Morgunblaðið - 09.04.1987, Side 80
STERKTKDRT
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Póstmenn
sömdu á
miðnætti
SAMNINGANEFNDIR ríkisins
og' póstmanna höfðu á miðnætti
náð samkomulagi um nýjan
kjarasamning. Búist var við und-
irritun í nótt. Búist var við að
verkfalli póstmanna, sem hefjast
átti á miðnætti, yrði frestað.
Samningurinn er að sögn Indriða
H. Þorlákssonar, formanns
samninganefndar rikisins, mjög
á svipuðum nótum og samningur-
inn við Starfsmanrtafélag ríkis-
stofnana. Þá náðist einnig
samningur við Félag tækniskóla-
kennara, sem er aðili að BHM.
Indriði sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkveldi að þeir sem
iengju mestar kjarabætur af póst-
mönnum væru bréfberar, en þó
væri ekkert starfsheiti sem skæi’i
sig sérstaklega úr, hvað hækkanir
varðar. Þá var einnig undirritaður
samningur við Félag tækniskóla-
kennara, og Indriði kvaðst telja
markverðast við þann samning að
launatryggingarákvæði væru óbreytt
frá öðrum samningum sem náðst
hafa.
Verkfall múrara skall á á mið-
nætti síðastliðnu og hefur enginn
iúndur verið boðaður í deilu þeirra.
Sáttafundur hefur ekki verið boðað-
ur með símamönnum, en nú er búist
við slíkri boðun, eftir að samningar
við póstmenn hafa tekist.
Guðlaugur Þorvaldsson, ríkis-
sáttasemjari, hefur boðað sátta-
fundi í dag með háskólastéttum í
verkfalli og samninganefnd ríkisins,
og hefst fyrsti fundurinn kl. 15.30.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Laxinn slægður og hreinsaður í Gullvik hf.
LAXISLA TRAÐIGULL VIK
Grindavík.
SLÁTRUN á laxi er hafin hjá
fiskvinnslufyrirtækinu Gullvík
hf. í Grindavík, en þar var slátr-
að tveimur tonnum fyrir laxeld-
isstöðina Eldi hf. sl. þriðjudag.
Forráðamenn Gullvíkur hf.
hafa sérhæft stöðina til laxa-
slátrunar í samráði við forráða-
menn íslandslax hf., en þar
mun slátrun hefjast á næstunni.
„Við Grindvíkingar eigum að
leggja metnað okkar í að þessi
vinna fari ekki til annarra byggð-
arlaga enda er hér um að ræða
verkefni, sem verður í gangi allt
árið, en ekki í þijá, íjóra mánuði
eins og hefðbundnar vetrarvertíð-
ir. Við höfum komið upp hjá okkur
sérstakri aðstöðu til að slægja og
pakka laxinum og verður þeirri
vinnu sinnt jafnhliða annarri fisk-
vinnslu," sagði Ágústa Gísladóttir
hjá Gullvík í samtali við fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
Jón Pétursson, framkvæmda-
stjóri Eldis hf., sagði að laxinn
yrði sendur til prufu á markað í
Hollandi og dreift um nágranna-
löndin á vegum íslenska markaðs-
félagsins, sem er nýtt fyrirtæki í
útflutningi.
Kr.Ben.
Tap Járnblendiverksmiðjunnar 1986 212 milljónir:
Verðið getur aðeins
hækkað úr þessu
Islands-
titlinum
fagnað
ÍÞRÓTTAMAÐUR Reykjavíkur
og fyrirliði Víkings, Guðmundur
Guðmundsson, tók í gærkvöldi
við nýjum íslandsbikar í hand-
knattleik. Víkingar töpuðu
reyndar síðasta leik sínum í 1.
deildinni, gegn KA, en höfðu
fyrir nokkru tryggt sér titilinn.
Magnús L. Sveinsson, forseti
borgarstjórnar, afhenti bikar-
inn, sem Reykjavíkurborg gaf.
Sjá nánar á íþróttasíðum.
— segir Paul Falch upplýsingafull-
trúi Elkem í Osló um verð á járnblendi
TAP íslenska járnblendifélags-
ins á Grundartanga nam 212
milljónum á sl. ári, sem jafngild-
ir 17,5% af veltu fyrirtækisins,
samkvæmt íslenska reikningn-
um. Jón Sigurðsson, forstjóri á
Grundartanga, sagði i samtali við
Morgunblaðið að markaðsverð
þyrfti ekki að hækka nema um
10% til þess að afkoman yrði já-
Fiskafli fj ór ðungi meiri
en á sama tíma síðasta ár
FISKAFLI landsmanna fyrsta
ársfjórðunginn varð 665.053 lest-
r—“ív •' og hefur sjaldan eða aldrei
verið meiri á þessum tíma. Aflinn
er fjórðungi meiri en á sama tíma
í fyrra, þrátt fyrir verkfall sjó-
manna í janúar. Munar þar mestu
um aukinn loðnuafla, 139.404
lestum meiri en á sama tíma í
fyrra. Aflinn í marz varð nær
helmingi meiri en í fyrra og þar
■‘•••oar einna mest um loðnu, en
þorskafli í marz nú varð einnig
meiri en í fyrra samkvæmt
bráðabirgðatölum Fiskifélags Is-
lands.
Þess ber að geta við samanburð
á aflamagni, að mestu munar um
loðnu. Hún er hins vegar mun verð-
mætari afurð nú en í fyrra vegna
þess hve mikið af loðnu og loðnu-
hrognum var fryst. Verðmætin hafa
því aukizt verulega milli áranna.
Heildaraflinn varð eins og fyrr
segir 665.053 lestir nú á móti
532,031 í fyrra. Nú öfluðust
484.626 lestir af loðnu, 345.222 í
fyrra, 116.675 af þorski, 118.025
í fyrra og 54.819 Iestir af öðrum
botnfiski, en 57.899 í fyrra.
I marz nú öfluðust 214.258 lest-
ir, en 109.974 í fyrra. Af loðnu
fengust nú 134.708 lestir, en
36,181 í fyrra. Af þorski fengust
54.382 lestir en 45.625 í fyrra og
af öðrum botnfiski fengust 22.777
lestir nú, en 25.545 í fyrra.
Langmestur afli barst á land í
Vestmannaeyjum fyrstu þijá mán-
uði ársins, 109.663 lestir. Þar af
var loðna 98.153 lestir. Næsthæstu
löndunarhafnir voru Seyðisfjörður
með 62.661 lest, Eskifjiirður með
50.965, Neskaupstaður með 41.731
og Grindavík með 41.230 lestir.
Mest af þorski barst á land í Ól-
afsvík, 6.702 lestir, á Hornafirði,
6.099 og í Keflavík 6.000 lestir.
kvæð og stjórnendur Elkem í
Osló, sem á 30% í verksmiðjunni
á Grundartanga, segjast telja að
verðið geti aðeins farið hækk-
andi úr þessu.
Hlutabréf Elkem á verðbréfa-
markaði í Osló hafa hækkað um
16 norskar krónur frá áramótum,
eða úr 90 norskum krónum í 106.
í fyrradag hækkuðu þau um 5
norskar krónur. Samtals hafa
hlutabréf í Elkem því hækkað um
tæp 18% frá áramótum.
Paul Falch, upplýsingafulltrúi
Elkem, sagði í samtali við Jan Erik
Laure, fréttaritara Morgunblaðsins
í Osló: „Við lítum ekki á þessa
hækkun sem vísbendingu um betri
markaðshorfur fyrir afurðir okkar
hvorki hér í Noregi né frá verk-
smiðjunni á Grundartanga, þar sem
við eigum 30% hlut.“ Falch sagði
jafnframt að stjórnendur Elkem
teldu að verð á járnblendi yrði ekki
lægra en nú er. „Ég trúi því að við
séum á botni þess öldudals og héð-
an í frá geti verðið aðeins farið
hækkandi,“ sagði Falch, „ég trúi
því að það verði bráðlega, án þess
þó að vilja eða geta tímasett það
nokkuð frekar."
Sjá nánar frétt um afkomu
íslenska járnblendifélagsins á
bls. 4.