Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987 43 Grafalvar- leg mál í gangi Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Marg-aret Yorke: Grave Matters Útg. Arrowbooks 1986 MARGARET Yorke er lúnkinn sakamálasagnahðfundur, þótt ég sé að vísu enginn sérfræðingur í bókum hennar.„ Grave Matters" segir frá því, að Patrick háskóia- kennari er í leyfi í Aþenu. Hann verður sjónarvottur að því að aldr- aður ferðafélagi hans, fröken Brinton, verður fyrir slysi upp á Akrópólis. Það lítur út fyrir að hugsunarlaust ungmenni hafí ýtt henni óvart um koll, svo að hún dettur niður tröppumar og hefur bana af. Þetta er að vísu leiðinlegt, en varla nokkuð grunsamlegt sam- an við það og getur alltaf komið fyrir. Þegar Patrick kemur heim til Englands, heimsækir hann frænku hinnar látnu, til að láta hana vita af því að jarðarförin hafi farið vel og virðulega fram. Hjá frænkunni er stödd önnur aldurhnigin dama, fröken Forrest sem hafði verið góð vinkona hinnar látnu. Eiginlega hafði verið mein- ingin að hún færi með í Grikklands- ferðina, en af því varð ékki, vegna þess hve hún er orðin mikið skar. Hún er nú að gera skrá yfír bóka- safn Brintonsfrökenarinnar og Patrick sér þar ýmsar bækur, sem hann væntir að samkennarar hans hafí áhuga á að kaupa. Því fer hann nokkrar ferðir á svæðið og kemst í kynni við nágrannana Ca- rol og David, sem eru nýflutt inn. Einnig við unga og huggulega stúlku, Ellen. Hún er önnur frænka fröken Brinton og það bendir ýmis- iegt til þess að hún sé í tygjum við David. Það veldur Patrick nokkru hugarangri, og svo fara að gerast afleitir atburðir. í fyrsta lagi virðist Carol nágrannakona vera mesti hrakfallabálkur, hún er einlægt að detta á hausinn og meiða sig og hún fær stöðugar magakveisur. Gæti verið að einhver sé að brugga henni banaráð. En það er þá fröken Forrest sem dettur niður stiga í British Museum og bíður bana af. Patrick fínnst að hér hljóti eitthvað gruggugt að vera á seyði. En hver gæti þó ástæðan verið fyrir þessu. Að hrinda gömlum konum niður stiga, svo að þeir láta lífíð. Þetta er allt mjög svo kynd- ugt. En óhugnaðurinn heldur áfram og það ber vott um, að ódæðismað- urinn er tekinn að örvænta.. Blásaklaus hundur þeirra Carol og David finnst drukknaður. Patrick getur ekki slitið sig frá málinu. Einkum og sér í lagi vegna þess að hann vill ekki gefa upp alla von um að vinna hug og hjarta Ellenar. Ekki er rétt að rekja söguþráð í svona bókum. Góðar sakamálasög- ur eru þarfaþing. Svo er um þessa, þótt endirinn komi ekki beinlínis á óvart. Að minnsta kosti ekki ef maður hefur laumast til að kíkja.,.. QæsUegt wtslimculmsnæúi tilleigu igóðu hmfi ( nýrri og glæsilegri verslunarbyggingu við Gerðuberg er nú til leigu húsnæði fyrir margskonar verslunarrekstur. Hér er um einstakt tækifæri að ræða—fallegt hús, gott og fjöl- mennt íbúðahverfi, góð staðsetning og greið aðkeyrsla. Um er að ræða samtals 1.625 m2 á 3 hæðum._________________________________ Leigutími er5ár. Jarðhæðin er tæplega 615 m2. Hún hentar einkum fyrir rekstur fata-, bóka-, ritfangaverslana o.þ.h. Hluti jarðhæðar er nú þegar leigður. 1. hæð er tæplega 605 m2. Hentar vel fyrir rekstur sérverslana, t.d. úra- og skartgripaverslun, sportvöruverslun, leikfanga- verslun, hljómplötuverslun o.þ.h. Einnig verður þar kaffi- stofa. 2. hæð er tæplega 405 m2. Þar fer vel á að hafa ýmiskonar þjón- ustustarfsemi, t.d. rakarastofu, hárgreiðslustofu, snyrti- stofu eða tannlæknastofu. Afhending: Leiguhúsnæði verður afhent leigutökum tilbúið undir tré- verk í júlí n.k. Húsið verður þá að öðru leyti fullbúið utan sem innan, þ.e. bílastæði malbikuð með hitalögnum og gróðurkassar. Lóðin verðurfullfrágengin. Sameign að inn- an verður einnig fullfrágengin. Lyfta verður í húsinu. VERSLUNAfí^ HÚSIÐ SF V GERÐUBERG11 Upplýsingar: Allar nánari upplýsingar gefur Guðjón Pálsson byggingameistari í síma 77772 (eftirkl. 18 virkadaga).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.