Morgunblaðið - 09.04.1987, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
61
Hugleiðingar um
sjálfstæðishugsjónina
eftir Ragnheiði
Ólafsdóttur
Ég hef setið þó nokkra landsfundi
Sjálfstæðisflokksins og geri þar af
leiðandi greinarmun á þeim. A sum-
um hafa menn skipst á skoðunum
með hávaða, á öðrum landsfundum
hefur verið einhuga samstaða.
Ég hef aldrei upplifað landsfund
eins og þann síðasta, 5.-8. mars sl.
Loftið var rafmagnað, en flokks-
forystan bað fólk að gæta stillingar,
þar sem stutt væri til kosninga, fjöl-
miðlafólk væri til staðar og þannig
yrði að sýna einingu út á við. Allir
þeir, sem voru óánægðir og reiðir
tóku tillit til þess. Hinn almenni borg-
ari vissi ekki, að megn óánægja var
með þennan landsfund en það kom
óspart fram í nefndarstörfum. Fólk
reyndi að sýna samstöðu út á við
með því að efna ekki til opinbers
uppgjörs um málefnaágreining á
sameiginlega fundinum. Eg var með-
al þeirra fjölmörgu, sem þetta gerðu.
En svo sannarlega sauð á fólki reiði
og vonbrigði, þar á meðal í mér og
tveimur ungum kvenframbjóðendum
Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi yfír því ofríki og ósvífni, sem
nefndarfólki um fjölskyldu- og jafn-
réttismál var sýnd af aðilum úr innsta
kjama flokkseigendaforystunnar. Ég
hef víða frétt af því, að í öðmm
nefndum var hvorki hlustað á fólk
né skoðanir þess virtar. Hvað var
þama á ferðinni? Ekki var það lýð-
ræði, svo er víst.
Það má benda á, að einni trúrri
og dyggri sjálfstæðiskonu, sem var
áheyrnarfulltrúi, var vísað af fundi
vegna sögusagna og rógburðar án
þess að hún gæti varið sig.
Einn góður vinur minn og mikill
stjómmálaspekúlant af Vesturlandi
sagði við mig að honum hefði flökrað
við þeirri sýndarmennsku, sem var
allsráðandi á landsfundinum.
Er Jón Magnússon
raunverulega hissa?
Ef Jón Magnússon, hdl. hefur
ekki tekið eftir andrúmsloftinu og
ágreiningnum, sem þama var eins
og kemur fram í grein hans í Morg-
unblaðinu 2. apríl sl. og virðist vera
hissa á stofnun Borgaraflokksins,
vil ég upplýsa hann og reyndar
fleiri um það, hvers vegna Borgara-
flokkurinn er stofnaður. Fjölmargt
Sjálfstæðisflokksfólk og reyndar
allur almenningur, sem ekki hefur
skipt sér mikið af pólitík, er orðið
langþreytt á ofríki og miðstýringu
hjá forystu Sjálfstæðisflokksins og
klíkuskapar innan hans og sjálfsagt
annarra flokka líka.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki
lengur til fyrir fólkið í þessu
landi eins og stendur í stefnuskrá
þess flokks: „Stétt með stétt" og
„frelsi einstaklingsins í fyrirrúmi",
heldur er fólkið til fýrir flokkinn.
Það er nógu gott til að greiða at-
kvæði sitt á kjördag.
Ef þetta fólk býður sig fram til
starfa og lætur skoðanir í ljós sem
ekki falla flokkseigendaforystunni
í geð hefur innsta klíka miðstýring-
arafls Sjálfstæðisflokksins mark-
visst stefnt að því að kæfa
sjálfstæðishugsjón þessa fólks með
framferði sínu, en ætlast samt til
að fá atkvæðin út á stefnu sem er
andstæð grundvallarhugsjón Sjálf-
stæðisflokksins.
Borgaraflokkurinn er stofnaður
á sama grunni og gamla sjálfstæð-
ishugsjónin. Hann er til fyrir fólkið,
og hann virðir skoðanir þess. Ein-
staklingsfrelsi til tjáningar og
framtaks sé í öndvegi og áhersla
lögð á samstarf fjöldans til átaka
í velferðarmálum íslensku þjóðar-
innar og gætt að reisn hennar í
samskiptum við aðrar þjóðir.
Sjálfstæðisflokkurinn
gerist sjálfstæðisfélag
Eftir öll þau ár, sem ég hef starf-
að í og fyrir Sjálfstæðisflokkinn hef
ég komið inn einni og einni setningu
í stefnuskrá hans.
í raun hafa landsfundafulltrúar
verið hafðir að fíflum með því að
stefna þeim til Reykjavíkur með
ærnum tilkostnaði fulltrúa til að
setja saman stefnuskrá, sem síðan
er sett í skúffu til næsta lands-
fundar. Á Alþingi framfylgja
þingmenn flokksins stefnunni ekki
nema að litlu leyti og þegar þeim
hentar. Samanber það að fella niður
tekjuskatt af almennum launatekj-
um á 4 árum o.fl. o.fl.
Auðvitað er gott að flokksmenn
hittist og skiptist á skoðunum en
Jón Magnússon þarf ekki að undra
stofnun Borgaraflokksins (enda veit
ég að hann gerir það ekki innst
inni).
Það eru ijölmörg ár sem hópur
fólks hefur verið óánægður innan
flokksins yfír þeirri ómannúðlegu
stefnu miðstýringar sem þar hefur
ríkt. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
sífellt fjarlægst fólkið í landinu og
nú síðasta kjörtímabil tekið upp
haftastefnu framsóknar í land-
búnaðar- og sjávarútvegsmálum
sem stuðlar eingöngu að meðal-
mennsku í þjóðfélaginu.
Jón Magnússon spyr: Brást Al-
bert GuðmUndsson stuðningsmönn-
um sínum? Mitt svar er: Sjálfstæðis-
flokkurinn brást öllu því
sjálfstæðisfólki sem nú fylkir sér í
Borgaraflokkinn, þar á meðal Al-
bert Guðmyndssyni. Hvers vegna?
spyr fólk. Jú, vegna þess að það
hefur aldrei af flokksforystunni í
Reykjavík og víðar út um land
Ragnheiður Ólafsdóttir
mátt taka á innanflokkságreiningi
og leysa hann mannúðlega áður en
allt hefur komist í óefni. Alþjóð sá
jú niðurstöður síðustu sveitarstjóm-
arkosninga þar sem Sjálfstæðis-
flokkurinn fékk víða afhroð. Það
hefur aldrei mátt hlusta á skoðanir
hins almenna flokksmanns, hvað
þá að taka tillit til þeirra.
Aðförin leiddi til stofn-
unar Borgaraf lokksins
Þegar Þorsteinn Pálsson kom
upp á Akranes til að tala við sjálf-
stæðisfólk þar sem kandidat í
formannskjöri sagði hann, að stefna
sín væri að sætta hin ólíku öfl inn-
an Sjálfstæðisflokksins.
Þar brást formaðurinn. Þessi
ungi maður, sem ég og fjölrnargir
aðrir trúðu á, hefur brugðist vonum
okkar, enda uppnuminn af rússn-
eskri kosningu á landsfundi. Aðför
hans að Albert Guðmundssyni leiddi
til stofnunar Borgaraflokksins. Þor-
steinn Pálsson hefur haft sér við
hlið misvitra ráðgjafa í þessu efni
sem hefur leitt til þess að Sjálfstæð-
isflokkurinn er nú endanlega klof-
inn undir forystu hans.
Höfundur var bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins á Akranesi síðasta
kjörtímabil. Er nú 14. sæti Borg-
araflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi.
millimetrar
og þú ert vindþéttur
Steinullarverksmiðjan hf. hefur hafið framleiðslu
á nýrri gerð einangrunar með vindþéttilagi,
Vindplötu
Vindplata er nýtt vindþéttilag ætlað til að verja
einangrun að utanverðu fyrir lofthreyfingum.
Vindplata er harðpressuð steinullarplata 25 mm
þykk með álímdum vindpappa. Vindplata einangr-
ar jafn vel og 25 mm þéttull og má því þynna aðra
einangrun sem því nemur.
Vindþéttilag þarf að standast miklar kröfur t.d.
þarf það að vera nægilega stíft til að halda við
einangrunarefnið, það þarf að þola veðurálag
sem þaðgetur orðið fyrir á byggingartímanum
og vera rakaþolið.
Vindplata frá Steinullarverksmiðjunni hf.
uppfyllir allar þessar kröfur.
Fæst í öllum helstu byggingarvöruverslunum
landsins.
Vindvörn og einangrun
íeinulagi.
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins hefur eftirlit
með allri framleiðslu Steinullarverksmiðjunnar hf.
STEINULLARVERKSMIDJAN HF