Morgunblaðið - 05.05.1987, Síða 25

Morgunblaðið - 05.05.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987. 25 Gjöf Tokai-háskóla til Jarðhitaskólans Á undanfömum fjórum árum hafa visindamenn frá Tokai- háskólanum í Tókýó í Japan stundað rannsóknir á íslandi á sviði jarðvísinda, bæði sjálfstætt og í samvinnu við innlenda aðila, m.a. Orkustofnun. Rannsóknimar hafa verið kost- aðar af útgáfufyrirtækinu Kyoikus- ha í Japan. Nú er rannsóknaverk- efninu lokið og japönsku vísindamennimir á fömm. Þeir hafa hins vegar ákveðið að skilja eftir á íslandi þau vísindatæki, sem hópur- inn hefur notað. Um er að ræða §ölda tækja til jarðvísindalegra Ný barnabók: Skotta og vinir hennar MÁL og menning hefur gefið út bókina Skotta og vinir hennar eftir Margréti E. Jónsdóttur. Anna V. Gunnarsdóttir teiknaði myndimar í bókina. í fréttatilkynningu segir að sag- an íjalli um dýralífíð við sumarbú- stað í íslenskri sveit. Húsamúsin Skotta er ein eftir í holu fjölskyld- unnar og verður skelfíngu lostin þegar mannfólkið birtist um vorið. En hún er hugmyndarík og dugleg og ákveður að læra mannamál til að ráða betur við þessa óvæntu gesti í bústaðnum sem holan henn- ar er við. Margrét E. Jónsdóttir er frétta- maður á Ríkisútvarpinu og er þetta fyrsta bókin hennar. Anna V. Gunn- arsdóttir vinnur einnig sína fyrstu bókarskreytingu í Skottu og vinum hennar. Bókin er 98 bls. að stærð og unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Minningar- sjóður um Einar frá Einarsstöðum Nokkrir vinir Einars heit- ins á Einarsstöðum hafa stofnað sjóð við útibú Lands- banka íslands á Húsavík til minningar um Einar. Verður fé úr sjóðnum varið til styrktar ekkju Einars og dótt- ur þeirra hjóna og með þeim hætti reynt að létta þeim lífsróð- urinn. Með því vilja þeir sem þama eiga hlut áð máli minnast Einars og þjónustu hans við þá sem til hans leituðu í marg- háttuðum erfíðleikum. Jafn- framt er minnst á hlut eiginkonunnar sem ávallt stóð við hlið manns sfns og studdi hann í þessum efnum eins og best mátti verða. (Fréttatiikynning) Wterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill! rannsókna. Kyoikusha-fyrirtækið og Tokai-háskólinn hafa ákveðið að afhenda Jarðhitaskóla Samein- uðu þjóðanna tækin til afnota fyrir nemendur skólans frá þróunarlönd- unum. Tækin koma til með að nýtast nemendum Jarðhitaskólans í verkefnum vegna jarðfræði, efna- fræði og eðlisfræði jarðhitasvæða. Um leið munu tækin nýtast þeim íslensku vísindamönnum, sem kenna nemendum skólans. Þessi gjöf er mikil lyftistöng fyrir starf- semi Jarðhitaskólans. Dr. Goro Miyata frá Kyoikusha- útgáfufyrirtækinu afhenti Jarðhita- skólanum vísindatækin formlega, að viðstöddum nemendum skólans. Morgunblaðið/Einar Falur Fulltrúar japönsku fyrirtækjanna afhenda dr. Jóni Steinari Guð- mundssyni skólastjóra Jarðhitaskólans tækin. Leitin að konunni ár- angurslaus LEITIN að konunni í Vest- mannaeyjum hefur engan árangur borið og hefur nú ver- ið að mestu hætt. Næstu daga verður þó haldið áfram að ganga fjörur. Konan, Bryndís Karlsdóttir, 51 árs, til heimilis að Hólagötu 16 í Vestmannaeyjum, er gift og á fjóra uppkomna syni. Hún fór að heiman aðfaranótt þriðjudagsins fyrir viku, en síðan hefúr ekkert til hennar spurst. Björgunarfélag Vestmannaeyja og Hjálparsveit skáta hafa leitað hennar með að- stoð sporhunds og þyrlu Land- helgisgæslunnar. Víifell hf. valdi Barkaitiúseiningar. Árið 1982 byggði Vrfilfell hf. úr Barkarhúseiningum 1800 m2 verksmiðjuhús og annað jafnstórt á síðasta ári. Barkarhúseiningar eru sterkar, einfaldar í uppsetningu og byggingartíminn því mun skemmri en með hefðbundnum aðferðum. Það skiptir verulegu máli að byggingartími verk- smiðjuhúsa sé skammur þannig að byggingin skili arði sem fyrst. Húseiningarnar eru einangraðar með pólýúrethan, sem hefur minnstu hitaleiðni þeirra einangrunarefna sem eru á mar- kaðnum. Góður frágangur gerir það að verkum að allt viðhald er í lágmarki, innan dyra sem utan. Barkarhúseiningar halda rekstrarkostnaði byggingarinnar i lágmarki. Þegar byggt er úr Barkarhúseiningum er auðvelt að stækka og breyta, eftir því sem umsvifin aukast. Barkarhúseiningar gera þér auðveldara að byrja smátt og láta húsnæðið síðan aðlagast umsvifunum en ekki að húsnæðið standi þeim fyrir þrifum. GERÐU RAUNHÆFAN SAMANBURÐ Á BARKAR HÚS- EININGUM OG HEFÐBUNDNUM BYGGINGARAÐFERÐUM. BÚRKUR hf. HJALLAHRAUNI 2 SÍMI 53755 PÓSTHÓLF 239 ■ 220 HAFNARFIRÐI ÓSA/SlA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.