Morgunblaðið - 05.05.1987, Qupperneq 27
?ser ÍAM ?. HUOAaUiaiíM ,GIGAieV(Ti;;HOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1987
8S
27
Bandaríkin:
Kvennalístínn
vekur athygli
Washington, frá fvari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ATHYGLI er vakin hér í Was-
hington í dag á sigri Kvennalist-
ans í Alþingiskosningunum með
grein eftir dálkahöfundinn Ellen
Goodman.sem skrifar rabbdálka
fyrir fjölda blaða í Bandarílqun-
um, frá Boston. Greinin birtist í
The Washington Post. Höfundur
fjallar um þá athygli sem
Reykjavík hefur hlotið á alþjóða-
vettvangi á undanförnum árum;
skákeinvígi Spasskis og Bobbys
Fisher og leiðtogafund Reagans
og Gorbachevs.
Minnst er á nokkur atriði, sem
komið hafa íslenskum konum í
sviðsljósið ,t.d. kjör Vigdísar forseta
og kvennafrídaginn um árið. Þá
gleymist ekki að minna á þá stað-
reynd, að íslenskar konur halda
skímar- og föðumafni sínu eftir
giftingu í stað þess að bera nafn
bónda síns
Talsvert er gert úr því, að innan
Kvennalistans sé enginn forystu-
sauður heldur séu allir jafn réttháir
til áhrifa. Karlmenn geti verið með-
limir í flokknum, en séu ekki
kjörgengir til Alþingis eða í ábyrgð-
arstöður fyrir flokkinn. í greininni
segir, að 80 prósent af íslenskum
konum vinni utan heimilsins og
beri úr býtum 40 prósent lægri laun
en karlar.
Greinarhöfundur skýrir frá
símtali,sem hún hafi átt við Guðr-
únu Agnarsdóttur .“Fólk skilur
ekki.að við getum starfað án þess
að hafa foringja“,er haft eftir Guðr-
únu, sem neitar því algerlega að
hún sé leiðtogi listans. “Við skiptum
með okkur verkum og vinnum sam-
an,“ er einnig haft eftir henni.
Loks spáir greinarhöfundur.að
það verði erfítt að mynda stjóm á
Islandi án þátttöku Kvennalistans.
Á sömu síðu og grein Ellenar
Goodman er birt safn skopteikninga
úr ýmsum bandarískum blöðum.
Það er vani blaðsins.að birta slíkt
safn á laugardögum. Nú vill svo til
að hér kemur ísland einnig við sögu,
það er að segja sjálfur Leifur Eíríks-
son. í skopmyndasafninu em fímm
teikningar í undir fyrirsögninni
“Hrottaverk á höfunum“(Terrors
of the Seas“). Fyrsta myndin er af
Leifí heppna og er hann sýndur
grár fyrir járnum með hrútshorns-
hjálm í anda hetjudýrkunar
Wagners á höfði. í baksýn er
víkingaskip og getur þar einnig að
líta ártalið 995. Næsta mynd er
merkt ártalinu 1718 og er af sjóræn-
ingjanum “Svartskegg“. Sú þriðja
er af kafbáti frá 1940. Hin fjórða
er af þýska orustuskipinu Bismarck
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
GENGI Bandaríkjadollara lækk-
aði gagnvart flestum helstu
gjaldmiðlu heims í gær en gull
hækkaði í Zilrich. Markaðir voru
lokaðir í London og Tókýó.
Breska sterlingspundið hefur
ekki varið jafnhátt gagnvart dollara
síðan í nóvember árið 1982 og kost-
aði 1,6810 dollara (1,6680).
Á meginlandi Evrópu kostaði
dollarinn 139,90 japönsk jen
(140,30).
Gengi annarra helstu gjaldmiðla
var með þeim hætti að dollarinn
kostaði: 1,7695 vestur-þýsk mörk
(1,7815), 1,4515 svissneska franka
(1,4600), 5,9300 franska franka
(5,9500), 2,0050 hollensk gyllini
(2,0110), 1.273,375 ítalskar lírur
(1.279,50) og 1,3457 kanadíská
dollara (1,3375).
í Ziirich kostaði únsan af gulli
,457,70 dollara (454,00).
og sú fímmta er merkt 1987 og er
af sorpprammanum frá New York,
sem hefír verið að velkjast milli
hafna og landa að undanfömu.
imim
Kattarstytt-
an fölsuð?
Ein frægasta stytta Metropolitan
listasafnsins í New York, rúmlega
37 cm bronsköttur, sem álitinn
var hafa verið kista fomegypskrar
kattarmúmíu, er að áliti sérfræð-
inga mjög líklega nútíma eftirlík-
ing. Safnið keypti kattarstyttuna
árið 1958 og hefur hún síðan skip-
að þar heiðurssess. Á þessari
mynd sést styttan og er röntgen-
mynd af henni til hægri, en til
vinstri en röntgenmynd af ófals-
aði fomegypskri styttu.
Victor VPC II - nú er harði diskurinn 30 Mb í stað 20 Mb áður, en verðið er óbreytt.
LEYNDARMÁLIÐ
að baki góðri tölvu er hugvit, tœkni og góð þjónusta
VICTOR og Einar J. Skúlason hf. eru fyrirtœki sem þú getur treyst
Til að góð tölva standi undir nafni þarf hún að hafa að
baki samhent þjónustulið sem bregst fljótt og vel við
ófyrirsjáanlegum vandamálum, sem skotið geta upp
kollinum á meðan fólk er að ná tökum á tækninni.
Victor einmenningstölvurnar hafa fyrir löngu sannað
ágæti sitt. Reynslan sýnir að þær eru vandaðar, sterk-
byggðar og hafa lága bilanatíðni. Síðastliðna 9 mánuði
hafa liðlega 1200 nýjar Victor tölvur verið teknar í
notkun hér á landi og segir það meira en nokkur orð
um álit íslenskfa athafnamanna á Victor. Ánægðir við-
skiptavinir eru okkar bestu meðmæli.
Þjónustudeild Einars J. Skúlasonar hf. hefur á að skipa
þaulreyndu og vel menntuðu starfsfólki sem leggur
metnað sinn í að veita nákvæmar upplýsingar og
trausta þjónustu.
Victor tölvan er mjög ríkulega útbúin. Hún hefur
vinnsluminni í fullri stærð, þ.e. 640 kb., raunverulegan
16 bita örgjörfa (8086) og er ákaflega hraðvirk. Victor
fylgist vel með nýjungum og kappkostar að vera leið-
andi í þróun einmenningstölva.
Victor kynnir nýjungar:
★ Nýtt lyklaborð
★ Nýtt stýrikerfi: MS DOS 3.2
★ Nýr 30 Mb. harður diskur.
VICTR
Kynntu þér Victor nánar - það borgar sig.
Einar J. Skúlason hí.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33