Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987 59 Morgunblaðið/Júlíus Þuríður Pálsdóttir fóstra og Kristín Gylfadóttir forstöðukona á Laufásborg voru í hópi þeirra fóstra sem mættu til vinnu á dagvist- arheimilum borgarinnar í gær eftri að hafa dregið uppsagnir sínar til baka. Morgunblaðið/Júlíus Sesselja Hauksdóttir forstöðukona í Hlíðarborg sagði að loforð um stöðu deildarfóstru hefði ráðið úrslitum um að fóstrur ákváðu að draga uppsagnir sínar til baka. Hefðum viljað betri staðfestingu loforða Morgunblaðið/Júlíus barnahópnum með afmælisbarn dagsins fyrir frainan sig. - segja fóstr- ur sem drógu uppsagnir sínar til baka FÓSTRUR á Laufásborg sem er dagheimilii og í Hlíðarborg sem er leikskóli voru í hópi þeirra sem sagt höfðu upp störfum en mættu til vinnu i gærmorgun eftir að meirihluti fóstra hafði samþykkti að draga uppsagnirn- ar til baka. Blaðamaður Morgun- blaðsins ásamt ljósmyndara litu við á heimilunum i gær spurðu þær hvort þær væru ánægðar með þessi málalok. Ulskásti kosturinn Kristín Gylfadóttir, forstöðukona á Laufásborg sagði að allar fóstrur heimilisins, en þær eru fjórar hefðu sagt upp störfum en dregið upp- sagnir sínar til baka. „Við erum engan veginn ánægðar," sagði Kristín. „Sumir sögðu á fundinum að þetta hefði verið illskásti kostur- inn en þetta var samþykkt meiri- hlutans og það er mikilvægt atriði að við komum fram sem ein heild. Baráttan er ekki búin því þetta er ekkii' síðasta sinn sem við semjum." „Eg hefði viljað sjá betri stað- festingu á sérkröfunum," sagði Þuríður Pálsdóttir, fóstra. Kristín bætti við að lagt hefði verið upp með 40 þúsund króna lágmarkslaun og kröfu um deildarfóstru auk ann- arra sérmála. „Ég hefði viljað sjá staðfestingu á að við fáum þessar kröfur uppfylltar, en ekki bara vil- yrði fyri þeim,“ sagði Kristín. „Það er svo erfítt að treysta stöðugt á Lena Hreinsdóttir fóstra í miðjum vilyrði en við verðum að gera það þrátt fyrir að orðalag í fundargei-ð borgarstjóra sé vægast sagt mjög loðið/ „Ég hefði viljað að rætt hefði verið beint við fóstrur," sagði Þuríð- ur. Spurningunni um hvaða stétt þær teldu að miða bæri við í laun- akröfum, svaraði Kristín á þá leið að hún teldi ekki rétt að miða við neina sérstaka stétt. „Við tilheyrum heilbrigðisgeiranum en lögðum upp með okkar eigin kröfur eftir að hafa haldið marga fundi bæði á vinnustöðum og utan. Kröfurnar eru því ekki komnar úr þröngum hópi fóstra þær eru sameiginleg niðurstaða sem fóstrur komust að,“ sagði Kristín. Óánægja með loðin lof- orð í Hlíðarborg höfðu fimm fóstrur sagt upp störfum en dregið upp- sagnir sína til baka og mættu þær til vinnu í gær. „Við höfum lýst vonbrigðum okkar og að okkur finnst við hafa tapað orustunni," sagði Sesselja Hauksdóttir, for- stöðukona. „Vissulega höfum við fengið ýmislegt fram en það eru ekki bara launin sem þurftu að hækka. Við hefðum viljað fá betri röðun eins og hjá viðmiðunarhópun- um, sem eru til dæmis kennarar, hjúkrunarfræðingar og meinatækn- ar svo að hægt hefði verið að tryggja betri vinnufrið á heimilun- um. Það sem réði úrslitum um að uppsagnimar voru dregnar til baka var að við teljum okkur hafa fengið loforð fyrir stöðu deildrafóstru til að leggja áherslu á stjórnunarlega ábyrgð sem fóstmr hafa.“ Lena Hreinsdóttir, fóstra sagðist ekki vera ánægð. „Ég er hálf hrædd við þessi loðnu loforð um að þetta og hitt verði athugað," sagði hún. „Eg hefði viljað sjá betri staðfest- ingu á loforðunum áður en við snémm til vinnu á ný. Ég var reið í gær en er leið í dag og þeir for- eldrar sem ég hef hitt hafa lýst yfir undmn sinni með að við skulum hafa dregið uppsagnimar til baka og vilja vita hvað hafi breyst sem valdi því að við hófum störf á ný.“ Myndlista- sýning í Fíladelfíu OWE Wallberg myndlistamaður, opnar sýningu á 20 myndum í Fíladelfíu í dag kl. 14. Sýningin stendur fram á fimmtudag og er opin alla daga frá ld. 14 til 18. Myndirnar em unnar meðbland- aðri tækni en sjö þeirra em unnar í kopar og beitir Owe egin tækni við gerð þeirra. Allt frá árinu 1963 hefur hann þróað þessa aðferð sem felst í að slípa koparinn í stað þess að banka hann og brenna. Morgunblaðið/Emilía Owe Wallberg, myndlistamaður með nokkur verka sinna. Wterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiöiU! ^Vpglýsinga- síminn er 2 24 80 TIMKEN keilulegur SUÐURLANDSBRAUT 8 ,^SÍMI 84670^^
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.