Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 15
4- MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987 15 Þrír kjarnakvenmenn voru helst Bjami Guðmarsson og Gísli B. Gunnarsson sem sýndu til- J)rif og á köflum Páll Ásgeir Ásgeirsson, en leikurinn var allur hinn skemmtilegasti með sínum góðu og slæmu hliðum. Svart og silfrað gerist á hótel- herbergi, en þar em hjón ásamt ungu bami sínu sem gerir þeim lífíð erfítt. Bamið er óvært og vaknar þegar síst skyldi. Samtöl þeirra hjóna em mjög fyndin og allt er leikritið hið mannlegasta og vel til þess fallið að kæta áhorfendur, enda varð sú raunin í Hjáleigunni. Bjami Guðmarsson og Gerður Eðvarðsdóttir ná góðum tökum á hjónunum, en um þau hljóð sem komu frá baminu sá Sigrún Lilja Guðbjömsdóttir. Þýðing Guðjóns Ólafssonar var áheyrileg og yfírleitt viðunandi. Leikstjóm hans var í anda góðrar áhugamennsku og sama er að segja um búninga, leikmynd og ljós. Und- irritaður hafði gaman af þessari heimsókn ísfírðinga og þeir eiga virðingu skilið fyrir að bjóða upp á nýtt efni þar sem fmmkvæði þeirra nýtur sín. Alltof mörg leikféiög hjakka í sama farinu. Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Barbara Taylor Bradford: Act of Will Útg. Grafton Books 1986 Barbara Taylor Bradford gat sér heilmikið orð fýrir bókina Woman of Substance, sem minnzt hefur verið á hér í þessum dálkum. Nú hefur verið gerð kvikmynd eftir henni. Bradford sendir nú frá sér nýja bók, og henni er margt niðri fyrir eins og fyrri daginn. Audra er sú persóna bókarinn- ar, sem er hvað skýrust af höfundar hálfu. Hún er af enskum aðalsætt- um, en missir foreldrana ung og vond frænka hennar sendir bræður hennar tvo til Ástralíu. Að því er virðist af illsku og bara til að stía þeim systkinum sundur. Stúlkubar- nið er sent til vinnu á sjúkrahúsi. Líklega í refsingarskyni, en hún fellir sig ágætlega við skrúbb og púl og verður hvers manns hug- ljúfí, lærir hjúkmn þegar hún hefur aldur til og ber þar af öðmm. Hún kemst í kynni við piltinn, Vincente og giftist honum og tekur við stormasamt hjónaband. En Audra lætur mótlætið ekki buga sig. Vinc- ente leitar út fyrir heimilið, þegar hveitibrauðsdagarnir em liðnir og honum finnst Audra ekki sinna sér. Hann verður atvinnulaus í krepp- unni og reynir þá á þrek Audru. Þau missa ungan son sinn, en dótt- irin Christina á að fá allt sem móðirin fór á mis við. Hún reynist hafa hæfíleika til að teikna og mála og móðirin vinnur myrkranna á milli til að dóttirin geti stundað nám áhyggjulaus. Christina er vel gerð stúlka og smátt og smátt verður henni það óbærilegt að sjá,að móðirin slíti sér út. Svo að hún laumast til að hætta listnáminu og snýr sér að fatahönn- un og veldur það móðurinni miklum harmi. En Christina veit hvað hún syngur og auk þess að vera dugnað- arkona er hún sennilega á réttri hillu, enda verður hún brátt heims- fræg. Kemst í kynni við brezkan þingmann og með þeim takast ástir en sá hængur er á því, að hann er giftur og konan hans vill ekki gefa honum eftir skilnað. Hann getur ekki farið að búa með Christinu og átt á hættu að kjósendurnir hneyks- list á honum svo að leiðir þeirra Christinu verða að skilja. Hún fer til Bandaríkjanna, kemst í kynni við Alex og saman reka þau hjónin tízkufyrirtækið með miklum glæsi- brag. Þau eiga dótturina Kyle, sem á sennilega að taka við en hún reyn- ist vera hneigð til að teikna og mála og gerir uppreisn gegn foreld- rum sínum. Sagan er í sjálfu sér byggð upp sem afþreyingasaga og læsileg sem slík. En hún er einnig viðkunnarleg frásögn af baráttu þessara þriggja kvenna, hverrar á sínum tíma fyrir sjálfstæði og virðingu. BARBARA TAYLOR BRADFORD WORLD BESTSIrLl ING AUT HOR 01 Eins og fyrr segir er kaflinn um Audru langfyrirferðarmestur og lýsingin á henni og baráttu þeirri sem hún hlýtur að heyja verður ágætlega minnisstæð. NÁMSKEIÐ SFI S TJÓRNUNA RNÁ MSKEIÐ ERLEND NÁMSKEIÐ ÚTELUTNINCS- OC MARKAÐSSKÓLI ÍSLANDS TÖLVUSKÓLU TÖL VUERÆÐSLA Ml'MIR MÁLASKÓLI/ RITARASKÓLI Síðastliðið haust efndi Stjórnunarfélag íslands til námskeiðs um Verðbréfamarkaðinn. Námskeiðið þótti vera mjög tímabært því þekking á eðli þessa markaðar hefur ekki vaxið til jafns við umfang hans á urídanförnum árum. Nú hefur verið ákveðið að endurtaka námskeiðið ef næg þátttaka fæst. Á námskeiðinu hefur verið fjallað um eftirtalda þætti: - Stefnumótun í fjármagnsupp- byggingu. - Mat á fjármagnsþörf. - Æskileg fjármagnsuppbygging. - Helstu tegundir veröbréfa á inn- lendum markaði og helstu form þeirra erlendis. - Þáttur verðbréfa (hlutabréfa og skuldabréfa) í fjárhagslegri uppbyggingu fyrirtækja, rekstri og fjárfestingu. ■ Tæknilega hliðin: útreikningur gengis, affalla, ávöxtunar og annars kostnaðar. - Tímaáætlanirvið útgáfu og sölu verðbréfa. - Skattalegar ívilnanir við verð- bréfakaup. - Breytingará sparifjármarkaðinum og samanburður við ávöxtun sparnaðar í viðskiptalöndunum. Samanburður á núverandi sparn- aðarformum. - Helstu sjónarmið við ákvarðanatöku í verðbréfaviðskiptum: Einstaklingar - fyrirtæki - stofnanir. - Kröfur Verðbréfaþings islands - tengsl við verðbréfasala - tengsl við fjölmiðla. - Ávöxtun innlends sparifjár í erlendum verðbréfum og/eða erlendum gjaldeyri. - Markaðssetnign verðbréfa. Námskeiðið er ætlað starfsfólki í fjármáladeildum fyrirtækja, opinberra sjóða og lífeyrissjóða og öllum þeim sem hafa áhuga á verðbréfaviðskiptum. Námskeiðiö verður í umsjá Sigurðar B. Stefáns- sonar og Gunnars Helga Hálfdánarsonar með aðstoð starfsmanna Fjárfestingarfélags íslands, Kaupþings og Verðbréfamarkaðar Iðnaðarbankans. rí. Stjórnunarfélagið hefur nú ákveðið að bjóða uppá framhaldsnámskeið í Multiplan, þar sem farið erm.a. í neðangreind atriði forritsins, auk þess sem kennd verður notkun forritsins Chart. Chart forritið er frá sama framleiðanda og Multiplan og gerir myndræna framsetningu talna úr Multiplan mögulega. Þess má geta að forritið fer rétt með alla íslenska stafi. Fjallað verður m.a. um eftirfarandi: - Samtengingu reiknilíkana á disk. - Að láta forritið leita að lausn (literation). Notkun innbyggðra falla. - Notkun texta við uppbyggingu formúla. - Flutning talna til Chart. - Myndræna framsetningu talna með Chart. Þátttakendur: Námskeiðið erætlað öllum þeim sem setið hafa námskeið i Multiplan, eða hafa á annan hátt kynnt sér notkun þess, og vilja bæta við þekkingu sína í notkun forritsins. Leiðbeinandi: Björn Guðmundsson kerfisfræðingur. Björn hefur haldið fjöld námskeiða um tölvur og tölvuvinnslu. Tími: 11.-13. mal, kl. 13.30—17.30. Mest notaða gagnasafnskerfið á markaðnum í dag er dBASE 111+ sem fæst á flestar einkatölvur. Nú er dBASE 111+ komið á markað, enn fullkomnara en fyrri kerfi og mun auðveldara í notkun. Efni: - Um gagnasafnskerfi. - Skipulag gagna til tölvuvinnslu. - Uppsetning gagnasafns. - Fyrirspurnir. - Samfléttun gagnasafna. - Útreikningar og úrvinnsla. - Útprentun. Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja tileinka sér hagkvæmni sem fylgir notkun gagna- safnskerfa við alls kyns gagnavinnslu. Leiðbeinandi: Valgeir Hallvarðsson, véltæknifræðingur. Timi: 14., 15. og 18. maí, kl. 13.30—17.30. Tími og staður: 13.-14. maí kl. 13.00-17.00 í Ánanaustum 15. Skráning þátttakenda og nánari upplýsingar í síma 621066. NÁMSKEIÐÁ NÆSTUNNI Notkun og meðferð einkatölva 19.-22. mai Alvis Bokhaldskerfi 18.-21. mai Fjarskipti með tölvum 18.-19. mai Time Manager 18.-19. og 20.-21. mai Islands --- Ánanaustum 15 • Simi: 6210 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.