Morgunblaðið - 05.05.1987, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 05.05.1987, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987 Filippseyjar: 16 hermenn féllu í fyrirsát skæruliða Maníla, Reuter. SKÆRULIÐAR kommúnista drápu a.m.k. 16 hermenn í gær og særðu fjölmarga er þeir gerðu sveit stjórnarhersins fyrirsát í héraðinu Aklan, sem er suðaust- ur af Maníla, höfuðborg Filipps- eyja. Líbanon: Karami hætt- ir sem forsæt- isráðherra Beirut, Reuter. RASHID Karami, sem er af trú- flokki súnní-múslima, sagði af sér í gær sem forsætisráðherra i líbönsku „þjóðareiningarstjórn- inni“ en hún var mynduð fyrir þremur árum i þvi skyni að binda enda á borgarastríðið í landinu. „Mér ber skylda til að gera það, sem gagnar þjóðinni best, og þess vegna hef ég ákveðið að segja af mér,“ sagði Karami en samkvæmt stjórnarskránni er afsögn forsætis- ráðherrans um leið afsögn allrar stjórnarinnar. Amin Gemayel, for- seti og kristinn maróníti, hafði í gær ekkert um afsögnina sagt en ráðherrar múhameðstrúarmanna hafa ekki haft neitt samstarf við Gemayel síðan í janúar í fyrra þeg- ar forsetinn neitaði að fallast á friðaráætlun Sýrlendinga. Fyrir tveimur vikum komu allir ráðherrar ríkisstjómar saman á fund í fyrsta sinn í sjö mánuði og var þá rætt um leiðir til að vinna gegn vaxandi efnahagsöngþveiti í landinu. Varð af honum lítill árang- ur og síðan hafa ráðherrar múhameðstrúarmanna og kristinna deilt hart hverir á aðra. Talsmaður hersins sagði her- sveitina hafa ekið beint í fangið á skæruliðum, sem falið hefðu sig í runnum beggja vegna þjóðvegarins og hafið gífurlega skothríð er sveit- in fór hjá. Hefðu þeir tekið rifla hinna föllnu hermanna og flúið síðan. Fjórtán hermenn hefðu fallið á staðnum ogtveirtil viðbótar hefðu látizt á sjúkrahúsi. Mannfall stjórn- ERLENT arhersins er hið mesta í einni viðureign frá því Corazon Aquino, forseti, komst til valda fyrir rúmu ári. Aquino gagnrýndi Bandaríkja- stjóm í gær fyrir það sem hún kallaði seinagang í afhendingu her- gagna, sem talin væm mikilvæg í baráttunni gegn skæruliðum. Enn- fremur gagnrýndi hún stjómar- herinn fyrir getuleysi en sagði ekki von á miklu meðan Bandaríkja- stjórn ætlaðist til að hann berðist „með bemm höndum“. Búist er við að átök eigi eftir að aukast næstu daga vegna þing- kosninga 11. maí næstkomandi. Stjómarherinn er í viðbragðsstöðu og víða hefur verið gripið til mikilla varúðarráðstafana. Afvopnunartillögur Sovétmanna: Vel fór á meö þeim Kohl og Chirac og hvorugur þeirra vill, að Evrópa veröi ofurseld hernaöaryflrburöum Varsjárbandalagsins. Reuter Vestur- Frakkar o g Vestur-Þjóð- veijar vilja fara sér hægt Ottast að kjarnorkuvopnalaus verði V-Evrópa berskjölduð og auðveld bráð Strasbourg, Reuter. VESTUR-Þjóðverjar og Frakkar sögðu í gær, að þörf væri á frek- ari viðræðum við bandamenn þeirra í Evrópu áður en unnt væri að taka afstöðu til síðustu afvopnunartillagna Sovétmanna. Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, sagði eftir viðræður við Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakklands, að honum og ríkis- stjóminni hefðu enn borist tillögur Sovétmanna í heild og því væri of snemmt að segja nokkuð um þær að svo stöddu. Agreiningur er innan vestur-þýsku stjómarinnar um við- brögð við tillögunum en haft er eftir aðstoðarmönnum Kohls, að hann muni flytja ræðu um þetta mál á þingi nk. fimmtudag. Kohl og Chirac sögðu, að Evr- ópuríkin yrðu að samræma viðbrögð sín við sovésku tillögunum og Chirac, sem fer til Moskvu 14. maí nk., sagði, að franska stjórnin hefði ýmislegt að athuga við þá tillögu, að skammdrægu eldflaugunum yrði eytt. Hans-Dietrich Genscher, ut- anríkisráðherra og leiðtogi fijálsra Tilkomuniik- il sýning- á Aidu í Luxor Luxor, Reuter. ÓPERAN Aida eftir Verdi var frumsýnd sl. laugardag við mikinn fögnuð 3.000 áheyrenda i hinu 3.200 ára gamla hofi í Luxor, þar sem hin forna höf- uðborg Egyptalands, Þeba, stóð til forna og sagan sem Aida segir frá á að hafa gerst. Mikið var lagt í sýninguna, er mikill mannfjöldi tók þátt í og ýmsir frægir söngvarar s.s. ítalski tenórinn, Placido Dom- ingo. Egypskur auðmaður, Fawzi Metwalli, fékk þá hugmynd að setja óperuna upp á þessum stað og lét síðan af því verða. Miða- verð var frá 250 dollurum sætið og upp í 750 dollara (um 9.600 til 28.900 ísl. kr) og mátti meðal áheyrenda sjá ýmsar vel þekktar persónur eins og Susan Mubarak, forsetafrú Egyptalands, Soffíu, Spánardrottningu, Karólínu prinsessu af Mónakó, Karl Lager- feld, tískuhönnuð og Michael Heseltine, fyrrverandi varnar- málaráðherra Breta. Sýningin þótti vera tilkomumikil og takast vel, sérstaklega hópatriðin í öðr- um þætti, er fjöldi egypskra hermanna lék í, þó hljómburður hafi ekki verið nógu góður. Dom- ingo sagði eftir frumsýninguna að það hefði verið stórkostlegt að taka þátt í þessari sýningu, Verdi hefði án efa verið ánægður með umhverfið en sjálfsagt hefði hann viljað heyra hljómlistina betur. Eins og kunnugt er fékk Khedive Ismail, stjómandi Egyptalands, Guiseppe Verdi til að semja óperuna í tilefni vígslu Súesskipaskurðarins árið 1869, en ekki var hún þó frumsýnd fyrr en 1871 og þá í Kaíró. Frumsýningargestir í Luxor létu í ljósi ánægju sína með sýn- inguna og höfðu margir á orði að umhverfíð, hofíð gamla, sfín- xamir og styttumar af Ramsesi II og Nefertari drottningu, gerði það að verkum að þetta kvöld myndi aldrei gleymast. Eftir sýn- inguna fóm þeir flestir á brott um Luxorflugvöll, þar sem nútím- inn réð ríkjum og prúðbúið fólkið sté um borð í þotur af ýmsum stærðum og gerðum. Þegar er farið að tala um að flytja óperuna Samson og Delilu í Luxor áður en langt um líður. Reuter Stórsöngvarinn Placido Domingo í hlutverki sínu i Aidu. demókrata í Vestur-Þýskalandi, vill, að stjórnin fallist á tillögur Sovétmanna um að skammdrægum flaugum, sem draga 500-1000 km, verði eytt innan 12 mánaða frá samkomulagi um meðaldrægu flaugarnar en Manfred Wörner vamarmálaráðherra og aðrir frammámenn kristilegra demókrata eru því andvígir. Vilja þeir, að Nato krefjist þess að fá að hafa vissan flölda af skammdrægum flaugum til að vega upp á móti skammdræg- um flaugum Sovétmanna, sem draga minna en 500 km, og marg- földum hernaðaryfirburðum Var- sjárbandalagsins. Frakkar hafa áhyggjur af, að verði fallist á tillögur Sovétmanna sé þar með búið að stíga fyrsta skrefíð í átt að allsheijarkjarnorku- afvopnun í Evrópu en kjarnorku- vopn eru burðarásinn í vörnum Frakklands. Segja þeir, að kjam- orkuvopnalaus sé Vestur-Evrópa berskjölduð og Varsjárbandalaginu auðveld bráð ef til styijaldar kæmi. Ariane-flaugin: Geimskot dregst enn París, Reuter. EVRÓPSKU geimflauginni Ariane verður að öllum líkindum ekki skotið á loft fyrr en í júlí eða ágúst vegna bilana í hreyfli efsta hluta flaugarinnar að sögn talsmanns frönsku geimvisindastofnunarinnar. Ekki hefur enn tekizt að fínna lausn á vandamáli, sem lýsir sér í því að keflalegur í eldsneytisdælum hreyfíls efsta þreps flaugarinnar of- hitna. Vonast hafði verið til að hefja geimskot að nýju í febrúar sl. Veður- far hefur hins vegar verið mjög óhagstætt til utanhússtilrauna með endurbættan hreyfil og var því ákveð- ið um helgina að fresta geimskotum a.m.k.. fram í júlflok. Hefur það í för með sér að ekki verður um að ræða nema þijár til fjórar geimferðir flaug- arinnar á þessu ári. Ariane er fullbók- uð næstu þijú árin og bíða 44 gervihnettir þess að flaugin flytji þá á braut um jörðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.