Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.05.1987, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987 19 Viðhorf og efnisrök dr. Hannesar sjást vel á því, að hann, hinn þekkti talsmaður fijálshyggjunnar, bytjar strax á því í þriðju línu inngangs- ins, að telja upp það sem íhalds- menn álíti veikleika hennar: Hún geri sér of einfalda hugmynd af mannlegu eðli, að hún taki ekki til- lit til þess að einstaklingurinn tengist samfélagi sínu tilfinninga- lega, og svo geri hún ósanngjamar kröfur til hæfileika mannsins til þess að sætta sig við vonbrigði, sætta sig við brigðir væntinga sinna. Fijálshyggjan kann einnig — heldur gagnrýnin áfram — að vera staðleysukenning í tvennum skiln- ingi: Hún leitast við að snúa við þróun í átt ti 1 ríkisstýrðs stéttaþjóð- félags (corporatism, sem er fasismi, hvað sem litrófínu líður) þróun, sem kann að vera útilokað að snúa við. Hitt er það, að hún reyni að færa allt mannkyn í treyju eða mót af því tagi sem hún álíti vera hið góða mannlíf. Þetta og ýmislegt fleira telur hann upp sem gagniýni á fijáls- hyggjuna. En hann telur að fijáls- hyggja Hayeks sé ekki opin fyrir þeirri gagnrýni. Hans ftjálshyggja sé íhaldssöm fijálshyggja, conser- vative liberalism. Hún taki tillit til skilnings hinna íhaldssömu á mannlegu eðli og innsýnar þeirra í eðli mannsins. Honum finnst þessi einstæði samruni fijálslyndra og íhaldssamra hugmynda geri stjóm- málakenningar Hayeks áhugaverð- ari en aðrar slíkar kenningar í samtímanum. Bókin fjallar svo um þessi miklu mál, sem að lokum varða oss öll, þótt orðafar hinna vísu manna geri skoðanir þeirra stundum erfíðar aðgöngu. Þrátt fyrir það að á forsendum Hayeks megi draga bæði íhalds- samar og ftjálslyndar ályktanir, þá gætir samræmis hjá honum. Hann sé fylgismaður hinnar fijálslyndu menningar Vesturlanda, sem náð hafí svo glæsilegum árangri, þrátt fyrir fáfræði einstaklinganna. Fijálsi markaðurinn hefir einmitt reynst hinn mikli bjargvættur, þekkingarmiðill. En oss ber að virða erfðavenjur og reglur, tákn og siði, þótt vér skiljum ekki alltaf þessa hluti, vegna þess að þeir eru nauð- synlegir ef vér eigum að geta átt friðsamleg og öllum gagnleg sam- skipti við samferðamennina. Oss ber að treysta því sem vér trúum, en það hlýtur að þýða það sama og að vera heilir menn. Grundvallarskoðun Hayeks er sú, að frelsið þurfi maðurinn til að þroska hæfileika í lífi, sem sé langt ferðalag inn í hið óþekkta. Niðurstaða dr. Hannesar er sú, að kenningar Hayeks uppfylli ekki öll sín loforð. Hann færist of mikið í fang. En bæði fijálslyndir og íhaldsmenn geti margt hjá honum lært. Bók dr. Hannesar ber vitni mikl- um lærdómi og skynsamlegu viti. Hún er gleðilegur vottur þess, að þessi litla þjóð er ein rödd í hinum mikla menningarkór þjóðanna — þrátt fyrir smæð sína. Um prentun og band og annan frágang er það að segja, að þetta er vandað, og um smekk má alltaf deila. Bókin er tölvuframleidd. Eitt á ég þó bágt með að sætta mig við, en það er, hve þéttar línumar eru. Ég hlýt að álykta að maðurinn sem réði þessu lesi sjálfur ekki bækur. Höfundur er hagfræðingur og fyrrum ráðunautur ríkisstfómar- innar í efnahagsmálum og bankastjóri Framkvæmdabank- ans. Aðalfundur sjóréttar- félagsins AÐALFUNDUR Hins íslenska sjóréttarfélags verður haldinn í Lögbergi mánudaginn 11. maí næstkomandi. Fundurinn fer fram í stofu 308 og hefst kl. 17.15. Plastfæribönd MINNAVIÐHALD-LENGRIENDING intralox Ef þú þarft að kaupa ný eða endurnýja færibönd fyrir iðnað eða fisk- vinnslu, skaltu fjárfesta í plastfæriböndum. Það er engin spurning. Ástæðurnar eru einfaldar: 1. Þau eru sterkari en málmfæribönd. 3. 2. Þau eru endingarbetri. /'AMRTVÍS Þurfa minna viðhald, auðveldari í viðgerð. Þau eru þrifalegri, síðast en ekki síst. Hamrabor'g 5 - 200 Kópavogi. Simi 91-641550. - Pósthólf 308 Leitaðu nánari upplýsinga. Firestone radial hjólbarðarnir tryggja öryggi þitt og annarra Morgunblaðið/Þorkell Frá keppni á íslandsmótinu í parakeppni. Soffía Guðmundsdóttir og Stefán Ragnarsson frá Akureyri keppa við Jón Sigurbjörnsson og Björku Jónsdóttur frá Siglufirði. Jón og Björk urðu í 2. sæti á mótinu en Soffía og Stefán urðu í 4. sæti. íslandsmótið í parakeppni í brids: Þorlákur og Jacqui unnu JACQUI McGrail og Þorlákur Jónsson unnu íslandsmótið í blönduðum tvímenningsflokki í brids sem haldið var um helgina. Alls tóku 42 pör þátt í mótinu. Kristjana Steingrímsdóttir og Þórarinn Sigþórsson leiddu mótið lengstaf en undir lokin gáfu þau eftir og þá fóra tvö pör uppfyrir þau, Jacqui og Þorlákur og Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjömsson. Mótið var haldið í húsnæði Bridgesambands íslands við Sigtún og Agnar Jörgenson var keppnis- stjóri. FIRESTONE radial hjólbarðarnir eru framleiddir undir ströngu gæðaeftirlití sem tryggir öryggi þitt og fjölskyldu þinnar. Sérstæð lögun og mynstur gefa frábært grip og mýkt bæði á malarvegum og malbiki, sem veitir hámarks öryggi og þægindi í akstri, innanbæjar sem utan. FIRESTONE eru einu radial hjólbarðarnir sem eru sérhannaðir jafnt til aksturs á malarvegum og malbiki. Og þeir eru úr níðsterkri gúmmíblöndu sem endist og endist og endist... UMBOÐSMENN UM LAND ALLT! NYBYLAVEGI2 KÓPAVOGI SÍMI 42600 JOFUR HF Þóra Dal, auglýsingastofa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.