Morgunblaðið - 09.04.1987, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
57
irnir sem stjórna landinu. Er nokkur
furða þó að almenningur sé óðum
að missa trúna á þessa menn og
þverrandi virðing fyrir löggjafar-
samkundunni sé staðreynd, þegar
þeir sem setja þjóðinni lög og al-
mennar leikreglur haga sér eins og
örgustu götustrákar.
Það er augljóst af öllum þessum
sjúklegu upphlaupum sjálfstæðis-
manna að þama fara lafhræddir
menn, sem sjá sína pólitísku sæng
upp reidda. Þeir vita að dagar þeirra
sem slíkir eru að renna sitt skeið,
Sjálfstæðisflokkurinn mun aldrei
framar deila og drottna í þessu
landi. Hrun hans hófst innan frá og
í næstu kosningum fara fram tvær
íhaldsfylkingar og brauðfætur
þeirra munu ekki bera þá langt.
Það er ömurlegt að forystukona
fyrir einum lægstlaunaða hópnum
á vinnumarkaðnum skuli hafa
gengið til liðs við svartasta aftur-
haldið í þessu landi.
Kosningastjóri klofningsíhalds-
ins er dyggur stuðningsmaður
Repúblikanaflokksins í Banda-
ríkjunum, mesta kúgunar- og
ofbeldisafls sem til er í heiminum
í dag að kommúnistum einum und-
anskildum. Ekki er það síður sárt
að prestar og guðfræðingar skuli
leggja lag sitt við þessi öfl, sem eru
í reynd eins langt frá fagnaðarboð-
skap Krists og komist verður.
Nýir og bjartir tímar jafnréttis-
og bræðralagshugsjónar jafnaðar-
stefnunnar eru framundan. Sú sókn
verður ekki stöðvuð. Vertu með í
þeirri velferðaruppbyggingu.
Höfundur er sjúkraliði.
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
VEGUR ÞUNGT
ÞÉRTILLÉTTIS
enda er Létt og laggott sér á parti! Nú er tækifærið
til að laga línurnar: smyrja brauðið og grenna sig um
leið. Létt og laggott er nýtt viðbit sem er helmingi
fituminna en allt borðsmjörlíki.
Meö FIAT UNO sanna ítalskir hönnuðir rækilega hæfni sína. Hér fara
saman glæsilegt útlit og framtíöar tækni, mikil hagkvæmni og hámarks
notagildi.
Pað er ekki aö ástæðulausu aö FIATUNO ereinnmestseldi bíll-
inn í Evrópu. Hann er einfaldlega einstakur, þegar tekiö er tillit til
aksturseiginleika, útlits, öryggis, þæginda, og síðast en ekki síst, hvaö
þú færð mikið fyrir peningana.
Skelltu þér strax í reynsluakstur. Eftir það veistu nákvæmlega hvaö
verið er að tala um.
mm
Umboðið Skeifunni 8 s. 91-68 88 50