Morgunblaðið - 05.08.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1987
23
áttum við erindi og ætluðum að
fara eigin leiðir. Veðrið á megin-
landinu hafði verið heldur leiðinlegt,
en það breyttist auðvitað, þegar við
komum með Flórida-sólina!
Skömmu eftir komuna gafst okk-
ur tækifæri á því að slást í för með
fólki, sem var að fara á sýningu
og kappakstur fyrir sígilda bíla í
Eysins prés Nyon, sem er skammt
frá Genf. Hér var um að ræða bíla,
af ýmsum tegundum, frá 1920 til
1960. Fyrirliði okkar var sænsk-
fæddur Ameríkani, sem býr í Sviss,
James-Berggren. Hann á tvo glæsi-
vagna, sem taka áttu þátt í sýning-
unni, opinn Bentley, 1928 og
Mercedes-Benz 300 SL, 1955, svo-
kallaðan fiðrildis-Benz, sem svo er
kallaður vegna þess, að hurðirnar
opnast upp og líta út eins og væng-
ir á bílnum.
Hvorki hefí ég verið mikill áhuga-
maður um eldri bíla eða sérfróður
á því sviði, en erfítt er að verða
ekki hrifinn, þegar maður skyndi-
lega er í návist slíkra listigripa og
hefír tækifæri á að sjá þá í akstri,
skoða þá og snerta. Sá ég hér tæki-
færi til að útvíkka minn eigin
sjóndeildarhring og jafnvel miðla
lesendum blaðsins, en ég veit, að
margir þeirra hafa mikinn áhuga á
bifreiðum á öllum aldri.
Mótið var haldið á laugardegi og
var mikið um dýrðir í þessu frið-
sæla fjallaþorpi á sólfögrum degi í
júnílok. Bærinn var blómum og fán-
um skrýddur, veitingatjöld höfðu
verið reist og auðvitað voru líka
veitingastofur og krár opnar að
vanda. Allir voru í hátíðaskapi.
Akbrautin var 800 metra ferhym-
ingur, sem lá í gegnum þorpið.
Mættir voru til leiks um 80 sígild-
ir bílar frá 32 framleiðendum og
til viðbótar slangur af mótorhjólum
og kappakstursbílum. Kannaðist ég
við mörg bflanöfn, svo sem Alfa
Romeo, Austin-Healey, Bentley,
BMW, Ferrari, Mercedes-Benz, MG
og fleiri. Hér voru líka margar aðr-
ar tegundir, sem ég hafði aldrei
áður komist í kynni við, svo sem
Amilcar, Benjamin, Bugatti, GAR,
Salmson, Tecno og Veritas.
Bflamir hans Berggrens eru
feiknarlega fallegir vagnar og báðir
í toppstandi. Hann og kona hans
hafa tekið þátt í mörgum kapp-
ökstrum (rallys) fýrir sígilda bíla.
Meðal annars fóru þau á Mercedes-
bílnum í Monte Carlo-keppnina
1985, en á Bentleynum hefír hann
farið nokkmm sinnum í hina frægu
Mille Miglia-keppni, sem er 1000
mílna þolakstur um Italíu.
Á mótinu í Eysins vom bifreið-
arnar flokkaðar eftir tegundum og
stærð og látnar keppa í 10 hringja
akstri. Berggren bauð fréttamanni
ykkar að sitja í Bentleynum og var
það mikill heiður. Þótt þetta hafi
ekki verið alvöru hraðakeppni, tóku
ökumenn hana alvarlega og stigu
benzínið í botn. Varð af mikill gnýr.
Hraðinn kom á óvart og amerísku
sólgleraugu frásögumanns þoldu
ekki þrýstinginn, svo annað glerið
hrökk úr umgjörðinni og þrýstist í
augntóftina. Mikill léttir var fýrir
hann að finna, að hann hafði ekki
skyndilega orðið blindur á öðm
auganu. Á þessum feiknar hraða
fækkaði víst ábyggilega eitthvað
af hámm hans. Mátti hann illa við
því.
Þetta var dásamlegur dagur, nýr
heimur sígildra lystivagna, nýtt
umhverfí, nýjar lyktir, ný hljóð,
nýtt fólk, algerlega ný upplifun.
Þegar mótinu var lokið, var Berg-
gren og okkur í fylgdarliði hans
boðið heim til eins af fyrirmönnum
bæjarins. Þáðum við þar veitingar
á svölum og í garði fagurrar villu.
í góðu yfirlæti borðuðum við kökur
og sötmðum hvítt, svissneskt vín
úr litlum glösum, sem tíðkast þar
um slóðir. Svissarar em varkárt
fólk og fara að öllu með gát. Á
íslandi myndu slík glös vera notuð
til að mæla sterka drykki. Sinn er
siður í landi hveiju.
Höfundur er ræðismaður íslands
íSuður-Flórida og framkvæmda-
stjóri hjá fisksölufyrirtæki á
Miami.
jSAbu
Garcia
Með Ambassadeur800 línunni sannarAbu Garcia
að þeir standa öðrum framar í hönnun og smíði
kasthjóla. Ambassadeur 800 hjólin eru ótrúlega
Með einu handtaki
er hfegt að
skipta ttm spólu,
en hún er rennd úr áli
sem tryggir styrk
og léttleika.
Ambassadeur 800
létt og sterk en samt gœdd einstökum eiginleikum.
Tœknileg hönnun Abu Garcia kasthjólanna eykur
þœgindi og öryggi við veiðarnar. Hjá okkur fást
Abu Garcia veiðihjól við allra hæfi.
HAFNARSTRÆTI 5 SlMAR 16760 og 14800
TOSHIBA er 7700 með DELTAWAVE
Nýtt útlit, nýir möguleikar, fleiri kostir.
Þetta er nýtt og glæsilegt útlit á örbylgjuofnum. Stílhreinn, auðveldur í
þrifum og leikandi léttur í notkun. Ofninn er ekki aöeins stílhreinn að utan
heldur er innrabyrði slótt og úr póleruðu hágæðastáli. Léttari þrif en áður.
Ofninn helst skínandi hreinn þrátt fyrir mikla notkun. Þessi glæsilegi ofn
er búinn Toshiba Deltawave örbylgjudreifingu, sem skilar besta árangri við
matreiðslu. Styrkstillirinn er með 9 þrepum, frá 110 wöttum til 650 wött.
Ofninn er búinn snúningsdiski. Tímastillirinn er frá 10 sekúndum upp í 95
minútur. Þetta er ofninn sem gefur þór góðan árangur.
Einar
Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28,
símar 91 -16995,91 -622900.
Samþykktur af
Rafmagnseftirliti ríkisins.
10 gerðir- verð við allra hæfi.
Deltawave dreifingin og hraðviftan (einkaleyfisvernduð uppfinning af Toshiba) gera það að verkum, að ör-
bylgjurnar vinna þar sem þeirra er þörf og matreiðslan verður jöfn og góð. Upphitaður matur bragðast jafnvel
og nýlagaður og bakstur verður léttur og fallegur. Þetta er ofninn, sem hæfir nútíma eldhúsi, þar sem kröfur
eru gerðar um fljóta, góða og heilsusamlega matseld. Toshiba er 7700 gefur matreiðslunni nýtt líf.