
Samkomulag hefur náðst milli
pólsku stjórnarinnar og kaþólsku
Danmörk:
Óeining um fram-
lög til varnarmála
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÓEINING ríkir í dönskum stjóm- um til varnarmála. Þykir nú útséð,
málum um framlög til varnar-
mála. Stjórnin hefur viðrað
tillögu, sem Jafnaðarmanna-
flokkurinn og Det Radikale
Venstre geta ekki fallist á. Og
þar með skortir meirihluta fyrir
tillögunni.
Samkvæmt tillögu stjómarinnar
á 400 milljóna danskra króna
aukafjárveiting að ganga til varnar-
mála á þessu ári og 100 milljónir
á ári til 1992.
Féð á að nota til að kveðja til
fleiri menn, sem komnir eru á her-
skyldualdur, og til að kaupa nýjar
flugvélar, skriðdreka og skip, þar á
meðal fjögur til landhelgisgæslu.
Jafnaðarmenn halda fast við, að
útgjöld til vamarmála verði óbreytt,
hvað sem líði kostnaðarauka vegna
verðhækkana, aukins lauriakostn-
aðar og verðbólgu. Þingflokkur Det
Radikale Venstre hefur oft sagt,
að hann muni ekki greiða atkvæði
með fjárlögunum fyrir 1988, ef þar
verði að finna hækkanir á framlög-
Sovétríkin:
Kunnir
andófsmenn
farnir brott
Vínarborg, Reuter.
TVEIR kunnir sovézkir andófs-
menn, hjónin Tatyana Osipova
og Ivan Kovalyov, hafa fengið
að fara úr landi. Fóru þau í fyrra-
dag til Vínarborgar, en þaðan
halda þau til Bandaríkjanna.
Osipova, sem er 38 ára kerfís-
fræðingur, var handtekin í maí 1980.
Hún var dæmd ári síðar í fimm ára
þrælkunarvinnu og fimm ára útlegð
í framhaldi af því i vinnubúðum. Var
hún dæmd fyrir andsovézkan óhróð-
ur en hún var félagi í Helsinki-
nefndinni í Moskvu. Hún var látin
laus úr þrælkunarbúðum í október
í fyrra og send í útlegð.
Kovyalov, sem er 32 ára verk-
fræðingur, var handtekinn í ágúst
1981 og dæmdur ári seinna. Hlaut
hann sömu refsingu og Osipova.
Osipova sagði að þau hjónin hefðu
ekki haft í hyggju að yfirgefa Sov-
étrikin. Hún hefði hins vegar þurft
á læknishjálp að halda vegna kven-
sjúkdóms; meðferð sem ófáanleg
væri í Sovétríkjunum. Andófshjónin
ætla að sækja um að fá að setjast að
í Bandaríkjunum.
að vamarmálin verði ofarlega á
baugi í komandi kosningabaráttu,
en að dómi flestra verður gengið
til kosninga í haust.
kirkjunnar þar í landi um skipu-
lag heimsóknar Jóhannesar Páls
páfa II til Póllands 8.-14. júní
næstkomandi.
Áreiðanlegar heimildir hermdu
að í gær hefði lokið margra mánaða
erfiðum samningaviðræðum full-
trúa kirkjunnar og stjórnvalda um
dagskrá heimsóknarinnar.
Páfi kemur til Varsjár 8. júní en
auk höfuðbrogarinnar heimsækir
hann Lublin, Tarnow, Krakow,
Szczecin, Gdynia, Gdansk, Czestoc-
howa og Lodz.
Þá hefur stjórnin samþykkt að
hann fari að gröf prestsins Jerzy
Popieluszko, sem lögreglumenn
myrtu árið 1984. Hann var stuðn-
ingsmaður Samstöðu, óháðu verka-
lýðsfélaganna, sem bönnuð var með
setningu herlaga árið 1981.
Strax eftir komuna til Varsjár
er fyrirhugað að páfi eigi fund með
Wojciech Jaruzelski, aðalritara
pólska kommúnistaflokksins.
Páfi mun messa í borgunum, sem
hann heimsækir, og setja presta-
stefnu í Varsjá. í Tarnow mun hann
taka í dýrlingatölu Karolinu Kozka,
táningsstúlku, sem rússneskur her-
maður myrti árið 1914 er hún veitti
mótspymu þsgar hann reyndi að
nauðga henni. Einnig mun hann
taka Michal Kozal, biskup, í dýrlin-
gatölu við útimessu í Varsjá á
lokadegi heimsóknarinnar. Kozal
dó í fangabúðum nasista í Dachau
árið 1943.
Flóttamannabúðirnar í Líbanon:
Palestínumenn fagna
sýrlenskum hermönnum
Beirút, Reuter.
ÖRÞREYTTIR Palestínskir
skæruliðar föðmuðu að sér yfir-
menn úr sýrlenska hernum, sem .
komu í gær inn i Bourj al-Baraj-
neh flóttamannabúðirnar til að
undirbúa að senda setulið þangað
og binda enda á hina langæju
orrustu um búðirnar.
Sýrlendingar höfðu fyrr í gær
umsjá með því að 23 særðir Pa-
lestínumenn voru fluttir frá Shat-
ila-búðunum. Sýrlendingar komu
sér þar fyrir á miðvikudag.
Fréttaritari Reuter-fréttastof-
unnar gekk inn í Bouij al-Barajneh,
þar sem tólf þúsund flóttamenn
dveljast, ásamt 25 eftirlitsmönnum
sýrlenska hersins. Sagði hann að
flóttamennimir hefðu flestir virst
teknir og illa farnir þegar þeir reik-
uðu út í dagsljósið úr myrkum
byrgjum og húsarústum. Sagði
hann að skeggjaðir og úttaugaðir
skæruliðar hefðu faðmað að sér
Sýrlendingana, sem gerðu samning
við foringja Palestínumanna um að
sýrlenskir hermenn yrðu staðsettir
á átta stöðum.
Vopnaðar sveitir síta, sem Sýr-
lendingar styðja, hafa setið um
flóttamannabúðirnar í Beirút síðan
29. október.
Ummerki umsátursins í Bouij
al-Barajneh eru greinileg. Göt eftir
byssukúlu eru í veggjum hvers ein-
asta húss og fæst standa heil og
íbúðarhæf.
„Þið hélduð að við værum að
ljúga. Eg þurfti að borða rottu,"
sagði þrettán ára gamall drengur.
Erlendir Iæknar I búðunum sögðu
að flóttamenn í búðunum hefðu
þurft að leggja sér ketti, hunda,
múlasna og rottur til munns til að
halda lífi.
Menn sem misst hafa fætur sínar
fóru um á hækjum eða var ýtt
áfram í hjólastólum. Vart er hægt
Reuter
Maður heldur á veiku barni sínu í Shatila-flóttamannabúðunum
skammt frá Beirút. Yfirmenn úr sýrlenska hernum höfðu umsjón
með brottflutningi særðra úr búðunum í gær.
að komast um götur fyrir úrgangi,
vatni og frárennsli.
Chris Giannou, grísk-kanadískur
skurðlæknir í Shatila-búðunum,
sagði á þriðjudag að 110 manns
hefðu verið drepnir og 600 særðir
í umsátrinu. 3200 manns hafa dval-
ið í búðunum.
Sýrlenskir verðir munu gæta
Bouij al-Barajneh búðanna á sex
stöðum til að tryggja að flóttamenn
geti farið fijálsir ferða sinna. Eins
og áður segir hafa sítar setið um
búðirnar síðan í október. Undan-
famar fímm vikur hafa konur
fengið að fara þaðan fótgangandi
til að kaupa mat, en Palestínumenn
segja að leyniskyttur hafi skotið
um þijátíu konur til bana.
Sýrlenskir hermenn tóku sér
stöðu á fjórum stöðum í Shatila-
búðunum í gær og lögðu mörg
hundruð konur og börn leið sína í
verslanir fyrir utan búðimar.
„Við höfðum gleymt hvað það
er yndislegt að geta farið fijáls
ferða sinna og verslað eftir að hafa
verið innilokuð í rúmt hálft ár,“
sagði hálffimmtug kona á leið inn
í búðimar eftir verslunarferð.
A-Berlín:
Ráð-
herrason-
ur flytur
vestur
Austur-Berlín, Keuter.
HARTMUT Grátz, sonur
Manfreds Gráetz aðstoðar-
varnarmálaráðherra Aust-
ur-Þýzkalands, hefur fengið
leyfi til að flytjast til Vestur-
landa og fór hann til
Vestur-Þýzkalands í síðustu
viku.
Austur-Þýzki lögfræðingur-
inn Wolfgang Vogel, sem verið
hefur fulltrúi Austur-Þjóðveija
í viðræðum um mannréttinda-
mál og samningaviðræðum um
fangaskipti, staðfesti að
Hartmut Grátz hefði fengið
að fara til Vesturlanda. Faðir
hans er hershöfðingi í austur-
þýzka hemum og einn af níu
aðstoðarvarnarmálaráðherr-
um landsins. Venjan er að
maður í stöðu af þessu tagi
og fjölskylda hans fái ekki að
ferðast til Vesturlanda eða
eiga samskipti við Vestur-
landamenn í Austur-Þýzka-
landi.
Rússar
auglýsa
sænskar
tölvur
Stokkhólmni, Reuter.
Landslið Sovétríkjanna í
ísknattleik var með auglýsingu
frá sænsku tölvufyrirtæki á
keppnisfatnaði sínum í lands-
leik gegn Svíum í fyrrakvöld.
Er þetta ný aðferð sovézkra
yfirvalda í gjaldeyrisöflun.
Talið er að Sovétmenn hafi
fengið 15.000 dollara fyrir
auglýsinguna og sagði Ana-
toly Kostryukov. formaður
sovézku ríkisfþróttanefndar-
innar, að sovézkir íþróttamenn
myndu glaðir auglýsa vestræn
fyrirtæki. Undantekning væri
þó tóbaks-, lyfja-, áfengis- og
klámauglýsingar. Landsleikn-
um töpuðu Sovétmenn 1-2.
Nýr f lokkur
í S-Kóreu
Seoul, Reuter.
Kim Dae-jung og Kim Yo-
ung-sam, tveir helztu leiðtogar
stjórnarandstöðunnar í Suð-
ur-Kóreu, sögðust í gær vera
að undirbúa stofnun nýs
stjórnmálaflokks.
Leiðtogarnir stóðu á sínum
tíma að stofnun Nýja kóreska
lýðræðisflokksins (NKDP) en
í gær sögðu þeir að valdabar-
átta innan hans hefði rýrt
flokkinn trúnaði. Sögðu þeir
að 74 af 90 þingmönnum
NKDP hefðu sagst ætla að
ganga hinum nýja flokki á
hönd.
Chirac
hlýtur
traust
París, Reuter.
Traustsyfirlýsing á ríkis-
stjórn Jacques Chirac, forsæt-
isráðherra Frakklands, var
samþykkt með 294 atkvæðum
gegn 282 í franska þinginu í
gær.
Chirac óskaði eftir trausts-
yfírlýsingu við stefnu stjórnar-
innar og varð að ósk sinni,
eins og búist hafði verið við.
Þingmenn Lýðveldisfylkingar-
innar (RPR), flokks Chiracs,
og Lýðræðisbandalagsins
(UDF) greiddu tillögunni at-
kvæði en þingmenn Jafnaðar-
mannaflokksins, Kommúnista-
flokksins og Þjóðernisflokks-
ins voru á móti.