Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987
Bladburóarfólk
óskast!
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Fóstrur draga uppsagnir til baka:
AUSTURBÆR VESTURBÆR
Lindargata 1 -38 o.fl Aragata o.fl.
Hverfisgata 4-62 o.fl.
Hverfisgata 63-115 o.fl.
Laugavegur 1 -33 o.fl.
Loforð um ráðn-
ingfu deildarfóstra
réði úrslitum
borgar, fram staðfestingu
Davíðs Oddssonar, borgarstjóra
á sérkröfum sem fóstrur fara
fram á. Um tvöhundruð fóstrur
sóttu fundinn sem hófst kl. 20:30
og stóð fram yfir miðnætti.
Á fundi stjórnar Dagvistar í
gær var samþykkt að mæla með
við borgarráð að tiltekin dagvist-
arheimili fengju að ráða yfir-
fóstru og að undirbúningstíminn
verði lengdur úr tveimur klukku-
stundum i þrjár. Ennfremur að
þaki sem verið hefur á starfs-
mannafundum verði lyft úr 12
klukkustundum í 20.
Viðræður án þrýstings
„Ég fagna því að fóstrur hafa
sýnt þá skynsemi að ganga til sinna
starfa á ný og hafa áttað sig á að
borgin var búin að gera mjög vel
við þennan hóp að þessu sinni,“
sagði Dvíð Oddsson borgarstjóri.
Hann taldi að fóstrur hefðu áttað
sig á að ekki var frambærilegt að
halda áfram aðgerðum sem þessum.
Haraldur Hannesson formaður
starfsmannafélagsins sagði að á
fúndi með borgarstjóra á sunnudag
hefði opnast smuga til sátta. í fund-
argerð þess fundar sem Haraldur
kynnti fóstrum segir: „Formaður
Starfsmannafélags Reykajvíkur-
borgar hefur í dag átt óformlegar
viðræður við borgarstjóra um mál-
efni fóstra. í þeim viðræðum kom
fram, að af hálfu borgarinnar hefur
þegar verið gengið lengra til móts
við þennan hóp starfsmanna en
nokkum annan innan StRv. Lengra
yrði því ekki gengið og borgin yrði
að horfast í augu við, að allstór
hópur, sem starfar á dagvistar-
stofnunum hennar væri horfínn frá
þeim störfum að eigin frumkvæði
og á eigin ábyrgð. Borgin hlyti því
að neyta allra úrræða til að opna
á ný þær deildir dagvistastofnan-
anna, sem lokast myndu af þessum
ástæðum og m.a. um hríð að manna
þau enn frekar en nú er með ófag-
lærðu fólki.
Á hinn bóginn vildi borgarstjóri
undirstrika, að borgin væri þrátt
fyrir það sem á undan væri gengið
tilbúin til að sýna þann sveigjan-
leika, að þeir starfsmenn, sem
mættu til vinnu n.k. mánudag og
tilkynntu að þeir hefðu fallið frá
sínum uppsögnum, fengju greidd
laun fyrir þá þijá daga, sem þeir
hafa ekki verið í starfí hjá borginni
og héldu enn fyrirframgreiðslu
launa, sem átti að falla niður um
leið og uppsagnir tóku gildi.
Jafnframt var undirstrikað: 1.
að þær samþykktir sem starfskjara-
nefnd gerði svo og þær tillögur, sem
starfsmannastjóri og framkvæmda-
stjóri dagvistar hafa gert voru með
vitund borgaryfírvalda og njóta
stuðnings þeirra. Ekki er því
minnsti vafi á, að hvoru tveggja
verður endanlega staðfest af réttum
aðilum í byrjun næstu viku.
2. að ljóst sé að á samningstí-
manum muni starfskjaranefnd og
eftir því sem við á stjómamefnd
dagvistar, taka til athugunnar
ýmiss kjaraleg og stjómunarleg
atriði, sem ekki var endanleg af-
staða tekin til í samningi við StRv
né með þeirri sérstöku ákvörðun,
sem borgarráð gerði þann 14. apríl
sl. og laut að nokkmm þáttum
kjaramála."
Haraldur Hannesson sagðist
túlka niðurstöðumar á þann veg
að viðræður fæm aftur í gang en
án þrýsting vegna fjölda uppsagna
og mundu væntanlega leiða til ár-
angurs sem báðir aðilar geta sætt
sig við. Hann benti á að með þess-
um samkomulagi næðu fóstmr á
dagvistarheimilum borgarinnar,
sömu launum og fóstmr í ná-
grannasveitarfélögunum.
Árangur náðist með
samstöðu
Margrét Pála Ólafsdóttir fóstra
sagði að árangur í kjarabaráttunni
bæri fyrst og fremst að þakka sam-
stöðu hópsins. Ýmsar sérkröfum
sem Haraldur Hannesson kynnti á
fundi fóstra, hefðu fengist skriflega
staðfestar af borgarstjóra. Hún
sagði að þar með væri ljóst að staða
yfírfóstm fengist á fleiri dagvistar-
heimilum en upphaflega var gert
ráð fyrir og að undirbúningstími
lengdist um eina klukkustund. „Þá
lagði Haraldur Hannesson höfuð
sitt að veði um að deildarfóstm
starfsheitinu yrði náð um næstu
áramót og á gmndvelli þessa ákváð-
um við að draga uppsagnimar til
baka,“ sagði Margrét Pála. „Við
höfum tapað með tillitit til þess að
við óskuðum eftir öðmm viðbrögð-
um og jákvæðari samskipum við
okkar vinnuveitendur. Með kröfum
okkar er stefnt að betri vinnufrið á
heimilum á þess að þurfa að hafa
áhyggjur af því manna stöður frá
degi til dags."
A fundinum samþykktu fóstmr
eftirfarandi ályktun: „Kvennastétt
gerðist svo djörf að gera kröfur um
vemlegar kjarabætur og önnur
vinnubrögð í samningagerð. Bar-
átta okkar hefur fært okkur heim
sanninn um það, hversu sterkt það
vald er, sem karlar hafa - beggja
vegna borðsins. Þetta vald sigra
fóstmr ekki í þessari lotu - við höf-
um tapað omstu en baráttunni er
ekki lokið.
Því hvetur fundurinn fóstmr til
að draga uppsagnir sínar til baka
á gmndvelli staðfestingar borgar-
stjóra um sérmál svo og að á
samningstímanaum verði tekin til
athugunar ýmis kjaraleg og stjóm-
unarleg atriði eins og fram kemur
í samkomulagi Davíðs Oddssonar
og Haraldar Hannessonar frá í dag.
Fóstmr harma stóryrði og rangar
upplýsingar, sem fram hafa komið
í fjölmiðlum undanfama daga. Við
óskum ekki eftir baráttu á þeim
nótum.
Fóstmr falla þó ekki frá þeirri
framtíðar sýn að kvennastéttir geti
bætt sinn hlut. Ein af forsendum
þess teljum við vera að kvennastj-
éttir og aðrir hópar taki málin í
eigin hendur.
{ næstu samningalotu eiga
Reykjavíkurfóstmr í fyrsta sinn
rétt á sjálfstæðum samníngsrétti.
Þann rétt viljum við nýta.“
Fagna því að
fóstrur hafa átt-
að sig - segir
Davíð Oddsson
borgarstjóri
FÓSTRUR í Reykjavík ákváðu
að draga uppsagnir sínar til baka
að lokinni atkvæðagreiðslu á
fundi féalgsins sem haldinn var
síðstiiðið sunnudagskvöld. Af
190 fóstrum sem sagt höfðu upp
störfum greiddu 166 atkvæði og
samþykktu 107 að draga upp-
sagnirnar til baka, 51 voru á
móti, 7 seðlar voru auðir og 1
ógildur. Á fundinum lagði Har-
aldur Hannesson formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
Handbókin ISLENSK FYRIRTÆKI 1987
er korrvin út hjá Frjálsu framtakí
Hún hefur ab geyma eftirf arandí:
1. Fyrirtækj&skrá meö rúmlega
9.500 st&rfandi fyrirtækjum,
félögum, s&mtökum og
opinberum stofnunum
& öllu l&ndinu.
OU skr&ö meb n&fnnúmer.
2. Vöru-og þjórvustuskrá.
3. Umboð&skrá.
4. Skrá yfir íslenska útflytjendur.
5. Skrá yfir öll íslensk skip.
Bókin er seld ílausasölu hjá
FRJÁLSU FRAMTAKI í ÁRMÚLA18.
Einnig er hægt ab panta hana í síma og f á hana senda um hæl.
Frjálstframtak
Ármúla 18,sími: 82300
p
s ifi co Góðan daginn!