Morgunblaðið - 09.04.1987, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
71
— Það er ekkert réttlæti að mis-
gengishópurinn og fómarlömb
okurvaxtastefnu ríkisstjómarinnar
séu skilin eftir í snöm vonlausra
skammtímaskulda meðan nýir lán-
takendur fá lán á niðurgreiddum
vöxtum til 40 ára.
Hverra er ábyrgðin?
í umræðum um þessi mái hefur
félagsmálaráðherra, Alexander
Stefánsson, reynt að skýla sér á
bak við milliþinganefnd um hús-
næðismál, sem hætti störfum fyrr
í vetur. Staðreyndin var að starfi
nefndarinnar var hætt þegar ljóst
var að oddviti sjálfstæðismanna í
nefndinni, Halldór Blöndal, mjmdi
leggjast gegn öllum veigameiri
breytingartillögum á þeim forsend-
um að með þeim væri verið að ijúfa
samninga á vinnumarkaðnum. Full-
trúar framsóknarmanna létu þetta
yfír sig ganga og skiluðu sameigin-
legu séráliti með sjálfstæðismönn-
um.
Því miður verður að segjast eins
og er að úrtölur Halldórs Blöndal
studdust við álit þeirra fulltrúa ASÍ
sem komu fyrir nefndina. Þeirra
sjónarmið var að fá þyrfti tveggja
ára rejmslu af húsnæðiskerfínu í
núverandi ástandi áður en það yrði
endurskoðað frekar. Nú blasir við
að eftir tvö ár verður búið að gefa
út innistæðulausa tékka sex til tíu
ár fram í tímann og það er viðbúið
að orka ráðamanna næstu árin fari
í það að redda peningum í hítina
og að viljinn til þess að gera lagfær-
ingar sem hafí áhrif hálfum eða
heiium áratug seinna verði heldur
takmarkaðar.
„Nú blasir við að eftir
tvö ár verður búið að
gefa út innistæðulausa
tékka sex til tíu ára
fram í tímann og það
er viðbúið að orka ráða-
manna næstu árin fari
í það að redda pening-
um í hítina.“
Hvað er til ráða?
Ný ríkisstjóm, sem tekur við
völdum eftir kosningar verður að
einhenda sér á endurskoðun hús-
næðiskerfísins með eftirfarandi
markmið í huga:
1. Núverandi lánakjörum verði
viðhaldið gagnvart þeim, sem eru
að eignast húsnæði í fyrsta sinn eða
þurfa að stækka við sig vegna fjöl-
skyldustærðar. Lán og úthlutanir
verði að öðru lejrti sniðin eftir þörf-
um einstaklinga og fjölskyldna en
ekki eins og nú spreðað út í ein-
hvers konar lífeyrissjóðslottói.
2. Ríkisstjómin standi við sinn
hlut í fjármögnun húsnæðiskerfís-
ins þannig að sjóðimir brenni ekki
upp í vaxtaniðurgreiðslur eins og
nú stefnir í.
3. Sérstöku Qármagni verði veitt
til byggingar leighúsnæðis og bú-
seturéttaríbúða. Samkvæmt nýlegri
könnun Húsnæðisstofnunar ríkisins
er þörf fyrir um 3.500 leiguíbúðir
í landinu. Einnig verður að hafa í
huga að þótt núverandi kerfi geri
fólki kleift að tímasetja íbúðakaup
Tískusyning_
í kvöld kl. 21.30 jÉÉé
Æk
MODELSAMTÖKIN
sýna
KASKÖ
skemmtir.
Sænska blús og rokkhljómsveitin
SWEET PAIN
Ein vinsælasta blús og rokkhljómsveit Svía verða með
tónleika hjá okkur alla helgina.
Missid ekki af þessu
einstaka tækifæri.
Sjáumst hress.
sín m.t.t. útborgunar lána stoðar
það lítt ef fólk er rekið út í ótíma-
bærar íjárfestingar vegna þess að
ekki er völ á leiguhúsnæði. Slíkar
aðstæður eru ekki annað en ávísun
á áframhaldandi skriðu nauðungar-
uppboða.
3. Koma þarf lögum jrfír bankana
þannig að greiðslubyrði þeirra við-
bótarlána, sem þeir veita, verði
ekki íbúðarkaupendum ofviða.
íbúðarkaupandi sem slær eina millj-
ón í skammtímalán í bönkum til
þess að brúa umframþörf sína getur
lent í um 40 þúsund króna mánað-
arlegri greiðslubyrði til viðbótar
afborgunum af húsnæðismála-
stjómarláninu.
4. Gera þarf ráð fyrir því fólki
sem enn berst í bökkum vegna
skammtímaskulda og vegna kjara-
skerðingar og okurvaxtastefnu
núverandi ríkisstjómar. Söluskatts-
stiginu sem lagt var á til þess að
koma til móts við þetta fólk sem
ríkisstjómin stal undan við síðustu
fjárlagagerð verður að nota til þess
að greiða götu þessa fólk með
skuldbreytingum lána þeirra yfir á
hin nýju kjör húsnæðisstofnunar og
til þess að létta undir með þeim sem
hafa sokkið dýpra í skuldafenið
vegna óhóflegrar vaxtabyrði og
verðtryggingar á sama tíma og laun
vom stórlega skert með valdboði.
Þetta má gera með sérstökum
skattaafslætti.
Okurglæparéttarhöld
Þrátt fyrir allar bætur til handa
því fólki sem á undanfömum árum
hefur glatað eignum sínum og
lífshamingju vegna stefnu ríkis-
stjómarinnar stendur eftir sú
spuming hvemig stjómarherramir
verði dregnir til ábyrgðar fyrir mis-
gjörðir sínar þannig að það verði
komandi kynslóðum stjómmála-
manna þarft eftirdæmi. Við skulum
líta á komandi kosningar sem okur-
glæparéttarhöld alþýðunnar jrfír
þessum mönnum og vera minnug
þess að hvert atkvæði greitt Al-
þýðubandalaginu er þar ' lóð á
vogarskál réttlætisins.
Höfundur er verkfræðingur og
skipar 6. sæti G-listans í
Reykjavík.
Kir Royale.
Rækjupönnukökur.
Grafín nautalund.
Melónukrap m/brennivíni.
Fylltur kalkún mAValdorfsalati.
Súkkulaðifrauð m/Irish mist.
' n
BORÐAPAIMTANIR í SÍMA 29499