Morgunblaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
75
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Áfengisauðvaldið spyr
ekki að tilfinningnm
Kæri Velvakandi.
Afengisauðvaldið spyr ekki að
tilfinningum annarra. Þessi orð
komu mér í hug þegar ég heyrði
um nýjustu aðferðir eiturlyfja-
smyglara til að koma þessum
alvarlegu efnum á framfæri. Þar
er engu til sparað og harðneskja
og peningagræðgin, falsið og flá-
ræðið á fullu spani. Við tölum um
eyðni. Uggvænlegasta sjúkdóm sem
enn hefir komið upp og menn
standa agndofa yfir. En skyldi ekki
upphaf þessarar plágu liggja í eitur-
efnum og öllu því siðleysi sem því
fylgir.
Þetta er íhugunarefni. Skyldi
ekki vera besta lausnin á baráttu
við þennan sjúkdóm að vinda sér í
upphaf og orsakir, ráðast á upp-
sprettuna, vímuefnin? í eyðni er
kannski ein tegund af „gróða“
áfengisins og vímunnar. Hafa menn
hugleitt það?
Þegar svo þeir sem ánetjast þess-
um vímuefnum hafa eytt því
fijómagni, sem lífið gaf þeim, verð-
ur samfélagið að taka við og koma
til hjálpar sem í flestum tilfellum
er þá orðið mjög seint. Á meðan
áfengis- og vímuefnagróðinn
streymir í sjóði og púkinn á fjós-
bitanum hefir aldrei verið feitari en
nú, horfa heilbrigðir menn til fram-
tíðarinnar með ugg og hafandi
þessar veitur jafn óstöðvandi í far-
vegi hollra hátta. Þetta er stað-
reyndin sem skiptir máli.
Að upphafi skal líta og þökk sé
þeim sem hafa áttað sig á þessari
óheillaþróun.
Lionshreyfingin á íslandi hefir
tekið þessi alvarlegu mál til bar-
áttu. Eg hefi veitt því athygli að
menn, sem að baráttunni standa,
höfðu aldrei gert sér grein fyrir að
þetta böl væri eins alvarlegt og
slungið eins og það er í raun og
veru; höfðu ekki ímyndað sér hversu
barátta fyrir afnámi og varnaði
þessara eiturefna væri mikil. En
þar verða ekki lagðar árar í bát.
Þá má ekki gleyma því að trúin á
Jesúm Krist og hans boðskap lyftir
björgum í sambandi við björgun
þeirra sem undir hafa orðið fyrir
þessu eitri. Þar sannast svo áþreif-
anlega að Kristur meguar að frelsa.
Frelsa frá þessum eiturlindum. Þar
er lífið, þar eru þau verðmæti sem
gefa lífinu allt gildi í þessum kalda
heimi. Efling hins sanna og eina
kristindóms er ávísun á bjarta og
góða framtíð. Það sér maður svo
víða. Guð gefi þarpikla uppskeru.
Árni Helgason
Klapplið á
framboðs-
fundum
Reið dreifbýliskona skrifar:
Þessa dagana er verið að útvarpa
framboðsfundum úr hinum ýmsu
kjördæmum landsins. Öllum hlýtur
að þykja eðlilegt að stuðningsmenn
flokkana safnist um sína menn og
styðji þá en þó sýnist sitt hverjum
um framgöngu sumra þeirra. Þó
keyrir um þverbak þegar borgara-
flokkurinn mætir á þessa fundi með
klapplið í rútu frá Reykjavík. Því
spyr ég, ér raunverulegt fylgi
flokksins út á landi svo lítið að
þeir þurfi að nota utankjördæmis-
fólk til að hvetja sína menn? Þetta
minnir óneitanlega á ameríska
íþróttakeppni, það vantar bara
dansandi píur í stuttum pilsum.
„Hafa menn velt því fyrir sér hverju Sjálfstæðisflokkurinn
hefur áorkað í skattamálum á síðustu mánuðum? Eftir ára-
tuga ráðleysi hefur staðgreiðsla orðið að veruleika undir
forystu Þorsteins Pálssonar. Allir flokkarnir áttu fjármála-
ráðherra, sem gátu komið á staðgreiðslu, en gerðu ekkert.
Framkvæmd í stað fagurgala.
Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að honum er einum
treystandi til að takast á við verðbólguna. Reynslan af
vinstri stjórnum er ömurleg. Viljum við aftur 130% verð-
bólgu?
Niðurstaða mín er einföld: Öflugur Sjálfstæðisflokkur er
forsenda þess að haldið sé uppi ábyrgri og markvissri
stjórn á efnahagsmálum þjóðarinnar."
Bergur Guönason, lögmaður.
Á RÉTTRI LEIÐ x-D
Iheilræði
Ökumenn:
Á tímum hálku og erfiðra aksturskilyrða verður að gæta ítrustu
varkárni við aksturinn.
Lélegir og slitnir hjólbarðar auka stórlega líkur á óhöppum þar
sem ökumaður getur misst stjórn á ökutækinu eða nær ekki að
stöðva þegar skyndilegar hindranir verða á veginum. Hafið ökutæk-
in sem best búin til vetraraksturs.
Hvað er venja að gera
fyrir umboðsmenn?
Ráðamenn þjóð-
arinnar taka
mikla áhættu
Til Velvakanda.
í byijun desember sl. urðu nokkr-
ar umræður um væntanlegan
kjördag 1987. Birti ég þá í þessu
blaði þá tillögu að kosið yrði 23.
maí og þingmenn framlengdu um-
boð sitt um 30 daga með þingálykt-
un (sbr. 1940). Nú hefir þingið
ákveðið að hafa kjördag 25. apríl
og þar með sýnt ábyrgðarleysi.
Lengst af man ég fyrstu sumar-
helgina, sem árvissa illviðrahelgi.
Og eftir það óvenjulega veðurfar,
sem verið hefur frá áramótum, tel
ég ennþá meiri hættu á stórviðrum
um sumarmálin.
Hefði kjördagur verið mánuði
seinna hefði þingið getað staðið
fram að páskum og ekki þurft að
afgreiða þýðingarmikil lög með
„forgangs hraði“ af úrvinda þing-
mönnun á næturfundum. Þá fellur
öll blaðaútgáfa niður í sex daga af
níu síðustu dögum fyrir kjördag,
vegna páskanna.
Ekki get ég ársett þau skaðaveð-
ur, sem ég minnist á þessum
árstíma. En sjálfsagt minnast
margir páskaáhlaupsins 1963 eftir
langan góðviðriskafla, sem eyði-
lagði tijágróður um allt Suðvestur-
land, sem sér enn merki. Vil ég að
lokum taka upp veðurfarslýsingu
frá öldinni sem leið úr annál
nítjándu aldar svohljóðandi: „Á
Suðurlandi fraus ekki að mun fyr
en eftir páska. 30. marz gerði þar
stillingar og blíðviðri. En 10. apríl
tók að frysta með norðanátt og
hríðum og 24.-26. apríl var ofviðri
svo mikið, að þess eru fá dæmi.
... eigi var betra vestra því heita
mátti, að þar væru óslitnar hríðir
frá 10. apríl til 6. maí.“
Vonandi kemur ekki til stór-
felldra vandræða vegna veðurfars
25. apríl nk. En hér hafa ráðamenn
þjóðarinnar tekið mikla áhættu að
þarflausu sem gæti orðið dýrkeypt.
„Teikn oss gefur tíð ósær
tímans vefur kljáður.
Skaltu ei efa að skéð en fær
skéð, sem hefir áður.“
Sigurjón Sigurbjörnsson
Til Velvakanda.
Svo er helst að skilja að mistök
Alberts Guðmundssonar í sambandi
við skattaskil hafi að einhveiju leyti
verið þau, að honum hafi láðst að
telja sér til tekna endurgreiðslu á
hluta af flutningskostnaði. Þar sé
um að ræða flutningsgjald fyrir
áfengi, sem ÁTVR hafi greitt, en
afsláttur hafi síðan verið sendur
umboðsmanninum, — í þessu tilfelli
Heildverslun Alberts Guðmunds-
sonar.
Nú veit ég ekki hvað venja er
að gera mikið fyrir umboðsmenn
áfengistegunda. Því spyr ég: Er það
venja að skipafélag það, sem fær
áfengi til flutnings, endurgreiði
umboðinu af því flutningsgjaldi sem
ÁTVR hefur greitt svo sem þóknun
fyrir að hafa notið viðskiptanna?
H.Kr.
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Valhöll,
Háaleitisbraut 1,3. hæð
Símar: 689004 - 689005 - 689006
Utankjörstaðakosning ferfram hjá borgarfógetanum í
Reykjavík í Ármúlaskóla alla daga frá kl. 10-12,14-18
og 20-22 nema sunnudaga og aðra helgidaga kl. 14-
18. Lokaðföstudaginn langa og páskadag. Skrifstofan
gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að kosn-
ingunum. Aðstoð við kjörskrárkærur.
Sjálfstæðisfólk! Hafið samband við skrifstofuna ef
þið verðið ekkí heima á kjördag.
VARA]
U VER
igar í síma 1621566
Og nú erum við í Borgartúni 28
EUORNINN HF
Borgartún 28 — sími 621566
Reykjavík
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásKjum Moggans!