Morgunblaðið - 05.08.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKU0AGUR '5: 'ÁGÚST 1987
45
Ingólfur Falsson framkvæmdastjóri Aðalstöðvarinnar við nýju bíla-
þvottastöðfina ásamt Óskari Þórhallssyni starfsmanni.
Keflavík:
Aðalstöðin opnar
bílaþvottastöð
Keflavík.
AÐALSTÖÐIN í Keflavík tók
nýlega í notkun bifreiðaþvotta-
stöð sem er algjörlega sjálfvirk
og er þetta fyrsta þvottastöðin
sem opnuð er á Suðurnesjum.
Ingólfur Falsson framkvæmdar-
stjóri Aðalstöðvarinnar sagði að
nýja stöðin væri ákaflega full-
komin og væri hún enn einn
liðurinn hjá þeim í þjónustu við
bifreiðaeigendur.
Að sögn Ingólfs er nýja stöðin
með 13 þvottakerfí sem velja má
um, allt eftir því hve bifreiðin er
óhrein. Á minnsta kerfínu tekur
þvotturinn 2—3 mínútur, en á því
lengsta 8—10 mínútur og þá notar
vélin 1320 lítra af vatni. Hægt er
að fá undirvagnsþvott sem er nýj-
ung.
Sérstakur 8 tonna vatnstankur
er í stöðinni þar sem affallsvatn
hitaveitunnar er nýtt. En yfír vetr-
armánuðina þegar frost er verður
vatnið sem notað er við þvottinn
12 gráður. Ingólfur sagði að stöðin
sem er vestur-þýsk hefði reynst
ákaflega vel á Norðurlöndunum.
Sambærileg stöð væri í Hafnarfírði
og í ljós hefði komið að mun meiri
tjara kæmi á bifreiðar hér á landi
en í Evrópu og þyrftum við því að
nota sterkari efni til að ná tjörunni
af. Sérstök aðstaða er jafnframt
fyrir viðskiptavini til að hreinsa
bflana að innan í þvottastöðinni.
Þvottastöðin er í nýbyggðu hús-
næði og sagði Ingólfur að kostnaður
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Ingólfur Falsson við vatnstank-
inn sem notaður verður til að
blanda heitt vatn, en í hann renn-
ur affallsvatn hitaveitunnar.
væri um 10 milljónir og hefði
þvottavélin kostað rúmar 5 milljón-
ir. „Við höfum nú nýtt allt það 4.700
fermetra svæði sem Aðalstöðin hef-
ur til umráða. Hér er fyrir, bensín-
og smurstöð, leigu og sendibifreið-
ar, hjólbarðaþjónusta, varahluta-
verslun og svo geta menn komið
og þvegið hjá okkur hvort sem þeir
vilja gera það sjálfir eða nota til
þess nýjustu tækni", sagði Ingólfur
ennfremur.
BB
Eyrarkirkja á ísafirði eyðilagðist í eldi fyrir skömmu.
Söfnun í kirkjubygg-
ingasjóð Isfirðinga
MORGUNBLAÐINU hefur borist
áskorun vegna bruna ísafjarðar-
kirkju frá „gömlum ísfirðing-
um“. Áskorunin er svohljóðandi:
„Allir þeir mörgu sem átt hafa
gleði- og hátíðarstundir í ísafjarðar-
kirkju, svo sem við skím, fermingu
eða giftingu, eða þeir sem vildu
minnast látinna ættingja, sem
jarðsungnir hafa verið frá kirkj-
unni, ættu nú að taka höndum
saman og aðstoða við endurbygg-
ingu kirkjunnar eða byggingu
nýrrar.
Sýnum samhug okkar í verki
með því að leggja nokkurt fé af
mörkum til kirkjubyggingarsjóðs
og sendum með því kveðju heim til
safnaðarins.
Framlögum má koma á framfæri
með greiðslu inn á gíróreikning
sóknamefndar nr. 156-26-551 við
Landsbankann á ísafírði eða með
símgreiðslu með VISA í síma
91-83436.
Rauðarárstig 1 Sími 15077
DANSARAR!
Stofnun íslenska jazz-
ballettflokksins stendur
fyrir dyrum.
Hafið samband í síma 40947 frá kl. 17-19 þessa
viku og fáið allar upplýsingar.
■k-
Á. -
Undirbúningsnefndin.