Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987
Ellefu dómnefnd-
armenn valdir fyr-
ir söngvakeppnina
RÍKISÚTV ARPIÐ hefur nú
skipað dómnefnd Islands í
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva sem haldin verður
i Briissel næstkomandi laugar-
dagskvöld. Dómnefndarmenn
voru valdir í hópi þeirra sem
gáfu kost á sér með því að
senda Ríkisútvarpinu nafn sitt.
Ellefu sitja í dómnefndinni auk
formanns og ritara. Þau eru: Asa
María Ásgeirsdóttir 18 ára fisk-
vinnslukona í Vestmannaeyju,
Einar Már Ríkarðsson 22 ára sjó-
maður í Reykjavík, Guðmunda
Ingimundardóttir 27 ára skrif-
stofumaður og húsmóðir Höfn í
Homafirði, Hildur Karen Aðal-
steinsdóttir 16 ára grunnskóla-
nemi á Bolungarvík, Jóhannes
Guðlaugsson 20 ára verslunar-
maður í Kópavogi, Nanna L.
Svavarsdóttir 22 ára háskólanemi
í Reykjavík, Oddrún Kristjáns-
dóttir 35 ára framkvæmdastjóri í
Reykjavík, Óskar I. Örlygsson 18
ára framhaldsskólanemi í Garðin-
um, Steingrímur Guðjónsson 30
ára vélvirki á Akranesi, Þorsteinn
Pétursson 42 ára tollafgreiðslu-
maður á Akureyri og Þóra
Siguijónsdóttir 55 ára húsmóðir
Gaulveijabæjarhreppi.
Formaður dómnefndarinnar
verður Markús Öm Antonsson
útvarpsstjóri og ritari Guðrún
Skúladóttir. Þau tvö hafa ekki
atkvæðisrétt um sönglögin.
Reuter
Halla Margrét Amadóttir á æfingunni í Brussel i gær.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva:
Islensku keppend-
uniir mættir til leiks
Brussel, frá Jóhönnu Ingvaradóttur, blaða
ÍSLENSKU keppendurnir, sem
keppa að þessu sinni fyrir ís-
lands hönd i söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva komu
tíl Brussel sl. sunnudag, en
keppnin fer hér fram næstkom-
andi laugardag og verður henni
sjónvarpað beint til 500 milljón
manns.
Þetta er þrítugasta og önnur
mni Morgunblaðsins
söngvakeppnin sem haldin er á veg-
um evrópskra sjónvarpsstöðva, en
aðeins í annað sinn sem íslendingar
eru meðal þátttakenda. í fyrra var
keppnin haldin í Bergen, þar sem
þau Pálmi, Eiríkur og Helga sungu
Gleðibanka Magnúsar Eiríkssonar
inn í 16. sætið, eins og flestum er
í fersku minni.
Að þessu sinni taka 22 þjóðir
þátt í keppninni og hófust æfingar
strax í gær. Hverju landi eru úthlut-
aðir tveir æfingatímar, fyrst í 40
mínútur og síðan í 25 mínútur á
sviði. íslendingamir, þau Valgeir
Guðjónsson, Halla Margrét Áma-
dóttir, Sverrir Guðjónsson, Egill
Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Diddú munu koma fram númer
§ögur í aðalkeppninni, næst á eftir
Austurríki. Hljómsveitarstjóm ann-
ast Hjálmar H. Ragnarsson.
Norðmenn ríða á vaðið og síðan
Israelmenn. Eftir framlag Valgeirs,
„Hægt og hljótt" koma Belgar
fram, síðan Svíar, ítalir, Portúgalir,
Spánveijar, Tyrkir, Grykkir, Hol-
lendingar, Lúxemborgarar, Bretar
, Frakkar, Þjóðveijar, Kýpurbúar,
Finnar, Danir, írar, Júgóslavar og
loks Svisslendingar.
Kynnir verður Viktor Lazlo, sem
sjálf hóf sinn söngferil fyrir þremur
ámm síðan.
Fyrsti blaðamannafundur
íslenska liðsins var haldinn í gær
eftir æfíngu. Valgeir var þá spurður
af hveiju hann hefði fengið Höllu
Margréti, unga og tiltölulega
óreynda söngkonu til að syngja lag-
ið sitt. Hann svaraði því til að hann
hefði lofað henni því að sigra ekki
í keppninni á íslandi, en úr því að
það gerðist, væri ljóst að hann
gæfi engin fleiri loforð. „Við tökum
ekki þátt í keppninni til að sigra,
heldur til að vera með og kynna
landið okkar. Við vorum í 16. sæti
í fyrra og ef við getum gert betur
núna er það af hinu góða. Hins
vegar, ef við sigruðum núna, yrðum
við örugglega gjaldþrota, ef við
ættum að halda keppnina," sagði
Valgeir.
Æfíngar íslenska liðsins gengu
mjög vel í gær, að sögn Bjöms
Björnssonar hjá Hugmynd, sem sér
um skipulagningu á keppninni. Hins
vegar sagði hann að allar móttökur
hér í Brussel hefðu farið úr skorðum
þegar til átti að taka. í forsíðufrétt
eins stærsta dagblaðs í Brussel var
haft eftir ísraelsmönnum að mótt-
tökur stjamanna væru í molum.
Bjöm sagði að öll skipulagning
sviðssetningar og tæknibúnaðar
væri hins vegar fullkomin og leik-
myndin á heimsmælikvarða.
Útvegsbanki íslands hf. tekinn til starfa:
Stefnt að aukínní vald-
dreifingn innan bankans
ÚTVEGSBANKI íslands hf.
yfirtókformlega rekstur Útvegs-
banka íslands 1. maí síðastliðinn
og var fyrsti opnunardagur
bankans í gær. Enn er verið að
móta skipurit fyrir starfsemi
nýja hlutafélagsbankans en
stefnt er að því að bankanum
verði skipt upp í rekstrareining-
ar sem hver um sig á að skila
hagnaði og verður útibúum
bankans veitt meira sjálfstæði
en áður var við útlán innan
ákveðinna marka. Hugsanlegt er
einnig að útibúum bankans verði
fækkað en farið verður yfir
rekstrarniðurstöður þeirra innan
skamms. Þá verður stofnuð veð-
deild við bankann. Enginn
aðalbankastjóra Útvegsbankans
heldur áfram störfum hjá nýja
bankanum en um 95% af öðru
starfsfólki Útvegsbankans hefur
tekið boði um endurráðningu,
þar á meðai allir útibússtjórar
Starfsfólk Útvegsbanka íslands hf. á fyrsta starfsdegi bankans.
maí síðastliðinn. Innborgað hlutafé
bankans er 1 milljarður króna og
skipta hluthafar hundmðum, ýmist
einstaklingar, fyrirtæki, samtök og
stofnanir. Ríkissjóður á enn mikinn
meirihluta hlutabréfa eða sem svar-
ar 750 milljónum en viðskiptaráð-
herra hefur lýst því yfir að hlutabréf
ríkisins í bankanum séu til sölu.
Á fréttamannafundi í gær sagði
bankans nema útibússtjórinn í
Vestmannaeyjum sem enn hefur
ekki gefið ákveðið svar við því
boði.
Hlutafélagsbankinn var stofnað-
ur 7. apríl síðastliðinn og yfírtók
hann formlega eignir, skuldir,
skuldbindingar og rekstur ríkis-
bankans Útvegsbanka íslands 1.
Gísli Ólafsson formaður bankaráðs Útvegsbanka íslands hf. og Guð-
mundur Hauksson bankastjóri.
Gísli Ólafsson formaður bankaráðs
Útvegsbankans hf. að undirbúning-
urinn að yfirtöku hlutafélagsbank-
ans á rekstri Útvegsbankans hefði
verið skammur og því væri ekki
lokið öllum undirbúningi vegna nýja
rekstrarformsins. Meðal annars
hefur ekki enn verið ráðinn nema
annar þeirra bankastjóra sem
ákveðið var að ráða að bankanum
vegna þess að bankastjórnin hefur
verið upptekin af ýmsum öðrum
skipulagsmálum. Gísli sagði þó að
þetta kæmi ekkert niður á við-
skiptavinum bankans.
Guðmundur Hauksson nýráðinn
bankastjóri Útvegsbankans sagði á
fundinum að við mörkun stefnu
nýja bankans yrði miðað við að
reksturinn verði arðbær, þannig að
hlutabréf í bankanum skili arði.
Liður í því væri að gefa útibúunum
aukið sjálfstæði og færa meira vald
í hendur útibússtjórum en þeir yrðu
um leið háðir harðari eftirlitsreglum
en áður. Með þessu yrði bankinn
færður nær viðskiptavininum með
aukinni valddreifíngu.
í lögum um stofnun hlutafélags-
banka um Útvegsbanka Islands er
gert ráð fyrir að ríkisábyrgð á inni-
stæðum í Útvegsbankanum falli
ekki niður fyrr en að tveimur árum
loknum. Einnig er í lögunum bráða-
byrgðaákvæði sem heimilar ríkis-
stjóminni að veita ríkisábyrgð á
skuldbindingar hlutafélagsbankans
gagnvart erlendum aðilum fyrir 1.
maí 1989. Á fundinum kom fram
að þetta er hugsað sem einskonar
reynslutími á hvemig hlutafélags-
bankanum gengur að halda við-
skiptasamböndum Útvegsbanka
íslands erlendis sem sum hver hafa
staðið í meir en hálfa öld. Gísli Ól-
afsson sagðist þó ekki vera í vafa
um að traust erlendra viðskiptaað-
ila á Útvegsbankanum myndi ekki
rýrna við rekstrarbreytinguna og
að Útvegsbanki íslands yrði vel í
stakk búinn til að veita þá íjöl-
breyttu þjónustu sem viðskiptalíf
nútímans krefst og mæta auknum
kröfum í framtíðinni.