Morgunblaðið - 17.06.1987, Qupperneq 1
80 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
134. tbl. 75. árg.
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gleðilega þjóðhátíð
Þjóðhátíðardegi verður fagnað með margvíslegum hætti um land allt í dag. Á síðum 76
og 77 er rækilegt yfirlit yfir viðburði dagsins og hátíðarhöld. Á myndinni sést Amarstapi
á Snæfellsnesi.
Ekkert óhreint
í pokahominu
- sagði Reagan um greiðslur til skæruliða
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti sagði í gær að engar
sannanir væru um að hann
hefði átt þátt í að láta greiðsl-
ur Irana
fyrir vopn
renna í vasa
skæruliða í
Nicaragua
og yrði því
ekki hægt að
ákæra hann
vegna vopna-
sölumálsins.
„Ég hef ekkert óhreint í poka-
hominu," hrópaði Reagan til
blaðamanna áður en hann gekk til
málsverðar með öldungadeildar-
þingmönnum repúblikana.
Blaðamaður hafði spurt forset-
ann um ummæli þingmannsins Lees
Hamilton, formanns nefndarinnar,
sem rannsakar vopnasölumálið,
þess efnis að lögð yrði fram krafa
um að ákæra forsetann ef í ljós
kæmi að hann hefði lagt blessun
sína yfir að láta greiðslur renna til
kontra-skæruliða. Er þetta afdrátt-
arlausasta neitun forsetans um
aðild að málinu.
Kviðdómur
sýknarGoetz
New York, Reuter.
BERNHARD Goetz, sem sakað-
ur var um að hafa reynt að
myrða fjóra svarta táninga i
neðanjarðarlest i New York,
var í gær sýknaður. Goetz sagði
að unglingamir hefðu reynt að
ræna sig.
Kviðdómur sagði að Goetz, sem
er hvítur, væri aðeins sekur um
að hafa átt byssu án leyfis þegar
hann skaut á mennina flóra í des-
ember 1984.
Látið hefur verið á mál Goetz
sem prófmál. Annars vegar hefur
því verið haldið fram að Goetz
hafi einfaldlega svarað fyrir sig
þegar ráðast átti á hann, en hins
vegar hefur hann verið kallaður
byssuglaður kynþáttahatari.
Itölsku kosningarnar:
Kjósendur vfldu
óbreytta sljórn
Róm, Reuter.
ÁRANGUR ítalska sósíalista-
flokksins í kosningunum um
helgina er sá besti í fjörutíu ár
og styrkur kristilegra demókrata
jókst. Kommúnistaflokkurinn
gait aftur á móti mikið afhroð,
þótt hann hafi haldið velli sem
næststærsti flokkur Ítalíu og
hefst nú mikil leit innan hans að
orsök kosningatapsins.
Ný afvopnunartillaga á samningaborðinu í Genf:
Bandarísk stjómvöld vilja
g-era eftirlit auðveldara
Gcnf, Washington, Reuter.
SAMNINGAMENN Bandaríkja-
stjómar f Genf kynntu í gær
tillögu Ronalds Reagan Banda-
ríkjaforseta um útrýmingu
skammdrægra kjaraorkuflauga
um heim allan. Var þetta gert á
sérstökum fundi í sendiráði *
Bandarfkjanna f Genf og vöktu
bandarfsku embættismennimir á
því athygli að tillaga þessi þjónaði
öryggishagsmunum stórveldanna
beggja og gervallrar heimsbyggð-
arinnar.
Líkt og búist var við eftir fund
utanríkisráðherra Atlantshafsbanda-
lagsríkja í Reylqavík gaf Reagan
forseti bandarískum samningamönn-
um í Genf fyrirskipun um að ná
samningum við hina sovésku starfs-
bræður sína um upprætingu Evrópu-
eldflauganna svonefndu. Pyrstu drög
að þess háttar samningi hafa þegar
verið kynnt í Genf. í sjónvarpsræðu
sinni á mánudagskvöld kvaðst Reag-
an hins vegar stefna að algerri
útrýmingu skammdrægra flauga, en
hingað til hafa samningamennimir
einungis rætt upprætingu þess hátt-
ar flauga í Evrópu.
Á fundinum í Reykjavík lögðu ut-
anríkisráðherramir blessun sína yfir
samkomulagsdrögin varðandi Evr-
ópuflaugamar. Reagan forseti
kvaðst hins vegar hafa falið sendi-
mönnum stjómarinnar að ná fram
samkomulagi um útrýmingu skamm-
drægra kjamorkuflauga á landi um
heim allan. Mikhail Gorbachev Sovét-
leiðtogi hefur lýst því yfir að Sovét-
menn séu reiðubúnir að semja um
útrýmingu skammdrægra flauga í
Evrópu samhliða því að meðaldrægar
flaugar, sem draga um 1.000 til
5.000 kílómetra, verði upprættar.
Samkvæmt tillögu Reagans er fallist
á þetta sjónarmið Gorbachevs jafn-
framt því sem tillaga forsetans
gengur einu skrefi lengra. Utanríkis-
ráðherrar NATO hvöttu einnig til
„allsheijar útrýmingar" þeirra kjam-
orkufiauga sem draga 500 til 1.000
kílómetra i lokaályktun Reykjavík-
urfundarins. Reagan lét þess getið
að hann vonaðist til að á endanum
mjmdu stórveldin jafnframt semja
um upprætingu meðaldrægra flauga
utan Evrópu.
Samkvæmt áðumefndu uppkasti
sem gert var í Genf er gert ráð fyr-
ir að bæði stórveldin haldi eftir 100
kjamaoddum í meðaldrægum flaug-
um utan álfunnar. Utanríkisráðherr-
amir hvöttu til þess í lokaályktun
Reykjavíkurfundarins að flaugar
þessar yrðu jafnframt upprættar.
Hið sama gildir um hinar skamm-
drægu. V amarmálaráðherrar
NATO-ríkja komust að sömu niður-
stöðu um meðaldrægar flaugar á
fundi sinum í Stavanger á dögunum.
Úrslit kosninganna þykja benda
til þess að kjósendur vilji halda í
þá stjórn, sem reynst hefur langlíf-
ust á Ítalíu eftir heimsstyrjöldina
síðari. Bettino Craxi, leiðtogi sósíal-
ista, var forsætisráðherra í þijú og
hálft ár. í mars slitnaði upp úr
stjómarsamstarfí fímm flokka er
kristilegir demókratar tilkynntu að
þeir vildu að maður úr þeirra röðum
sæti í forsætisráðherrastóli í krafti
þess að flokkur þeirra væri stærst-
ur.
Fylgi sósíalista jókst um rúm
þrjú prósent úr 11,3 í 14,4 prósent,
en kristilegir bættu við sig tæpu
einu og hálfu prósenti og fór fylgi
þeirra upp í 34,3. í kosningunum
1983 fengu þeir minnsta fylgi í
sögu flokksins, 32,9 prósent. Sósíal-
istar verða ugglaust tregir til að
láta kristilegum demókrötum for-
sætisráðherrastólinn eftir og er því
ólíklegt að stjóm verði mynduð á
næstunni.
Skoðanakannanir spáðu því fyrir
kosningamar að Kommúnistaflokk-
urinn myndi jafnvel fá meira fylgi
en kristilegir demókratar. Svo fór
að fylgi kommúnista minnkaði um
þijú prósent og fengu þeir 26,6
prósent atkvæða.
Sjá síðu 37.