Morgunblaðið - 09.04.1987, Síða 63

Morgunblaðið - 09.04.1987, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987 Sólaéu á Pólódós fró Sanitas Sanitas MAGN- ÞRUNGNAR RAFHLÖÐUR Norræn listahátíð í Stirling eftir Guðmund Heiðar Frímannsson í Stirling í Skotlandi hefur staðið yfír í vetur norræn listahátíð, mjög glæsileg og fjölbreytileg. Hún hófst í ágúst sl. og stendur alveg fram í maí. Gestum í Stirling hefur gefízt kostur á að kynnast mörgu því bezta í list á Norðurlöndum í nútíð og fortíð. Sýningar hafa glatt augað og tónleikar örvað eyrað. Mac- Robert, listamiðstöðin í Stirling, hefur staðið fyrir þessu fyrirtæki og notið til þess stuðnings ýmissa fyrirtækja og stofnana á Norður- löndum og Norðurlandaráðs og Scottish Arts Council. Hátíðin hefur verið vel heppnuð í alla staði og vel sótt af almenningi. Eitt af því, sem vekur athygli manns hér á Bretlandseyjum, er verulegur stuðningur fyrirtækja við listir. Ég veit, að listamönnum fínnst það ekki nóg og þá uggir nokkuð um sinn hag, en samt sem áður er þetta meira áberandi hér en á íslandi til dæmis. Nokkur fyrir- tæki á íslandi hafa lagt nokkurt fé til listá og ber sennilega Flulgleiðir hæst. Því hef ég orð á þessu hér, að víðsýnir og snjallir fram- kvæmdamenn ættu að sjá, að það getur komið þeim sjálfum til góða að styðja listir og menningarstarf- semi. Þetta á sérstaklega við á erlendri grund. Til að efla virðingu og veg þjóðarinnar í umheiminum eru listir tilvalið tæki. íslenzkar vörur þurfa fyrst og fremst á því að halda, að fólk taki eftir þeim og trúi því, að þær séu vandaðar. Góð list er einföld leið til að ná því marki. Auðvitað fínnst listamönn- um sjálfum ekkert sérlega skemmtilegt, að þeir séu tæki ann- arra og eflaust telja sumir, að verið sé að lítillækka þá með því að líta á þá eins og hér hefur verið gert. En ég held, að það sé hreinn mis- skilningur. Þá mætti alveg eins segja, að sala á mynd eða bók sé lítillækkun á listamanni. Og það fellst varla nokkur maður á. Það er því ástæða til að hvetja íslenzka framkvæmdamenn til að leggja fé VERÐI DÖMUR OG HERRA Verð kr. 16.900,- IU // K SNORRABRAUT 56 SÍMI 1 35 05 Merki listahátíðarinnar. í listir og listkynningu erlendis. Þeir sjálfír hagnast á því, þótt það sé oft erfítt að mæla það í bein- hörðum peningum, og listamennim- ir fá aukin tækifæri á að spreyta sig í list sinni. Á þessari norrænu listahátíð hef- ur mátt sjá sýningu á myndum fínnska listamanninn Akseli Gall- en-Kallela við Kalevala-ljóðin. Einnig hefur mátt sjá veggspjöld eftir Bjöm Wiinblad frá Danmörku. Dansflokkur hefur komið frá Raa- tikko-leikhópnum í Finnlandi og Tukak-leikhópurinn hefur komið frá Danmörku en hann er uppmnn- inn á Grænlandi. Að sjálfsögðu hefur verið leikin tónlist eftir þtjú helztu tónskáld Norðurlanda: Grieg, Sibelius og Carl Nielsen. Osló- strengjakvartettinn, Strengjakvart- ett Síbelíusarakademíunnar og Kontra-kvartettinn frá Danmörku hafa leikið á tónleikum í MacRo- bert-listamið_stöðinni í Stirling. Framlag íslands á þessari nor- rænu listahátíð hefur einvörðungu verið í tónlist. í ágúst á sl. ári söng Hamrahlíðarkórinn og í maí mun Pétur Jónasson gítarleikari leika í Stirling. Hafliði Hallgrímsson sellóleikari og tónskáld hefur átt þijú verk, sem hafa verið flutt á tónlekum á þess- ari hátíð. Hamrahlíðarkórinn flutti miðhluta af kórverki hans, Triptych, og Pétur Jónasson mun frumflytja verk hans, Jakobsstig- ann, sem er sérstaklega samið fyrir Pétur. Og á tónleikum kammer- sveitarinnar Symphonium, undir stjóm Richard Honner, var frum- flutt verk hans, Næturskuggar, 16. marz sl. Það er fyrir víólu, selló og strengi og er tileinkað minningu Andrei Tarkovsky. Höfundur segir sjálfur, að þetta verk hafi verið samið sérstaklega fyrir Symphonium-hljómsveitina fyrir þessa tónleika á norrænu lista- hátíðinni. Síðan segir hann: „Ég var byijaður á þessu verki, þegar ég frétti af dauða Tarkovskys og ég fann mig þegar knúinn til að skrifa tónlist í minningu hans. Frumleiki og sýn kvikmynda hans hafði snort- ið mig djúpt og nýjasta mynd hans, Fómin, hafði verið mér mikil reynsla. Jafnvel þótt ég þættist viss um, ' að mér tækist ekki að nálgast list hans á þeim stutta tíma, sem ég hafði til að semja þessa tónlist, ákvað ég að sýna þakklæti mitt í minni dularfullu og erfiðu list, tón- listinni. Ég byijaði upp á nýtt og valdi verkinu heiti úr einu kvæða föður hans.“ Í Glasgow Herald segir Martin Wilson, tónskáld og hljómsveitar- stjóri, að verkið sé ekki einvörðungu sorgarljóð heldur sé í því skoðað af vemlegri leikni litir og hugar- ástand. „I verkinu, sem er átta mínútna langt, em tónlistin og formið bæði skýr og ljós. Hallgríms- son notar einfaldar leiðir og nær góðum árangri, sem er hægara sagt en gert. Hann hefur samið gott og verðmætt verk.“ Skotar leggja meira upp úr sam- bandi við norræna menn en aðrar þjóðir á Bretlandseyjum. Þessa sér ekki sízt stað í listalífi. Höfundur er fréttaritari Morgun blaðsins í Skotlandi. HRINGDU og fáðu áskriftargjöldin skuldfœrð á greiðslukorta- SIMINN ER 691140 691141

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.