Morgunblaðið - 05.05.1987, Page 24

Morgunblaðið - 05.05.1987, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987 Ellefu dómnefnd- armenn valdir fyr- ir söngvakeppnina RÍKISÚTV ARPIÐ hefur nú skipað dómnefnd Islands í Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva sem haldin verður i Briissel næstkomandi laugar- dagskvöld. Dómnefndarmenn voru valdir í hópi þeirra sem gáfu kost á sér með því að senda Ríkisútvarpinu nafn sitt. Ellefu sitja í dómnefndinni auk formanns og ritara. Þau eru: Asa María Ásgeirsdóttir 18 ára fisk- vinnslukona í Vestmannaeyju, Einar Már Ríkarðsson 22 ára sjó- maður í Reykjavík, Guðmunda Ingimundardóttir 27 ára skrif- stofumaður og húsmóðir Höfn í Homafirði, Hildur Karen Aðal- steinsdóttir 16 ára grunnskóla- nemi á Bolungarvík, Jóhannes Guðlaugsson 20 ára verslunar- maður í Kópavogi, Nanna L. Svavarsdóttir 22 ára háskólanemi í Reykjavík, Oddrún Kristjáns- dóttir 35 ára framkvæmdastjóri í Reykjavík, Óskar I. Örlygsson 18 ára framhaldsskólanemi í Garðin- um, Steingrímur Guðjónsson 30 ára vélvirki á Akranesi, Þorsteinn Pétursson 42 ára tollafgreiðslu- maður á Akureyri og Þóra Siguijónsdóttir 55 ára húsmóðir Gaulveijabæjarhreppi. Formaður dómnefndarinnar verður Markús Öm Antonsson útvarpsstjóri og ritari Guðrún Skúladóttir. Þau tvö hafa ekki atkvæðisrétt um sönglögin. Reuter Halla Margrét Amadóttir á æfingunni í Brussel i gær. Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva: Islensku keppend- uniir mættir til leiks Brussel, frá Jóhönnu Ingvaradóttur, blaða ÍSLENSKU keppendurnir, sem keppa að þessu sinni fyrir ís- lands hönd i söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva komu tíl Brussel sl. sunnudag, en keppnin fer hér fram næstkom- andi laugardag og verður henni sjónvarpað beint til 500 milljón manns. Þetta er þrítugasta og önnur mni Morgunblaðsins söngvakeppnin sem haldin er á veg- um evrópskra sjónvarpsstöðva, en aðeins í annað sinn sem íslendingar eru meðal þátttakenda. í fyrra var keppnin haldin í Bergen, þar sem þau Pálmi, Eiríkur og Helga sungu Gleðibanka Magnúsar Eiríkssonar inn í 16. sætið, eins og flestum er í fersku minni. Að þessu sinni taka 22 þjóðir þátt í keppninni og hófust æfingar strax í gær. Hverju landi eru úthlut- aðir tveir æfingatímar, fyrst í 40 mínútur og síðan í 25 mínútur á sviði. íslendingamir, þau Valgeir Guðjónsson, Halla Margrét Áma- dóttir, Sverrir Guðjónsson, Egill Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú munu koma fram númer §ögur í aðalkeppninni, næst á eftir Austurríki. Hljómsveitarstjóm ann- ast Hjálmar H. Ragnarsson. Norðmenn ríða á vaðið og síðan Israelmenn. Eftir framlag Valgeirs, „Hægt og hljótt" koma Belgar fram, síðan Svíar, ítalir, Portúgalir, Spánveijar, Tyrkir, Grykkir, Hol- lendingar, Lúxemborgarar, Bretar , Frakkar, Þjóðveijar, Kýpurbúar, Finnar, Danir, írar, Júgóslavar og loks Svisslendingar. Kynnir verður Viktor Lazlo, sem sjálf hóf sinn söngferil fyrir þremur ámm síðan. Fyrsti blaðamannafundur íslenska liðsins var haldinn í gær eftir æfíngu. Valgeir var þá spurður af hveiju hann hefði fengið Höllu Margréti, unga og tiltölulega óreynda söngkonu til að syngja lag- ið sitt. Hann svaraði því til að hann hefði lofað henni því að sigra ekki í keppninni á íslandi, en úr því að það gerðist, væri ljóst að hann gæfi engin fleiri loforð. „Við tökum ekki þátt í keppninni til að sigra, heldur til að vera með og kynna landið okkar. Við vorum í 16. sæti í fyrra og ef við getum gert betur núna er það af hinu góða. Hins vegar, ef við sigruðum núna, yrðum við örugglega gjaldþrota, ef við ættum að halda keppnina," sagði Valgeir. Æfíngar íslenska liðsins gengu mjög vel í gær, að sögn Bjöms Björnssonar hjá Hugmynd, sem sér um skipulagningu á keppninni. Hins vegar sagði hann að allar móttökur hér í Brussel hefðu farið úr skorðum þegar til átti að taka. í forsíðufrétt eins stærsta dagblaðs í Brussel var haft eftir ísraelsmönnum að mótt- tökur stjamanna væru í molum. Bjöm sagði að öll skipulagning sviðssetningar og tæknibúnaðar væri hins vegar fullkomin og leik- myndin á heimsmælikvarða. Útvegsbanki íslands hf. tekinn til starfa: Stefnt að aukínní vald- dreifingn innan bankans ÚTVEGSBANKI íslands hf. yfirtókformlega rekstur Útvegs- banka íslands 1. maí síðastliðinn og var fyrsti opnunardagur bankans í gær. Enn er verið að móta skipurit fyrir starfsemi nýja hlutafélagsbankans en stefnt er að því að bankanum verði skipt upp í rekstrareining- ar sem hver um sig á að skila hagnaði og verður útibúum bankans veitt meira sjálfstæði en áður var við útlán innan ákveðinna marka. Hugsanlegt er einnig að útibúum bankans verði fækkað en farið verður yfir rekstrarniðurstöður þeirra innan skamms. Þá verður stofnuð veð- deild við bankann. Enginn aðalbankastjóra Útvegsbankans heldur áfram störfum hjá nýja bankanum en um 95% af öðru starfsfólki Útvegsbankans hefur tekið boði um endurráðningu, þar á meðai allir útibússtjórar Starfsfólk Útvegsbanka íslands hf. á fyrsta starfsdegi bankans. maí síðastliðinn. Innborgað hlutafé bankans er 1 milljarður króna og skipta hluthafar hundmðum, ýmist einstaklingar, fyrirtæki, samtök og stofnanir. Ríkissjóður á enn mikinn meirihluta hlutabréfa eða sem svar- ar 750 milljónum en viðskiptaráð- herra hefur lýst því yfir að hlutabréf ríkisins í bankanum séu til sölu. Á fréttamannafundi í gær sagði bankans nema útibússtjórinn í Vestmannaeyjum sem enn hefur ekki gefið ákveðið svar við því boði. Hlutafélagsbankinn var stofnað- ur 7. apríl síðastliðinn og yfírtók hann formlega eignir, skuldir, skuldbindingar og rekstur ríkis- bankans Útvegsbanka íslands 1. Gísli Ólafsson formaður bankaráðs Útvegsbanka íslands hf. og Guð- mundur Hauksson bankastjóri. Gísli Ólafsson formaður bankaráðs Útvegsbankans hf. að undirbúning- urinn að yfirtöku hlutafélagsbank- ans á rekstri Útvegsbankans hefði verið skammur og því væri ekki lokið öllum undirbúningi vegna nýja rekstrarformsins. Meðal annars hefur ekki enn verið ráðinn nema annar þeirra bankastjóra sem ákveðið var að ráða að bankanum vegna þess að bankastjórnin hefur verið upptekin af ýmsum öðrum skipulagsmálum. Gísli sagði þó að þetta kæmi ekkert niður á við- skiptavinum bankans. Guðmundur Hauksson nýráðinn bankastjóri Útvegsbankans sagði á fundinum að við mörkun stefnu nýja bankans yrði miðað við að reksturinn verði arðbær, þannig að hlutabréf í bankanum skili arði. Liður í því væri að gefa útibúunum aukið sjálfstæði og færa meira vald í hendur útibússtjórum en þeir yrðu um leið háðir harðari eftirlitsreglum en áður. Með þessu yrði bankinn færður nær viðskiptavininum með aukinni valddreifíngu. í lögum um stofnun hlutafélags- banka um Útvegsbanka Islands er gert ráð fyrir að ríkisábyrgð á inni- stæðum í Útvegsbankanum falli ekki niður fyrr en að tveimur árum loknum. Einnig er í lögunum bráða- byrgðaákvæði sem heimilar ríkis- stjóminni að veita ríkisábyrgð á skuldbindingar hlutafélagsbankans gagnvart erlendum aðilum fyrir 1. maí 1989. Á fundinum kom fram að þetta er hugsað sem einskonar reynslutími á hvemig hlutafélags- bankanum gengur að halda við- skiptasamböndum Útvegsbanka íslands erlendis sem sum hver hafa staðið í meir en hálfa öld. Gísli Ól- afsson sagðist þó ekki vera í vafa um að traust erlendra viðskiptaað- ila á Útvegsbankanum myndi ekki rýrna við rekstrarbreytinguna og að Útvegsbanki íslands yrði vel í stakk búinn til að veita þá íjöl- breyttu þjónustu sem viðskiptalíf nútímans krefst og mæta auknum kröfum í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.