Morgunblaðið - 22.04.1987, Qupperneq 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRIL 1987
Minning:
Sveinbjörn Egilsson
útvarpsvirkjameistari
Fæddur 28. nóvember 1907
Dáinn 10. apríl 1987
Sveinbjörn Egilsson útvarps-
virkjameistari lést í Borgarspítalan-
um hinn 10. apríl sl., 79 ára að
aldri. Hann hafði átt við nokkra
vanheilsu að stríða síðustu fjögur
ár, en var þó vel ern, fylgdist prýði-
lega vel með og hafði fótavist allt
fram undir það síðasta. Utför hans
verður í dag í Dómkirkjunni kl.
15.00.
Sveinbjörn var ættaður frá Múla
í Biskupstungum, sonur Egils
Sveinssonar Jónssonar bónda þar
og Sigríðar Jónsdóttur konu hans.
Ný öld, tækniöld, var þá byrjuð
og hugur Sveinbjarnar stefndi frá
unga aldri að því marki að ná tökum
á þeim nýjungum, sem þá voru að
halda innreið sína hér á landi. Fyrst
lærði hann til loftskeytamanns og
síðai- útvaipsvirkjun og hlaut meist-
araréttindi í þeirri iðn. Hann varð
stöðvarstjóri Vatnsendastöðvarinn-
ar 1928 og tók þátt í uppsetningu
stöðvarinnar. Hann gegndi því
starfi þar til 1943. Sveinbjörn var
pví stöðvarstjóri Vatnsendastöðvar-
innar, þegar ríkisútvarpið hóf
starfsemi sína árið 1930.
Frá árinu 1943 rak hann sitt eig-
ið radíóverkstæði á Óðinsgötu 2,
fyrst í félagi við Magnús Jóhanns-
son útvarpsvirkjameistara (sem nú
er starfsmaður Alþingis) og síðar
með syni sínum, Ulfari, meðan
heilsa og kraftar entust.
Þótt ég geti aðeins fjallað af af-
spurn um fyrri æviár Sveinbjarnar,
leikur ekki vafi á því, að hann naut
mikils trausts og virðingar í sinni
sérgrein og það hlýtur að hafa ver-
ið honum mikil lífsfylling að taka
þátt í annarri eins tæknibyltingu
og hér átti sér stað á hans mann-
dómsárum og vera jafnvel braut-
ryðjandinn á því sviði.
A Óðinsgötu 2 var einnig heimili
Sveinbjarnar heitins og eftirlifandi
eiginkonu hans, Rannveigar Helga-
dóttur. Voru þau hjónin einkar
samrýnd og stafaði sérstakri birtu
og hlýju frá því glæsilega heimili.
Einnig byggðu þau hjónin sér sum-
arbústað á Iðu í Biskupstungum og
dvöldust þar oft langdvölum, enda
var það þeirra annað heimili að
sumrinu.
Fjölskylda mín og ég áttum því
láni að fagna að kynnast þeim
Sveinbirni og Rannveigu fljótlega
eftir að við fluttumst heim frá út-
löndum. Atvikin höguðu því þannig,
að eftir heimkomuna vann ég um
tíma hjá Loftleiðum hf. og þar
kynntist ég yngri dóttur þeirra
Sveinbjarnar, Oglu, sem þá starfaði
sem ritari hjá fyrirtækinu. Hún
hafði dvalist um árabíl í Chile hjá
frænku sinni, Maríu Helgadóttur
Knoop, og manni hennar, Robert
t
Bróðir okkar og stjúpfaðir,
JAKOB LOFTSSON,
áður til heimilis á Hringbraut 76,
lést á Hrafnistu, Reykjavík, laugardaginn 18. apríl.
Ágúst Loftsson, Jón Guðmundsson,
Einar Loftsson, Maria Á. Guðmundsdóttir,
Guðmundur Loftsson, Sigrún Guðmundsdóttir,
Ingvar Loftsson,
Sigurbjartur Loftsson.
f
SIGRÍÐUR INGIMUNDARDÓTTIR,
Austurtúni 12,
Álftanesi,
verður jarðsungin frá Bessastaðakirkju í dag, miðvikudaginn 22.
apríl, kl. 13.30.
Finnur Guðmundsson,
Hildur Finnsdóttir,
Gunnar Finnsson,
Eiríkur Finnsson,
Ingimundur Hjörleifsson,
Gunnar Gunnarsson,
Sigrfður Halldórsdóttir,
Hafdfs Þorvaldsdóttir
og barnabörn.
Blómabúðin
Hótel Sögu
sími12013
Blóm og
skreytingar
gjafavörur
heimsendingar-
þjónusta
Laugavegi 61
Blóma- og gjafavöruverslun
Kransar, kistuskreytingar, hvers
konar skreytingar og gjafir.
Gæfan fylgir blómum og gjöfum
úr Stráinu. Opið um helgar.
Sími 16650.
Legsteinar
Við erum fluttir
'Umíl &.(.
Kársnesbraut 112, Kóp. S: 641072.
Opið frá kl. 15-19.
Knoop, sem þá var ræðismaður ís-
lands í Chile. Agla var mikil
málamanneskja, talaði reiprennandi
spænsku, þýsku og ensku, auk
Norðurlandamála. Tókst með okkur
konu minni og Öglu mikil vinátta
og einnig lét hún sér mjög annt um
börn okkar hjóna. í framhaldi af
þessu tókust órofa kynni við for-
eldra Öglu og systkini.
Árið 1965 lést Agla á ferðaiagi
í Chile, aðeins 29 ára gömul. Hún
hafði átt við hjartamein að stríða
allt frá fæðingu og aldrei gengið
heil til skógar, þótt ekki sæjust
þess nein merki. Það hafði einmitt
þá nýlega verið ákveðið að hún
gengist undir aðgerð til lækningar
þessu meini í Bandaríkjunum. Voru
miklar vonir bundnar við þessa
hjartaaðgerð og loks hillti undir að
bati fengist. En enginn ræður sínum
næturstað og meðan hún beið eftir
sjúkrahúsvist kom kallið. Agla
Sveinbjörnsdóttir varð öllum harm-
dauði, sem hana þekktu. Og má
nærri geta, hvílíkur harmur var að
foreldrum og systkinum hennar
kveðinn við þetta áfall.
Önnur böm þeirra Sveinbjörns
og Rannveigar eru Kristín, sem
lengi var ritari í dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu og sá um árabil
um óskalög sjúklinga í ríkisútvarp-
inu, nú gift Þorgeiri Þorsteinssyni,
lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli,
Úlfar, útvarpsvirki, kvæntur
Kristínu Steingrímsdóttur og Helgi
kvikmyndatökumaður, sem lengi
starfaði hjá sjónvarpinu, nú garð-
yrkjubóndi á Iðu, kvæntur Björgu
Ólafsdóttur.
Sveinbjörn heitinn var velviljaður
maður og hreinskiptihn. Hann var
einarður í skoðunum, hvort sem um
var að ræða menn eða málefni.
Hann fylgdist af lifandi áhuga með
framvindu mála á öllum sviðum
þjóðlífsins og tækniframfarir lét
hann ekki fram hjá sér fara. Kynni
okkar beggja af Suður-Ameríku
áttu drjúgan þátt í vináttu okkar
og áttum við þetta sameiginlega
áhugamál um nær þriggja áratuga
skeið.
Ekki get ég látið hjá líða þegar
ég hugsa um höfðingsskap og alúð
þeirra Sveinbjarnar og Rannveigar,
að minnast þess hvernig þau
greiddu götu námsmanns frá Chile,
sem hingað kom til að nema norræn
fræði við Háskóla íslands. Eduardo
Barriga eða Eddi eins og við kölluð-
um hann ævinlega, kom hingað
með meðmælabréf frá systur Rann-
veigar, Maríu Helgadóttur Knoop,
sem þá var ræðismaður íslands í
Chile (hún lést árið 1983). Voru
þau hjónin stoð hans og stytta hér
á landi uns hann lauk fullnaðar-
prófi. Lét Eddi þess oft getið við
mig, að sú hvatning og umhyggja,
sem þau hjónin sýndu honum, hefði
vafalítið ráðið úrslitum um það, að
hann lauk hér námi.
Nú, þegar komið er að kveðju-
stund á ég erfitt með að virða
Sveinbjörn heitinn fyrir mér einan.
Þau hjónin voru svo samrýnd og
einhvern veginn svo óaðskiljanleg,
að í hugskoti mínu sé ég þau jafnan
fyrir mér sem eina heild. Fjölskylda
mín og ég munum ætíð minnast
þeirra hjóna og barna þeirra fyrir
þá einmuna velvild, sem þau hafa
ávallt sýnt okkur og óvenjulegt er
hjá vandalausum. Við vottum Rann-
veigu, börnum hennar og fjölskyld-
um þeirra okkar dýpstu samúð.
Þórir Á. Ólafsson
Sveinbjörn Egilsson, útvarps-
virkjameistari, Óðinsgötu 2,
Reykjavík, lést á Borgarsjúkrahús-
inu í Reykjavík hinn 10. apríl sl. á
áttugasta aldursári sínu. Verður
útför hans gerð frá Dómkirkjunni
í Reykjavík í dag.
Sveinbjörn fæddist í Reykjavík
hinn 28. nóvember 1907 og ólst
hann upp í þáverandi austurbæ,
lengst af við Laugaveginn, að því
er ég hygg. í Reykjavík bjó hann
öll sín æviár að undanskildum rúm-
um áratug er hann átti heimili á
Vatnsendahæð, þar sem hann veitti
forstöðu fjarskiptastöð Ríkisút-
varpsins. Hann var því borinn og
barnfæddur Reykvíkingur, en sonur
aðfluttra foreldra, hjónanna Egils
Sveinssonar, smiðs, og Sigríðar
Jónsdóttur, er bæði komu úr Árnes-
þingi og áttu þar ættir að rekja.
Sveinbjörn naut venjulegs uppeldis,
eins og þá tíðkaðist á alþýðuheimil-
um í Reykjavík og var elstur þriggja
systkina.
Á 17. aldursári hans veiktist
Egill, faðir hans, og varð allsendis
óvinnufær eftir það, allt til æviloka.
Kom það þá í hlut Sveinbjarnar, sem
frumburðar, að annast uppeldi og
framfærslu yngri systkinanna
ásamt móðurinni. Mun hann, 17 ára
unglingurinn, hafa axlað þá ábyrgð
með slíkri prýði, að hver fullorðinn
gæti verið vel sæmdur af. Jafnframt
því að standa dyggilega við hlið
móður sinnar við uppeldi og fram-
færslu yngri systkina lét hann sig
ekki muna um að afla sér aukinnar
menntunar og lauk loftskeyta-
mannsprófi er hann var um tvítugt.
Hann fylgdist grannt með þróun
fjarskipta og hverskyns tækninýj-
ungum þeim samfara og starfaði
m.a. með Ottó B. Arnar, við rekstur
fyrstu útvarpstöðvar hér á landi.
Þegar stjórnvöld tóku síðan að huga
að opinberum útvarpsrekstri var
Sveinbjörn þegar tilkvaddur við
undirbúning slíks rekstrar. Starfaði
hann síðan samfellt hjá Ríkistú-
varpinu fram á fimmta áratuginn,
lengst af sem stöðvarstjóri á Vatn-
sendahæð, en lét þá af störfum og
hóf rekstur eigin fyrirtækis, fyrst
með Magnúsi Jóhannssyni og nú
síðustu árin ásamt Úlfari, syni
sínum.
Árið 1931 steig Sveinbjörn eitt
sitt mesta gæfuspor er hann gekk
að eiga Rannveigu Helgadóttur,
dóttur hjónanna Helga Helgasonar,
verslunarrnanns, og Kristínar Sig-
urðardóttur, en þau hjón voru bæði
af grónum reykvískum ættum.
Sveinbimi og Rannveigu varð
fjögurra barna auðið, tveggja
dætra, Kristínar, sem gift er undir-
rituðum og Öglu, sem lést ógift í
blóma lífsins, og var sárt saknað
af öllum sem ti) hennar þekktu. Þá
eignuðust þau tvo syni, Úlfar, raf-
virkja, kvæntan Kristínu Stein-
grímsdóttur og Helga ljósmyndara,
nú garðyrkjubónda að Iðu og Laug-
arási í Biskupstungum áður
kvæntan Rögnu Fossberg, en nú
kvæntan Björgu Ólafsdóttur. Öll
eru þessi börn hið mannvænlegasta
fólk og vel vandað til orðs og æðis.
Ég kynntist ekki Sveinbirni fyrr
en hann var kominn langt á sjötugs-
aldur og þá farinn að rifa seglin
eins og eðilegt er, að því er varðaði
rekstur fyrirtækisins. Hann var þó
enn við góða heilsu og fullur af
eldmóði við allskyns framkvæmdir
á eignarhluta sínum á jörðinni Iðu
í Biskupstungum.
Fyrir nokkrum ámm fór líkam-
legri heilsu hans að hraka er leiddi
til langvarandi sjúkrahúsdvalar,
sem hann þó sigraðist ítrekað á,
að því er ég tel með einstökum vilja-
styrk og lífsorku. Að endingu varð
hann þó undan að láta eins og við
öll, þegar lokakallið kemur.
Sveinbjörn gerði víðreist og hafði
hvarvetna farið með opin augu. Þá
var hann vel lesinn og því vel upp-
lýstur bæði um menn og málefni.
Við ræddumst oft við um lands-
ins gagn og nauðsynjar, enda
Sveinbjörn vel heima í öllu og öll-
um. Hann hafði mjög fastmótaðar
skoðanir jafnt á mönnum sem mál-
efnum og enda þótt skoðanir okkar
fæm ekki alltaf saman og við oft
og einatt á öndverðum meiði,
pólitískt séð, varð ekki annara kosta
völ en að virða skoðanir hans sakir
vel mótaðrar röksemdafærslu og
vandaðs málflutnings.
Ég var því alltaf nokkurs vísari
af viðræðum mínum við Sveinbjöm
og hygg að svo hafi verið um fleiri.
Lokið er nú lífshlaupi Sveinbjarn-
ar Egilssonar, eftir gifturríkt
ævistarf. Hans er sárt saknað af
öllum hans nánustu og öðmm sem
þekktu náið til hans, en bót er, að
eftir lifa minningar um góðan
dreng, föður og lífsfömnaut.
Þorgeir Þorsteinsson
t
Móðir okkar,
SIGURJÓNA JÓHANNESDÓTTIR
frá Laxamýri,
til heimilis á Háteigsvegi 23,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni i Reykjavik föstudaginn 24.
apríl kl. 15.00.
Þeir sem vildu minnast hennnar vinsamlega láti Hjartavernd njóta
þess.
Gunnlaugur Stefán Baldursson,
Guðbjörg Þórdís Baldursdóttir,
Jóna Margrét Baldursdóttir.
t
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
SVEINBJÖRN EGILSSON,
Óðinsgötu 2,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni ( dag, miðvikudaginn 22.
apríl, kl. 15.00.
Rarinveig Helgadóttir.
Kristín Sveinbjörnsdóttir, Þorgeir Þorsteinsson,
Úlfar Sveinbjörnsson, Kristín Steingrímsdóttir,
Helgi Sveinbjörnsson, Björg Ólafsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SÍMON TEITSSON,
Þórólfsgötu 12,
Borgarnesi,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju í dag, miðvikudag 22.
apríl, kl. 14.00.
Unnur Bergsveinsdóttir,
Örn S. Simonarson, Sonja Ásbjörnsdóttir,
Teitur Símonarson, Margrét Jónsdóttir,
Sigrún Símonardóttir, Ólafur Á. Steinþórsson,
Sigurbjörg Si'monardóttir, Sigurður Óskarsson,
Bergsveinn Símonarson, Jenný Jóhannssen,
barnabörn og barnabarnabörn.