Morgunblaðið - 15.07.1987, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987
19
Elli- og örorku-
lífeyrir hjóna
Þörf er á nákvæmari upplýsingum
eftir Margréti
Thoroddsen
Að gefnu tilefni vil ég vekja
athygli á því að upplýsingar þær,
sem stjórnmálamenn og fjölmiðlar
gefa almenningi um bótagreiðslur
elli- og örorkulífeyrisþega eru oft
og tíðum mjög villandi. Þá er yfir-
leitt gefin upp sú fjárhæð, sem
einstaklingur á rétt á (þ.e.a.s. sá
sem býr einn), en ekki minnst á
að hjón fá hvort um sig mikið
lægri upphæð, þó þar sé auðvitað
um 2 einstaklinga að ræða.
Þessvegna misskilja mörg hjón
þetta og halda að þau eigi hvort
um sig að fá þessa umræddu upp-
hæð. Við í Tryggingastofnuninni
förum ekki varhluta af að útskýra
þessi mál, því margir hringja í
okkur og vitna óspart í fjölmiðla
og halda jafnvel að um sé að ræða
mistök hjá okkur.
Frá 1. júní s.l. hefur samanlagð-
ur lífeyrir, tekjutrygging og
heimilisuppbót einstaklings getað
numið kr. 25.222, en sambærileg-
ar bætur hvors hjóna, sem bæði
hafa lífeyri, kr. 17.953 (þar er
ekki um heimilisuppbót að ræða).
Hjón fá því til samans 14.538 kr.
minna á mánuði en tveir einstakl-
ingar, sem búa einir. Sömu reglur
gilda um sambúðarfólk og hjón.
Þessi mismunur hefur smáau-
kist með árunum og finnst mér
persónulega hann vera orðinn allt-
of mikill. Vona ég að hin nýja
ríkisstjórn taki þetta mál til gaum-
gæfilegrar athugunar.
í málefr.asamningi hinnar nýju
ríkisstómar stendur: „Lágmarks-
framfærslulífeyrir einstaklings
verður tæpar 28 þús. kr. í stað
25 þús. kr. nú“, en ekki er minnst
á hvað hjón eigi að fá. Sennilegt
er þó að það verði sambærilegt
hlutfall og nú, en samt sem áður
efast ég ekki um að við næstu
utborgun eigi margt gift fólk eftir
að hringja í okkur og spyrja hvers-
vegna það fái ekki greiddar 56
þús. kr. á mánuði, þar sem það
hafi heyrt stjórnmálamenn okkar
segja að lágmarkið nemi 28 þús.
kr. fyrir einstakling.
Af framansögðu finnst mér
mjög áríðandi að upplýsingar um
þessi mál verði sem skýrastar,
þannig að þær vekji ekki tálvonir
Margrét Thoroddsen
„Þessi mismunur hefur
smáaukist með árunum
og f innst mér persónu-
lega hann vera orðinn
alltof mikill. Vona ég
að hin nýja ríkisstjórn
taki þetta mál til gaum-
gæfilegrar athugunar.“
hjá hjónum, sem hafa aðeins
tryggingabætur sér til fram-
færslu.
Höfundur er deildarstjóri í Fé-
iagsmáia- og uppýsingadeild
Tryggingastofnuriar ríkisins.
NYTT! NYTT!
111.............
Panasonic
PHOTO
rafhlöður í
myndavélar.
RAFBORG,
Rauðarárstíg 1 s: 11141.
YASHICA KYNNIR
VASHICA
30-/IF
starfsmannahaldi varnarliðsins, eru
að leggja síðustu hönd á mynd um
auglýsingagerð fyrir sjónvarp.
Myndbandið snýst fram og aftur
þar sem þær stöllur eru að leita að
þeim stöðum sem talaður texti og
tónlist eiga að vera. Þær vita greini-
lega hvað þær vilja og spumingin
er ekki um sekúndur heldur sek-
úndubrot.
Karl lætur ágætlega af stjórn en
hlutverk væntanlegra dagskrár-
gerðarmanna er fyrst og fremst
stjórnunarþátturinn og yfirsýn yfir
verkið ásamt því að þekkja all vel
til allra verkþátt hvað varðar
vinnslu. Sekúndubrotin þvælast
eitthvað fyrir Karli og reynir hann
að kenna tækjunum um sem eru
þó hin vönduðustu. En um síðir eru
þær ánægðar. Staðurinn á bandinu
er fundinn og stimplaður er inn
„innpunktur" í hljóðvinnslunni. Þær
Erna og Elín gefa sér tíma til þess
að líta upp og svara nokkrum spurn-
ingum enda er það skömminni
skárra en að hafa tíðindamann á
bakinu.
„Við erum mjög ánægðar með
námskeiðið," segir Erna, „og Karl
hefur verið okkur mjög hjálplegur.
Þegar við þurftum að velja verk-
efni,“ segir Elín, „þá ákváðum við
að gera mynd um það hvernig sjón-
varpsauglýsing verður til frá
upphafi. Þessi auglýsing er um
nýtt Sinalco sem var sett á markað-
inn nýlega. Auglýsingastofan Ydda
hannaði auglýsinguna og þangað
fórum við með myndatökumann.
Því næst sá Saga film um gerð
myndarinnar og við þurfum að
fylgjast með upptökum og vinnslu,
sá verkþáttur var einnig myndaður.
Úr þessu efni erum við að vinna
núna. Myndin okkar verður um 8
mínútur og endar hún á sjálfri aug-
lýsingunni eins og hún hefur birst
sjónvarpsáhorfendum að undan-
förnu."
Hvað með atvinnuhorfur á þessu
sviði?
„Við höfum áhuga á að stafa að
dagskrárgerð,“ segir Erna, en eins
og er, er langur biðlisti hjá sjón-
varpsstöðvum og auglýsingastof-
um. En við eigum eftir að tölta af
stað með spóluna okkar eins og ljós-
myndafyrirsæturnar með ljós-
myndamöppurnar." Hér er
greinilega risin ný kynslóð úr grasi
sem hefur kynnt sér áhrifamátt og
starfsaðferðir myndmiðlanna,
ákveðin í að verða einhverstaðar
að gagni í ört stækkandi mynd-
heimi.
TEXTI:
MARTEINN SIGURÐSSON
Fyrsta myndavélin með
þrenns konar sjálfvirkri
fókusstillingu:
• Venjulegur sjálfvirkur
fókus.
• Vélin „eltir“ myndefnið
og heldur því i fókus.
• Vélin er stillt þannig
að þegar myndefnið
kemur í fókus smellir
vélin sjálfvirkt af.
Berkofsky á tónleikunum í Júgóslavíu.
verið á íslandi og heillast af landi
og þjóð og vildi svo gjarnan hjálpa
okkur að reisa veglegt tónlistarhús.
Hvaða ávinningur er að góðu
tónlistarhúsi í Reykjavík?
— Auðvitað fyrst og fremst sá,
að það verður stuðningur við blóm-
legt tónlistarlíf hér. En það má líka
líta á bygginguna út frá öðru sjón-
armiði. Sem stendur drögum við
að ferðamenn, sem sækjast eftir
að komast í tæri við íslenzka nátt-
úru. En landið liggur vel við annars
konar ferðamönnum. Gott tónlistar-
hús gæti dregið að tónlistaráhuga-
fólk, sem flygi hér yfir hvort sem
væri og stoppaði þá til að bregða
sér á tónleika og kynnast tónlist-
arlífinu hér. Fæstir Bandaríkja-
menn á leið til tónlistarhátíðarinnar
í Salzburg slægju hendinni á móti
lónleikaviðdvöl hér, svona i leiðinni.
Sem stendur er ísland vel þekkt
hvarvetna í heiminum og það er
talað um Reykjavíkurandann. Nú
er rétti tíminn til að fyigja þessari
góðu kynningu eftir og koma ís-
landi á menningarlandakortið. Gott
tónlistarhús auðveldar okkur
það . . .
Yashica 230-AF myndavélin er nýjung
frá Yashica, fyrsta myndavélin sem býr
yfir þrenns konar sjáifvirkri fókusstillingu,
auk hinnar handvirku. Þessir eiginleikar, meðal
annarra, gera Yashica 230-AF að sérlega fjölhæfri myndavél.
Nýlega dæmdi breska tímaritið Camera Weekly Yashica 230-AF bestu vél
sinnar gerðar á markaðnum, úr hópi átta reflex-myndavéla með sjálfvirka
fókusstillingu.
Yashica 230-AF hefur nýja gerð af innbyggðu leifturljósi sem tekur aðeins
2,5 sekúndur að endurhlaða.
Yashica 230-AF hleður sig sjálfvirkt, færir filmuna sjálfvirkt áfram og til baka
og hefur innbyggt rafdrif.
Betri kaup eru því vandfundin.
Verð kr. 30.206 (miðað við 50 mm linsu).
Bankastræti, Austurveri og Glæsibæ