Morgunblaðið - 05.08.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1987 .
59
hann tók sér fyrir hendur, starfs-
saga Páls verður ekki rakin hér,
en hann var sívinnandi heiman sem
heima. Það var gaman að koma
heim til Páls og Sesselju, það fór
ekkert á milli mála að gesturinn
var velkominn og margra góðra
stunda minnist ég, granni þessara
gestrisnu og glaðlyndu hjóna.
En aldurinn færðist yfir og svo
fór að flutt var frá Reyðarfirði suð-
ur til Reykjavikur, enda bömin þar.
Til Reykjavíkur fluttu þau 1974,
en ekki settist Páll í helgan stein,
því þá fór hann að starfa við fyrir-
tæki Guðjóns sonar síns og vann
þar meðan þrek entist.
Heima hnýtti hann á tauma, því
auðum höndum var ekki unnt að
sitja og það gerði hann allt fram-
undir það síðasta. Páll andaðist á
Borgarspítalanum aðfaranótt 28.
júlí sl. og átti þá innan við mánuð
í nírætt.
Við í fjölskyldunni kveðjum Pál
frá Sléttu með klökkum hug og
þakklæti fyrir marga, mæta stund.
Ekki síst þakka foreldrar mínir,
jafnaldri hans og frændi og kona
hans fyrir góða tíð, sem gaf svo
margt í minninganna sjóð.
Farsæld fylgdi Páli ævigötu alla,
einlægur og heill í allri gerð, við-
mótið var fullt af hlýju og gróm-
lausri gleði.
Gott var að eiga hann að góðum
vini. Við sendum fjölskyldu hans,
eiginkonu, bömum og öðmm ást-
vinum einlægar samúðarkveðjur.
Eins og annað var trú hans einlæg
og sönn. Vegmóðum hefur því orðið
heimkoman góð. Eftir lifir ágæt
minning okkar, sem áttum hann
að vini lengri eða skemmri leið.
Blessuð sé sú minning.
Helgi Seljan
að hefjast í Suðurveri
Síðustu sumarnámskeið,
Innritun stenduryfir.
LíkamsræktJSB fe
sími 83730. ^ I
ESAB
RAFSUDUVÉLAR
vír og fylgihlutir
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN SlMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
15/.
Hressi/ega skemmtun!
SÓL
Þverholti 17-21, Reykjavík