Morgunblaðið - 09.04.1987, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
$$$$$$
ibúöirj
Gistírými aukið á Flúðum
Selfossi.
UNNIÐ er að því að stækka gisti-
rými á Flúðum í Hrunamanna-
hreppi. Búið er að grafa fyrir
12 herbergja stækkun við hús-
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Búið er að grafa fyrir 12 herbergja stækkun við húsnæði Skjólborgar.
næði Skjólborgar, þar sem fyrir
voru 8 herbergi. Einnig hefur
þar verið úthlutað lóð undir þjón-
ustumiðstöð fyrir ferðamenn og
svæði fyrir smáhýsi.
Yfir sumartímann hefur sumar-
hótelið á Flúðum nýtt félagsheimil-
ið, skólann og húsnæði Skjólborgar.
Að sögn Jóhannesar Sigmundsson-
ar hótelstjóra er ljóst að mikil
umferð verður í sumar og hið nýja
húsnæði Skjólborgar því kærkomið.
Hjá sumarhótelinu hafa unnið 12
til 14 manns.
Á síðasta ári var úthlutað 44
lóðum fyrir sumarbústaðí. Meðal
lóðarhafa er orlofssjóður Kennara-
sambands íslands með 13 lóðir.
Systkinin Valgerður Júlíusdóttir og Sveinn Rúnar Júlíusson kunnu
vel að meta nýju búningsklefana og endurbæturnar á lauginni.
Búið er að byggja á nokkrum lóð-
anna og gert ráð fyrir að bústaðir
verði risnir á 30 þeirra á þessu ári.
■
, • ■
«3*
/C
m
■ ■
...
6w (á0íD cöD gfD ws&uEáfi te
000T000
OSKD otD e(afiEæ aS)
SOBARlil
0552’
6001000
SUBARUIJlilS:TiV(
QJSS7
350T000
DREGIÐ 14. APRIL 1987
xi
Islands
© 91-27600
WM ■ ";"■■ ■'" v'
© 91-27600
Bústaðimir eru með heitu og köldu
vatni, rafmagni og sameiginlegt
skolpkerfi er á svæðinu.
Nýbúið er að endurbyggja bún-
ingsaðstöðuna við sundlaugina. Þar
var sett upp gufubað og ljósabekk-
ur er þar líka. Auk þess var laugin
klædd innan með gúmmídúk.
Flúðir eru mjög vaxandi byggða-
kjami. Þar varð fjölgun á síðast-
liðnu ári og á hveiju ári eru byggð
þar 3 til 4 íbúðarhús. „Vandamálið
hjá okkur héma er að vegimir í
nágrenninu em ekki nógu góðir.
Sérstaklega frá Stóru-Laxá og veg-
urinn yfir hjá Brúarhlöðum er
sérstaklega slæmur. Kaflinn frá
Fossi að Brúarhlöðum er gamla
hestvagnabrautin sem lögð var í
kringum 1950,“ sagði Loftur Þor-
steinsson, oddviti Hrunamanna-
hrepps. Hann sagði það mjög
nauðsynlegt að bæta ástand veg-
anna, einkum vegna hinnar miklu
umferðar á sumrin.
Sig. Jóns.
Skíðasam-
bandið með
happdrætti
NÝLEGA var hleypt af stokkun-
um happdrætti Skíðasambands
íslands til styrktar starfi sam-
bandsins. Gefnir eru út 2.500
miðar, sem hver kostar 1.000 kr.
og er aðeins dregið úr seldum
miðum. Dráttur fer fram 22.
apríl nk.
Vinningar em: Fiat Croma-bif-
reið, að verðmæti kr. 754 þús.,
ferðavinningur frá ferðaskrifstof-
unni Samvinnuferðum Landsýn, að
verðmæti kr. 25.200 kr., skíðabún-
aður frá versluninni Utilífi, að
verðmæti kr. 20 þús., vikudvöl í
Kerlingarfjöllum, að verðmæti kr.
18 þús., og hljómtæki í bílinn frá
Hljómbæ, að verðmæti kr. 18 þús.
Fjárþörf Skíðasambandsms er
gífurleg, bæði vegna útbreiðslu- og
fræðslumála og úthalds landsliða.
Benda má á að skíðaíþróttin er ein
íþrótta, sem em í þeirri aðstöðu að
mega ekki selja aðgang að íþrótta-
kappleikjum sínum. Miðar í happ-
drættinu em seldir um land allt hjá
öllum skíðafélögum og sktðaráðum.
Skíðasamband Islands væntir þess
að velunnarar íþróttarinnar bregð-
ist vel við málaleitan þessari, með
þvi að kaupa miða í þessu glæsilega
happdrætti.
(Fréttatilkynning)
mmmmmmmmm
Kynning á
veiðivörum
VERSLUNIN Veiðimaðurinn
gengst fyrir kynningu á veiðivör-
um frá ABU með aðstoð sérfræð-
ings frá ABU, föstudaginn 10.
apríl nk. frá kl. 10.00-17.00 í
veitingahúsinu Gaukur á Stöng,
2. hæð.