Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 99.tbl. 75. árg. ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1987 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Waldheim-málið: Málshöfð- uníBanda- ríkjunum Vínarborg, Reuter. KURT Waldheim, forseti Aust- urríkis, sagði í gær að hann hygðist höfða mál í Banda- ríkjunum vegna ákvörðunar stjórnvalda þar að neita honum um landvistarleyfi sæki hann um það. „Það er kominn tími til að láta reyna á stöðu rógberanna fyrir lögum,“ sagði Waldheim í viðtali við austurríska útvarpið. Sagði hann að lögfræðingar á hans snærum, bæði í Austurríki og Bandaríkjunum, væru nú að kanna lagalegar forsendur máls- sóknar. Alois Mock, utanríkisráð- herra Austurríkis, sagði fréttamönnum að nefnd sérfræð- inga yrði skipuð í þessu skyni. Sagði hann að nefndin yrði skipuð í samráði við Waldheim og yrði meðal annars leitað til sérfræð- inga um utanríkismál. Bandaríska dómsmálaráðuneytið úrskurðaði í síðustu viku að Wald- heim yrði ekki veitt landvistarleyfi kæmi hann til Bandaríkjanna vegna grunsemda um hlutdeild í stríðsglæpum nasista á árum síðari heimsstyijaldarinnar. Talsmaður bandaríska dóms- málaráðuneytisins sagði að Waldheim væri vitaskuld frjálst að höfða mál í Bandaríkjunum. „Samkvæmt réttarkerfi okkar hafi allir jafnan aðgang að dóm- sölunum,“ sagði talsmaðurinn. Beðist fyrir með páfa Jóhannes Páll páfi II lauk heimsókn sinni til Vestur-Þýskalands í gær með hvatningu til Evrópubúa um að standa saman og gagnrýni á yfirvöld í Austur-Evrópu vegna skerðingar þeirra á trúfrelsi þegn- anna. Páfa hefur hvarvetna verið vel fagnað í Vestur-Þýskalandi og mikill mannfjöldi safnast saman þar sem hann hefur komið fram. Þessi litli snáði, er situr á öxlum föður síns, tók þátt í bænahaldi fullorðna fólksins er páfi söng messu í Múnchen. Bandarískar þingnefndir hefja yfirheyrsiur í vopnasölumálinu: Geta skipt sköp- um fyrir Reagan Washinglon, Rcutor. TVÆR bandarískar þingnefndir, sem rannsaka sölu vopna til Irana og greiðslur til skæruliða í Nicaragua, luku í gær undirbúningi fyrir opinberar yfirheyrslur. Yfirheyrslurnar geta skipt sköpum fyrir Ronald Reagan forseta. Yfirheyrslurnar hefjast í dag og ber Richard Secord hershöfð- ingi fyrstur vitni. Búist er við að þær taki þtjá mánuði og verður þeim sjónvarpað beint. Helsta viðfangsefni nefnda öld- ungadeildar og fulltrúadeildar, sem starfað hafa saman að rann- sókninni, er hvort Reagan hafi vitað af tilraunum embættis- manna í stjórn hans til að afla fjár handa skæruliðum í Nic- aragua með ólöglegum hætti. Daniel Inouye, öldungadeildar- þingmaður og formaður annarrar nefndarinnar, kvaðst í sjónvarps- viðtali á sunnudagtelja að Reagan hefði vitað af fjáröflun til voþna- kaupa handa skæruliðum á meðan þingið bannaði slíka aðstoð. Reagan sagði að ekkert væri hæft í þessum ásökunum og Marl- in Fitzwater, talsmaður forseta, ítrekaði það í gær: „Forsetinn vissi ekkert af ólöglegri fjáröflun." Sjá grein á síðu 42. Hæstiréttur Bandaríkjanna: Konur fái aðgang að Rotary-klúbbum Washington, Reuter. HÆSTIRÉTTUR Banda- ríkjanna kvað upp þann úrskurð í gær, að óleyfilegt sé að meina konum aðgang að Rotary- klúbbum þar í landi en hingað til hafa þeir aðeins verið opnir karlmönnum. Kjarnorkuflaugar stórveldanna í Evrópu: Flokkur Kohls setur skil- yrði fyrir samkomulagi Bonn, Genf, Moskvu, Reuter. KRISTILEGIR demókratar, flokkur Helmuts Kohl kanslara Vestur- Þýskalands, telja að bann við framleiðslu efnavopna og niðurskurður á hefðbundnum vígbúnaði Sovétmanna séu frumskilyrði fyrir sam- koniulagi um upprætingu kjarnorkuflauga í Evrópu. Aðalsamninga- maður Bandaríkjastjórnar í Genf sagði í gær að Bandaríkjamenn myndu brátt leggja fram drög að samkomulagi þar sem gert yrði ráð fyrir helmingsfækkun langdrægra flauga í vopnabúrum stórveldanna. í dag, þriðjudag, setjast sérfræð- ingar risaveldanna á sviði lang- drægra kjarnorkuflauga og geimvopna að samningaborðinu í Genf. Max Kampelman, aðalsamn- ingamaður Bandaríkjastjórnar, tilkynnti í gær að lögð yrðu fram drög að samkomulagi þar sem gert yrði ráð fyrir helmingsfækkun lang- drægra flauga. Sagði hann að Bandaríkjastjórn myndi leggja höf- uðáherslu á að ná slíku samkomulagi sem myndi tryggja öryggi beggja ríkja. Kampelman bætti við að vel hefði miðað í viðræðum um Evrópu- flaugarnar svonefndu. Reagan Bandaríkjaforseti kvaðst sannfærð- ur um að unnt yrði að ná samkomu- lagi um fækkun langdrægra flauga jafnvel á þessu ári ef Sovétmenn sýndu vilja til þess. Varðandi Evr- ópuflaugarnar sagði Reagan að Sovétstjórnin ætti enn eftir að leggja fram viðunandi tillögur um eftirlit. Yuly Vorontsov, samningamaður Sovétstjórnarinnar, kvaðst búast við að stórveldin myndu ná víðtæku samkomulagi um upprætinu meðal- og skammdrægra flauga í Evrópu. Pntvdx, málgagn sovéska komm- únistaflokksins, sakaði frönsku ríkisstjórnina í gær um að standa í vegi fyrir samkomulagi um Evrópu- flaugarnar. Sagði í blaðinu að Frakkar yrðu að láta af kröfu sinni um að hugsanlegt samkomulag risa- veldanna tæki ekki til kjarnorku- Max Kampelman Reuter Yuly Vorontosov Reuter vopna þeirra, þar eð á endanum yrði einnig að semja um þau vopn. Heiner Geissler, aðalritari flokks Kristilegra demókrata í Vestur- Þýskalandi, sagði í gær að flokkur- inn væri andvígur öllum samkomu- lagsdrögum sem ekki tækju til efnavopna og yfirburða Sovétmanna á sviði hefðbundins vígbúnaðar. Kohl kanslari átti fund með Jaques Chirac, forsætisráðherra Frakk- lands, á sunnudag og sögðu þeir að Evrópuríkin þyrftu að ræða betur tillögu Sovétmanna um útrýmingu skammdrægra flauga í Evrópu. Sjá einnig „Frakkar og Vestur- Þjóðverjar . . ." á bls. 26. Með sjö atkvæðum gegn engu vísaði rétturinn á bug þeirri rök- semd Rotary-hreyfingarinnar, að lög, sem heimiluðu aðgang kvenna að klúbbunum, væru brot á stjórn- arskrárbundnum réttindum manna til að umgangast þá, sem þeir kjósa sjálfir. I Alþjóðahreyfingu Rotary- félaga eru nærri 20.000 klúbbar í 157 löndum og félagsmennirnir eru nærri 900.000, allir karlmenn. Ymis önnur svipuð samtök sýndu þessu máli mikinn áhuga og studdu Rotary-hreyfinguna, t.d. Kiwanis- og Lions-hreyfingin, enda hefur niðurstaðan fordæmis- gildi gagnvart þeim. Lewis Powell, einn hæstaréttar- dómaranna, sagði í áliti sínu, að ekkert hefði komið fram, sem benti til, að þátttaka kvenna hindraði klúbbana í að sinna sínum yfir- lýsta tilgangi auk þess, sem hér væri um að ræða mál, sem varð- aði jafnrétti kvenna og karla. Forsaga þessa máls er sú, að 1977 samþykkti Rotary-klúbbur- inn í bænum Duarte í Kaliforníu að taka inn þrjár konur til að hressa upp á síminnkandi félaga- töluna. Alþjóðahreyfing Rotary- félaga, sem aðsetur hefur í Evanston í Illinois, afturkallaði þessa samþykkt en þá fór klúbbur- inn í Duarte í mál og hélt því fram, að úrskurður Alþjóðahreyfingar- innar bryti gegn jafnréttislögum í Kaliforníu. Tveir hæstaréttardómarar viku úr sæti í þessu máli, þau Harry Blackmun og Sandra Day O’Con- nor, fyrsta konan í hæstarétti. Blackmun er heiðursfélagi i Rot- ary og svo er einnig um eiginmann O’Connors.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.