Morgunblaðið - 15.07.1987, Page 19

Morgunblaðið - 15.07.1987, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987 19 Elli- og örorku- lífeyrir hjóna Þörf er á nákvæmari upplýsingum eftir Margréti Thoroddsen Að gefnu tilefni vil ég vekja athygli á því að upplýsingar þær, sem stjórnmálamenn og fjölmiðlar gefa almenningi um bótagreiðslur elli- og örorkulífeyrisþega eru oft og tíðum mjög villandi. Þá er yfir- leitt gefin upp sú fjárhæð, sem einstaklingur á rétt á (þ.e.a.s. sá sem býr einn), en ekki minnst á að hjón fá hvort um sig mikið lægri upphæð, þó þar sé auðvitað um 2 einstaklinga að ræða. Þessvegna misskilja mörg hjón þetta og halda að þau eigi hvort um sig að fá þessa umræddu upp- hæð. Við í Tryggingastofnuninni förum ekki varhluta af að útskýra þessi mál, því margir hringja í okkur og vitna óspart í fjölmiðla og halda jafnvel að um sé að ræða mistök hjá okkur. Frá 1. júní s.l. hefur samanlagð- ur lífeyrir, tekjutrygging og heimilisuppbót einstaklings getað numið kr. 25.222, en sambærileg- ar bætur hvors hjóna, sem bæði hafa lífeyri, kr. 17.953 (þar er ekki um heimilisuppbót að ræða). Hjón fá því til samans 14.538 kr. minna á mánuði en tveir einstakl- ingar, sem búa einir. Sömu reglur gilda um sambúðarfólk og hjón. Þessi mismunur hefur smáau- kist með árunum og finnst mér persónulega hann vera orðinn allt- of mikill. Vona ég að hin nýja ríkisstjórn taki þetta mál til gaum- gæfilegrar athugunar. í málefr.asamningi hinnar nýju ríkisstómar stendur: „Lágmarks- framfærslulífeyrir einstaklings verður tæpar 28 þús. kr. í stað 25 þús. kr. nú“, en ekki er minnst á hvað hjón eigi að fá. Sennilegt er þó að það verði sambærilegt hlutfall og nú, en samt sem áður efast ég ekki um að við næstu utborgun eigi margt gift fólk eftir að hringja í okkur og spyrja hvers- vegna það fái ekki greiddar 56 þús. kr. á mánuði, þar sem það hafi heyrt stjórnmálamenn okkar segja að lágmarkið nemi 28 þús. kr. fyrir einstakling. Af framansögðu finnst mér mjög áríðandi að upplýsingar um þessi mál verði sem skýrastar, þannig að þær vekji ekki tálvonir Margrét Thoroddsen „Þessi mismunur hefur smáaukist með árunum og f innst mér persónu- lega hann vera orðinn alltof mikill. Vona ég að hin nýja ríkisstjórn taki þetta mál til gaum- gæfilegrar athugunar.“ hjá hjónum, sem hafa aðeins tryggingabætur sér til fram- færslu. Höfundur er deildarstjóri í Fé- iagsmáia- og uppýsingadeild Tryggingastofnuriar ríkisins. NYTT! NYTT! 111............. Panasonic PHOTO rafhlöður í myndavélar. RAFBORG, Rauðarárstíg 1 s: 11141. YASHICA KYNNIR VASHICA 30-/IF starfsmannahaldi varnarliðsins, eru að leggja síðustu hönd á mynd um auglýsingagerð fyrir sjónvarp. Myndbandið snýst fram og aftur þar sem þær stöllur eru að leita að þeim stöðum sem talaður texti og tónlist eiga að vera. Þær vita greini- lega hvað þær vilja og spumingin er ekki um sekúndur heldur sek- úndubrot. Karl lætur ágætlega af stjórn en hlutverk væntanlegra dagskrár- gerðarmanna er fyrst og fremst stjórnunarþátturinn og yfirsýn yfir verkið ásamt því að þekkja all vel til allra verkþátt hvað varðar vinnslu. Sekúndubrotin þvælast eitthvað fyrir Karli og reynir hann að kenna tækjunum um sem eru þó hin vönduðustu. En um síðir eru þær ánægðar. Staðurinn á bandinu er fundinn og stimplaður er inn „innpunktur" í hljóðvinnslunni. Þær Erna og Elín gefa sér tíma til þess að líta upp og svara nokkrum spurn- ingum enda er það skömminni skárra en að hafa tíðindamann á bakinu. „Við erum mjög ánægðar með námskeiðið," segir Erna, „og Karl hefur verið okkur mjög hjálplegur. Þegar við þurftum að velja verk- efni,“ segir Elín, „þá ákváðum við að gera mynd um það hvernig sjón- varpsauglýsing verður til frá upphafi. Þessi auglýsing er um nýtt Sinalco sem var sett á markað- inn nýlega. Auglýsingastofan Ydda hannaði auglýsinguna og þangað fórum við með myndatökumann. Því næst sá Saga film um gerð myndarinnar og við þurfum að fylgjast með upptökum og vinnslu, sá verkþáttur var einnig myndaður. Úr þessu efni erum við að vinna núna. Myndin okkar verður um 8 mínútur og endar hún á sjálfri aug- lýsingunni eins og hún hefur birst sjónvarpsáhorfendum að undan- förnu." Hvað með atvinnuhorfur á þessu sviði? „Við höfum áhuga á að stafa að dagskrárgerð,“ segir Erna, en eins og er, er langur biðlisti hjá sjón- varpsstöðvum og auglýsingastof- um. En við eigum eftir að tölta af stað með spóluna okkar eins og ljós- myndafyrirsæturnar með ljós- myndamöppurnar." Hér er greinilega risin ný kynslóð úr grasi sem hefur kynnt sér áhrifamátt og starfsaðferðir myndmiðlanna, ákveðin í að verða einhverstaðar að gagni í ört stækkandi mynd- heimi. TEXTI: MARTEINN SIGURÐSSON Fyrsta myndavélin með þrenns konar sjálfvirkri fókusstillingu: • Venjulegur sjálfvirkur fókus. • Vélin „eltir“ myndefnið og heldur því i fókus. • Vélin er stillt þannig að þegar myndefnið kemur í fókus smellir vélin sjálfvirkt af. Berkofsky á tónleikunum í Júgóslavíu. verið á íslandi og heillast af landi og þjóð og vildi svo gjarnan hjálpa okkur að reisa veglegt tónlistarhús. Hvaða ávinningur er að góðu tónlistarhúsi í Reykjavík? — Auðvitað fyrst og fremst sá, að það verður stuðningur við blóm- legt tónlistarlíf hér. En það má líka líta á bygginguna út frá öðru sjón- armiði. Sem stendur drögum við að ferðamenn, sem sækjast eftir að komast í tæri við íslenzka nátt- úru. En landið liggur vel við annars konar ferðamönnum. Gott tónlistar- hús gæti dregið að tónlistaráhuga- fólk, sem flygi hér yfir hvort sem væri og stoppaði þá til að bregða sér á tónleika og kynnast tónlist- arlífinu hér. Fæstir Bandaríkja- menn á leið til tónlistarhátíðarinnar í Salzburg slægju hendinni á móti lónleikaviðdvöl hér, svona i leiðinni. Sem stendur er ísland vel þekkt hvarvetna í heiminum og það er talað um Reykjavíkurandann. Nú er rétti tíminn til að fyigja þessari góðu kynningu eftir og koma ís- landi á menningarlandakortið. Gott tónlistarhús auðveldar okkur það . . . Yashica 230-AF myndavélin er nýjung frá Yashica, fyrsta myndavélin sem býr yfir þrenns konar sjáifvirkri fókusstillingu, auk hinnar handvirku. Þessir eiginleikar, meðal annarra, gera Yashica 230-AF að sérlega fjölhæfri myndavél. Nýlega dæmdi breska tímaritið Camera Weekly Yashica 230-AF bestu vél sinnar gerðar á markaðnum, úr hópi átta reflex-myndavéla með sjálfvirka fókusstillingu. Yashica 230-AF hefur nýja gerð af innbyggðu leifturljósi sem tekur aðeins 2,5 sekúndur að endurhlaða. Yashica 230-AF hleður sig sjálfvirkt, færir filmuna sjálfvirkt áfram og til baka og hefur innbyggt rafdrif. Betri kaup eru því vandfundin. Verð kr. 30.206 (miðað við 50 mm linsu). Bankastræti, Austurveri og Glæsibæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.