Morgunblaðið - 05.08.1987, Blaðsíða 19
r»or TP’frrtA r-> ímní>an'>TTvnTM (íTGA IfTVITJOíIOM 8Í
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1987___________________________ 19
J_-/esió af
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80
Jltargtsiifyhifelfc
Hvað sem segja má um ljóð þetta
verður því ekki neitað að það felur
í sér hugkvæma líking.
Spegill heitir annað ljóð. Þar
leggur Magnús, ef ég skil hann
rétt, áherslu á þunga orðsins með
því að skipa einu og einu í línu.
Óþarft hygg ég að leita eftir skiln-
ingi á ljóði þessu framar því sem í
orðunum felst:
sem
og
værir
guð
þú
almáttugur
einn
neinn
skurðpunktur
af falli •
hinna
Magnús tileinkar bók sina
»ásjónuvef verðandinnar«. Þó til séu
ljósari hugtök má líta svo á að þar
sé að finna línuna _sem hann fer
eftir í ljóðunum. A mæltu máli
gæti það heitið að yrkja um lífið
og tilveruna. En skáld má hvorki
tala hversdagslega né gera sig bert
að neins konar einfeldni! Skáld
verður að upphefja list sína til æðra
sviðs, gæða hana dul hins óræða;
galdursins — þess_ sem ljóðlistin
spratt af í árdaga! í því felst neist-
inn. í stað raðkvæmra hugmynda
— eða samfellds texta — koma
myndbrot, en það er einmitt heitið
á einu ljóði Magnúsar. Ljóðin eru
gjaman stutt, jafnvel örstutt; hvers-
dagslegum hugtökum brugðið upp
í nýju ljósi; orð valin samkvæmt
skeytastíl, samsett orð liðuð sundur
til að sýna hvað innan í þeim leyn-
ist, ef svo má að orði kveða. Sem
dæmi þess hvernig Magnús yrkir
einfaldast má hins vegar nefna ljóð-
ið yndi sem minnir að vísu lítt á
gamaldags ástarljóð en getur þó
talist ástarljóð eigi að síður:
fjaðurmögnuð
eins og fiðlubogi
snertir streng
í hjartanu
kona
Meðtaki maður ljóð Magnúsar
eins og þau koma fyrir og fallist á
hvort tveggja; viðhorf hans og að-
ferð — hygg ég segja megi að hann
teljist til vandvirkari skálda. Hins
vegar sýnist mér sem skáldskapur
hans mætti fela í sér beinni lífræna
skírskotun. Orðið, hugtakið, verður
eins og hver annar verðlaus pappír
ef það gildir ekki jafnframt sem
ávísun á einhver lifandi sannindi;
kemur þá fáum við nema skáldinu
sjálfu. Með þessu er ég ekki að
segja að þessi ljóð séu dauð og
köld, formalisminn einber, síður en
svo. Eigi að síður virðist mér sem
meira fari þama fyrir umbúðum en
þörf sé á innihaldsins vegna. Ef
skáld hefur eitthvað að segja má
það gjaman tala við fleiri en sjálft
sig! Og einfaldleiki þarf ekki for-
takslaust að merkja sama og
einfeldni.
ARGERÐIRNAR
FRÁ MITSUBISHI
í bílunum frá MITSUBISHI þarf ekki aö hafa áhyggjur af
„aukabúnaði". — Hann fylgir meö í veröinu.
Hjá okkur fá allir bíl viö sitt hæfi.
Það borgar sig að blða eftir bfl frá MITSUBISHI
HF
Laugavegi 170-172 Simi 695500
Magnús Einarsson: múr
Erindislaus sendiboði. 1987. rúm
Gmnntónninn í ljóðum ungra
skálda er oft einhvers konar tóm-
leikatilfinning. Veröldin er msla-
haugur og mannlífið ömurlegt. Og
tilveran yfirhöfuð — fáránleg! Ljóð
Magnúsar Einarssonar em að
ýmsu leyti dæmigerð fyrir ljóðlist
á líðandi stund þó slík viðhorf séu
þar engan veginn yfirgnæfandi. I
raun er leiðinn og tómleikatilfinn-
ingin afurð heimsstyijaldanna
tveggja: Fyrst súrrealisminn með
fyrra stríði, þegar margur missti
trúna á guðdóminn, kónginn og
manngildið; síðan existensíalism-
inn með seinna stríði, þá framúr-
stefna, ný-súrrealismi og loks
hinar og aðrar flöktandi stefnur
sem enn em viðvarandi og seinni
tíminn á eftir að gefa nafn. Náms-
mannahreyfingamar höfðu líka sín
áhrif á ljóðið og þau hreint ekki
lítil; þaðan kom vígorðastíllinn sem
enn gætir hjá ungum skáldum.
Margur staðnæmist við hugtak-
ið, orðið, merkinguna, ef þannig
mætti höndla sannleikann. Orðið
fær aukið vægi í ljóðinu. Oft og
tíðum líka sjálfstætt gildi. Málið
er brotið upp til að framkalla fmm-
legar líkingar; bylta hugmyndum,
skoða viðtekin hugtök í nýju ljósi.
Dæmi þessa er ljóð Magnúsar sem
hann nefnir rúmmál:
aðeins málið
drottnar
og
varir
þínar em
lífsins bámr
að
launum
byrði
þá er
þögnin hóf
málið
nnuiMMr
HÓFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK
SÍMI: 685656 og 84530
Erum með á lager flestar stærðir af kúlulegum
frá japanska fyrirtækinu Nachi.
Höfum einnig hjóla- og kúplingslegur í margar
gerðir japanskra bíla.
Mjög hagstætt verð.
Myndbrot
og líkingar
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
féllu
steinamir
hver af öðmm