Morgunblaðið - 22.04.1987, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987
61
Útlit fyrir spennandi
íslandsmótsúrslit
gurður Sverrisson og Jón Baldursson sigurvegarar mótsins og
i„:___i__
íleigendur
Bræðurnir Hermann og Ólafur Lárussynir misstu af efsta sætinu í
lokaorrustunni og fengu „aðeins“ 100 þúsund kr. í verðlaun. Milli
þeirra stendur Stefán Pálsson einn af forsvarsmönnum mótsins en
hann afhenti verðlaunin.
Mjðg margir aðilar styrktu
mótshaldið. Auk þeirra sem áður
er getið má nefna Skeljung, Kvos-
ina, Hallargarðinn, matsölustað-
inn Við sjávarsíðuna, Almenna
bókafélagið, Nóa og Síríus, Úlfar
og Ljón, I. Guðmundsson o.m.fl.
Vert er að þakka hinum ungu
athafnamönnum í BR fyrir ágætt
mót með von um svipað framhald.
__________Brids_____________
Guðmundur Sv. Hermannsson
ÚRSLIT íslandsmótsins í sveita-
keppni sem hefjast í kvöld á
Hótel Loftleiðum hafa alla burði
til að verða mjög jöfn og spenn-
andi og ómögulegt er að spá með
nokkru öryggi hvaða sveit stend-
ur uppi sem sigurvegari í móts-
lok.
Töfluröð sveitanna átta sem unn-
ið hafa sér rétt til þátttöku í úrslitin-
unum er þessi:
1. Sigurður Steingrímsson
2. Samvinnuferðir-Landsýn
3. Polaris
4. Ólafur Lárusson
5. Delta
6. B.M. Vallá
7. Aðalsteinn Jörgensen
8. Sigtryggur Sigurðsson
Fyrsta umferð mótsins verður í
kvöld klukkan 20 og þá spila saman
sveitir Sigurðar og Sigtryggs, Sam-
vinnuferða og Aðalsteins, Polaris
og B.M. Vallá og Delta og Ólafs.
Sennilega mun leikur Samvinnu-
ferða og Aðalsteins vekja mesta
athygli í þessari lotu.
Onnur umferð hefst klukkan 10
á fimmtudagsmorgun og þá spila
saman Sigurður og Samvinnuferðir,
Polaris og Aðalsteins, Ólafs og B.M.
Vallá og Delta og Sigtryggs. Þarna
gætu þrír síðasttöldu leikirnir allir
orðið spennandi.
Þriðja umferð hefst klukkan 16
á fimmtudag og þá spilar Sigurður
við Polaris, Samvinnuferðir við Sig-
trygg, Ólafur við Aðalstein og Delta
við B.M. Vallá. Spilamennskunni
er síðan ekki alveg lokið þennan
dag því um kvöldið klukkan 22.30
hefst fyrri hálfleikur í 4. umferðinni
og þá spila saman Sigurður og Ólaf-
ur, Polaris og Samvinnuferðir,
Delta og Aðalsteinn og Sigtryggur
og B.M. Vallá. Þarna er aðalleikur-
inn milli ferðaskrifstofusveitanna
en aðrir leikir gætu verið þýðing-
armiklir.
Spiiamennskan hefst klukkan 10
á föstudagsmorgun og þá verður
spilaður seinni hálfleikur 4. um- -
ferðar. Fimmta umferð hefst síðan
klukkan 13 og þá spila sveitir Sig-
urðar og Delta, Samvinnuferða og
Ólafs, Polaris og Sigtryggs og Aðal-
steins og B.M. Vallá.
Sjötta umferðin hefst síðan
klukkan 20 um kvöldið og þá spila
saman sveitir Sigurðar og B.M.
Vallá, Samvinnuferða og Delta,
Polaris og Ólafs og Sigtryggs og
Aðalsteins. Þarna ætti aðalleikur-
inn að verða milli Samvinnuferða
og Delta en aðrir leikir gætu orðið
spennandi allt eftir því hvernig
staðan er í mótinu.
Síðasta umferðin hefst síðan
klukkan 13 á kosningadaginn, laug-
ardaginn 25. apríl. I þessari síðustu
umferð spila saman sveitir Delta
og Polaris en sá leikur ætti að vekja
mesta athygli. Aðrir leikir eru milli
Sigurðar og Aðalsteins, Samvinnu-
ferða og B. M. Vallá, og Sigtryggs
og Aðalsteins.
Eins og sést er dagskráin mjög
knöpp og því gæti úthaldið skipt
talsverðu máli í úrslitunum en allar
sveitirnar hafa á að spila að minnsta
kosti fímm spilurum. Þá er það .
nýmæli að einum leiknum er skipt
á tvo daga sem kemur sjálfsagt til
með að mælast misjafnlega fyrir.
A SPARNAÐUR ÞINN STANDI Á TRAUSTUM GRUNNI
✓
I sparnaði er ekkert mikilvægara en örugg og
traust undirstaða. Mikil hagnaðarvon getur á
svipstundu orðið að engu sé öryggið ekki
tryggt. Spariskírteini ríkissjóðs eru ótvírætt
öruggasta og traustasta fjárfesting sem þér
býðst, því að baki þeim stendur öll þjóðin.
Auk þess tryggja spariskírteini ríkissjóðs þér
háa raunávöxtun til margra ára, fullar verð-
bætur og þú getur selt skírteinin þegar þér
hentar.Þú átt ekki kostátraustarifjárfestingu.
r r
RIKISSJOÐUR ÍSLANDS