Morgunblaðið - 15.07.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987
Morgunblaðið/Börkur
Fjölmenni var á hádegisverðarfundi með Parkinson sem haldinn var á Hótel Sögu í gser.
Parkinson rekur
misnotkun vímu-
efna til leiðinda
VERJIST leiðindunum sem
fylgja sjálfvirkninni, voru ráð-
leggingar C. N. Parkinson til
áheyrenda sinna á hádegisverð-
arfundi á Hótel Sögu I gær.
Parkinson er þekktur fyrir lög-
mál sitt um að sérhvert starf
fylli þann tíma sem til aflögu er
og sjálfvirka þenslu mannahalds
og verkefna. Hann er staddur
hér i boði Verslunarráðs íslands
og Almenna bókafélagsins.
Parkinson telur að stöðnun hafí
ríkt í menningu og stjómmálum
meðan tækninni hefur fleygt fram
og afleiðing þessa séu stöðugar til-
raunir til þess að breyta vélum í
menn og menn í vélar. Þetta leiði
til innihaldslausrar færibandavinnu
sem krefðist einskis af starfsfólki
og gæfí ekkert af sér. „Leiðindi eru
helsta meinsemd nútímamannsins
og einkenni þeirra lýsa sér meðal
annars í aukinni neyslu vímuefna",
sagði Parkinson enn fremur.
„Vandræðin eru þau að menn eru
stöðugt að leita svara við þessum
einkennum í stað þess að grafast
fyrir um sjálfan sjúkdóminn.“
Hann varaði einnig við oftrú á
tölvumar sem gætu auðveldlega
leikið á grandalausan og taldi væn-
legast að setja lög sem legðu bann
við því að menn jmnu innihaldslaus
störf lengur en þrjá daga vikunnar.
Nánar verður fjallað um Parkinson
og fyrirlestur hans í viðskiptablaði
Morgunblaðsins á morgun.
VEÐUR
IDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðursiola Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 1S.07.87
YFIRLIT á hádegi í gær: Um 700 km suöur af Reykjanesi er hæg-
fara 988 millibara djúp lægð. Yfir Skandinavíu er 1025 millibara
hæð.
SPÁ: Suðaustan gola eða kaldi (3 til 5 vindstig) og skýjað um allt
land. Á suður- og austurlandi verður súld eða rigning og hætt við
skúrum á noröur- og vesturlandi. Hiti allt að 20 stig í innsveitum
norðanlands en annars 10 til 16 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR: Austlæg átt. Dálítil rigning við austurströndina
og á suðurlandi en þurrt að mestu norðaniands og vestan.
FÖSTUDAGUR: Útlit er fyrir hægviöri og nokkuö bjart veður víöa
um land, þó hætt viö skúrum suðvestanlands. Fremur hlýtt béða
dagana.
Alskýjað
/ Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■|0O Hrtastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
> , 5 Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
Tfr nl kKr
C m
% ^ w
▼ V' «*
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígœr að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 19 skýjað
Reykjavfk 13 alskýjað
Bergen 19 Mttskýjað
Helsinkl 19 skýjað
Jan Mayen 6 rígnlng
Kaupmannah. 19 léttskýjað
Narssarssuaq 11 hólfskýjað
Nuuk 2 þoka
Osló 19 léttskýjað
Stokkhólmur 19 skýjað
Þórshöfn 11 þokalgr.
Algarve 29 helðskfrt
Amsterdam 23 skýjað
Aþena 34 helðskfrt
Barcelona 28 léttskýjað
Berlln 21 léttskýjað
Chicago 16 léttskýjað
Feneyjar 29 helðeklrt
Frankfurt 24 léttskýjað
Glaskow 21 mistur
Hamborg 19 hélfskýjað
Las Palmas 26 léttskýjað
London 24 alskýjað
Los Angoles 17 alskýjað
Lúxemborg 24 léttskýjað
Msdríd vantar
Malaga 28 mistur
MaUorca vantar
Miaml vantar
Montreal 24 þokumóða
NewYork 26 þokumóða
Perís 23 skýjað
Róm 28 léttakýjað
Vln 24 hólfskýjað
Washington 26 þokumóða
Winnipeg 13 skúr
Þórður Jónsson á
Hvallátrum látinn
ÞÓRÐUR Jónsson á Hvallátrum
andaðist i sjúkrahúsi í Reykjavík
þann 12. júlí síðastiiðinn, 77 ára
að aldri.
Þórður Jón Jónsson fæddist 19.
júní 1910 á Hvallátrum í Rauða-
sandshreppi. Foreldrar hans vom
Jón Magnússon bóndi og kona hans
Gíslína Gestsdóttir. Þórður var sjó-
maður í 30 ár en síðan bóndi á
Hvallátrum. Auk þess fékkst hann
ýmiss konar störf. Hann var hrepp-
stjóri Rauðasandshrepps í 25 ár,
skipaeftirlitsmaður í'íkisins í 40 ár,
sjómælingamaður í 15 ár, veðurat-
hugunarmaður o.fl. Hann starfaði
einnig að margs konar féiagsmál-
um.
Þórður varð þjóðkunnur fyrir
þátttöku f björgun skipsbrotsmanna
af breska togaranum Doon sem
strandaði undir Látrabjargi 12. des-
ember 1947 og var var sæmdur
gullmerki Slysavamafélgs íslands,
oreskri orðu og heiðurskjali. ilann
var tsæmdur ítiddarakrossi liinnar
íslensku Fálkaorðu 11. apríl 1980.
Kona Þórðar var ísigríður Ólafs-
dóttir. Hún lést í júlí árið 1981. Þau
eignuðust fjögur l>öm og eru þijú
Ijeirra á lífi.
Þórður var fréttaritari Morgun-
blaðsins 'um iirabil og skrifaði
Þórður Jónsson
margar greinar r blaðið, einkum á
árum úður. Blaðið sendir ijölskyldu
hans samúðarkveðjur vegna láts
hans.
Minningarathöfn um Þórð fer
fram í Fossvogskapellu f dag lciukk-
:in 10.30 og útför hans verður gerð
frá Breiðavíkurkirkju klukkan
13.30 næstkomandi iaugardag.
Ríkisstjómin:
Ráðherranefnd-
um ætlað að auð-
velda samstarfið
ÞRJÁR ráðherranefndir voru
skipaðar á fundi ríkisstjómar-
innar í gærmorgun. í nefndunum
situr einn fulltrúi hvers stjómar-
flokkanna. Að sögn Þorsteins
Pálssonar forsætisráðherra eiga
nefndimar að auðvelda stjómar-
samstarfið og auka upplýsinga-
flæði. „Samstarf þriggja flokka
hlýtur að vera vandmeðfamara
en tveggja," sagði hann.
í nefndinni sem fjallar um efna-
hags- og kjaramál sitja auk Þor-
steins, Steingrímur Hermansson
utanríkisráðherra og Jón Sigurðs-
son viðskiptaráðherra. Steingrfmur
og Jón silja einnig f nefndinni um
utanríkismál en fulltrúi Sjálfstæðis-
flokks í henni er Matthías Á.
Mathiesen utanríkisráðherra.
Nefnd um ríkisfjármál skipa Jón
Baldvin Hannibalsson fjármálaráð-
herra, Friðrik Sophusson iðnaðar-
ráðherra og Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra.