Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987 21 (Ljósm. Bibeltrogna Venner.) Ein af fimm kirkjum lútherskra manna í Nairóbí. Hún er í fátækra- hverfinu Kibera. Starf lúthersku kirkjunnar og einnig annarra kirkna verður án efa stóreflt á komandi árum, enda er mannleg neyð mjög mikil þar. sér nú stað sama þróun og átti sér stað í Evrópu á tímum iðnbyltingar- innar. Fólk streymir úr sveitum til borganna. Árlega flytjast um 100.000 manns til Nairóbí umfram þá, sem flytjast þaðan. Talið er að íbúafjöldi borgarinnar eigi eftir að rúmlega þrefaldast fram til ársins 2000, þ.e. að aukast úr 1,5 milljón- um (sem er fjöldinn nú) í 5 milljónir vegna fæðinga og flutninga til borgarinnar. Þetta á eftir að valda borgaryfirvöldum geysilegum vand- ræðum því þau munu hvorki geta byggt nægt húsnæði né skapað nógu mörg atvinnutækifæri. Yfir- full fátækrahverfi, þar sem hrein- lætisaðstaða er lítil sem engin og hreint vatn af skornum skammti, bjóða farsóttum eins og kóleru heim, auk þess sem brunahætta er mjög mikil. Kall til kirkjunnar í miðbæ Nairóbí blasa við virðu- legar og traustar kirkjur. Allar helstu kirkjudeildir hins vestræna heims eiga sitt guðshús þar. Ýms- um, sem lítið þekkja til, verður á að hugsa sem svo, að þama sé nú kirkjunnar mönnum rétt lýst, að byggja bækistöðvar sínar hlið við hlið og togast síðan á um sálimar. En málið er þó ekki svona einfalt. Starf kirknanna hófst yfirleitt úti á landsbyggðinni fyrir mörgum árum. Eftir því sem fólk hefur flutt úr sveitunum, hefur þörfin orðið biýn að gæta hjarðarinnar einnig í borg- inni. Starf margra kirkna borgar- innar er því til komið sem afleiðing af starfinu úti á landi. Hvergi eru fleiri heiðingjar sam- an komnir á jafn litlu svæði í landinu og í Nairóbí. Vandamálin þar em óþrjótandi. Fólkið í fátækra- hverfunum á í erfiðleikum á flestum sviðum lífsins. Það er komið úr tengslum við menningu þjóðflokks- ins í sveitinni og orðið að ópersónu- legum hlut í mannþrönginni. Enginn akur eða húsdýr sjá fyrir þörfum magans, en þess í stað verð- ur að kaupa allar lífsnauðsynjar dýrum dómum. Það er ekki auð- velt, þega^ engin er vinnan eða iaunin mjög lág. Hér háir margur maðurinn lífsbaráttu upp á líf og dauða. Öll þessi mannlega neyð er kristnum mönnum kall til hjálpar, og leiðtogar margra kristniboðs- félaga gera sér það nú ljóst, að þungamiðja kristniboðsstarfs framtíðarinnar hlýtur að færast úr sveitunum til borganna. Það má því ætla, að margar nýjar kirkjubygg- ingar eigi eftir að rísa enn í Nairóbí — í fátækrahverfunum. Höfundur er kristniboði í Kenýu oghefur um lengri tíma sent Morgunblaðinu pistla um land og þjóð. £ ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ ÞÓRSKABARETT í MAÍ-MÁNUÐI Grínlandsliðið í miklum ham! Sýndur öll föstudags- og laugardagskvöld Þriðji kafli Þórskabarettsins sívinsæla verður í maí-mánuði, en þá má búast við að gestir þurfi að þenja hláturtaugarnartil hins ítrasta. Spaugstofugrínistarnir Karl Ágúst Úlfsson, Siggi Sigurjóns og gríntenórinn Örn Árnason mæta galvaskir til leiks ásamt Ómari Ragn- arssyni og Hauki Heiðar Ingólfssyni. Mætum öll hress með bros á vör og þá er stutt í hláturinn! Hin þrælgóða hljómsveit SANTOS og söngkonan Guðrún Gunnarsdóttir leika fyrir dansi. Rifjaðar verða upp nokkrar helstu dægurlagaperlur í gegnum tíðina. Án gríns: Læknirá staðnum fyrir þá sem fá alvarlegt hláturskast. Þríréttaður veislukvöldverður sem engan svíkur. Athugið að panta borð tímanlega hjá veitingastjóra i símum 23333 og 23335. Tekið er á móti borðapöntunum alla virka daga frá kl. 10.00-18.00 og á laug- ardögum eftir kl. 14.00 ÞÓRSKABARETT — GALSI, GLENS OG GRÍN í MAÍ Gestum utan af landi er bent á Þórskabarettreisur Flugleiða. HAPPDRÆm DVAIARHEIMIUS ALDRAÐRA SJÓMANNA wáí VÍÐSJÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.