Morgunblaðið - 03.10.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.10.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987 H Margeir Pétursson varði íslands- meistaratitilinn í skák: Hefur teflt 36 skákir í röð án þess að tapa MARGEIR Pétursson varði íslandsmeistartitil sinn í skák á Skák- þingi íslands sem lauk á Akureyri í gær. Margeir fékk 12 vinninga af 13 mögulegum og hefur nú teflt 36 kappskakir. í röð án taps. Úr síðustu 25 skákum sínum hefur Margeir fengið 22 vinninga. Helgi Ólafsson varð í öðru sæti með 11 vinninga og Karl Þorsteins í 3. sæti með 8'/2 vinning. Mótinu lauk ekki fyrr en a tíunda tímanum í gærkvöldi þar sem úrslit úr skák Hannesar Hlífars Stefánssonar og Jóns G. Viðarssonar fengust ekki fyrr en eftir 114 leiki. Hannes átti þess kost að deila þriðja sætinu með Karli ynni hann skákina. Hannes tefldi til sigurs með peði og drottningu gegn drottningu Jóns en varð að sætta sig við hálfan vinning og fjórða sætið. Margeir sagði í samtali við Morgunblaðið eftir mótið að þótt sigurinn hefði virst áreynslulítill væri alltaf erfitt að þurfa að ná svona háu hlutfalli. „Það má ekk- ert út af bera og maður þarf ekki annað en missa athyglina eitt augnablik til að allt sé unnið fyr- ir gýg. Mér tókst að bægja slíku frá. Það hjálpaði mér einnig að hafa teflt á mótinu í fyrra og ég þekkti þessa menn því nokkuð vel.“ Sigurganga Margeirs byrjaði á skákmóti í Moskvu sem hann tók þátt í síðastliðið vor. „Ég hafði tapað ijórum skákum í röð og var síðan kominn í mikil vandræði gegn sovéska stórmeistaranum Vasjukov. En á því augnabliki í skákinni, sem ég hélt að ég ætti mér ekki viðreisnar von, hugsaði hann sig um í klukkutíma og þá lyftist aðeins á mér brúnin. Síðan tókst mér að snúa á hann og þetta varð ágætis skák hjá mér á endan- um. Síðan hef ég ekki tapað skák svo þetta hefur haft góð áhrif á mig,“ sagði Margeir. Hann vann síðustu tvær skákimar á þessu móti og síðan tefldi hann 11 skák- ir á Norðurlandamótinu í Færeyj- um, sem hann vann, 9 skákir á alþjóðlegu móti í Gausdal í Nor- egi, sem hann vann einnig, og loks 13 skákir á íslandsmótinu. Margeir bjóst ekki við áð tefla á sterkum mótum fram að ára- Morgunblaðið/Guðmundur Svansson íslandsmeistarinn Margeir Pétursson stýrir hvítu mönnunum gegn Gylfa Þórhallssyni í siðustu umferðinni í gær. mótum en eftir þau væri dagskrá- in ströng. Þar væri fyrst opið mót í Kanada í tengslum við áskor- endaeinvígin, síðan tæki Reykjavikurskákmótið við, að því loknu mót í Sviss og síðan opna mótið í New York. í síðustu umferð í landslið. - flokki vann Margeir Gylfa Þórhallsson, Helgi vann Sævar Bjamason, Hannes og Jón G. gerðu jafntefli, Karl vann Þröst Amason, Gunnar Freyr Rúnars- son og Ólafur Kristjánsson skyldu jafnir, Áskell Öm Kárason vann Þröst Þórhallsson, og Davíð Ólafsson og Dan Hansson gerðu jafntefli. Lokastaðan í landsliðsflokki varð sú að Margeir fékk 12 vinn- inga, Helgi 11, Karl 8V2, Hannes Hlífar 8, Davíð 7’/2, Sævar og Þröstur Þórhallsson 6V2, Jón G. 6V2, Dan 6, Þröstur Árnason 5, Ólafur 5, Áskell 4V2, Gylfi 3 og Gunnar 1 vinning. Menntamálaráðu- neytið og KHÍ: Sturla ráð- inn til árs STURLA Kristjánsson hefur ver- ið ráðinn til að kanna og semja greinargerð um með hvað hætti ákjósanlegast sé að standa að skipulagi og framkvæmd mennt- unar kennara samhliða starfi, aðallega úti á landi. Það eru menntamálaráðuneytið og Kenn- araháskóli íslands sem ráðið hafa Sturlu til verksins. Umrædd könnun miðast einkum við fræðsluumdæmin á Norður- landi, eins og segir í frétt frá menntamálaráðuneytinu og Kenn- araháskóla íslands. Er Sturlu falið að skila greinargerð um málið fýrir septemberlok árið 1988. Að því loknu er fyrirhugað að fulltrúar ráðuneytisins og Kennara- háskólans vinni að því að marka áframhaldandi stefnu um endur- menntum kennara, starfsmenntun leiðbeinanda í skólum, þróunarverk- efni í fræðsluumdæmum og ein- stökum skólum auk rágjafar Kennaraháskóla íslands um fagleg málefni. Hlíf hafnar atvinnu- umsóknum útlendinga Kaupfélag V-Barðstrendinga óskar eftir greiðslustöðvun Sambandið tilbúið að afskrifa 30 milljóna króna skuld STJÓRN Kaupfélags Vestur- Barðstrendinga á Patreksfirði ákvað á fundi sínum í gær að fara fram á þriggja mánaða greiðslustöðvun. Samband ís- lenskra samvinnufélaga hefur lýst því yfir við sýslumann Barðastrandarsýslu að það sé til- búið að afskrifa 30 milljón króna skuld kaupfélagsins við Sam- bandið að því tilskyldu að aðrir lánardrottnar geri slíkt hið sama. Erfiðleikar Kaupfélags Vestur- Barðstrendinga á Patreksfirði felast fyrst og fremst í offjárfestingu vegna sláturhússins á Patreksfírði að sögn Jens Valdimarssonar kaup- félagsstjóra. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að fé hefði fækk- að mjög mikið á þessum slóðum á IRorjnnhlatiiþ í dag iesbkm undanfömum árum og ýmsir aðrir erfiðleikar verið í rekstri félagsins á síðustu §órum til fimm árum. Sagði hann að ákveðið hefði ver- ið að sækja um greiðslustöðvun í þeirri von að hægt yrði að endur- skipuleggja reksturinn og fjárhag- © INNLENT inn og ganga til nauðungasamninga ef mögulegt væri. Kjartan P. Kjartansson, fram- kvæmdastjóri hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði staðfest við sýslumanninn í Barðastrandarsýslu að Sambandið væri tilbúið að leggja til hliðar eða afskrifa 30 milljónir af skuldum kaupfélagsins við Sambandið. „Ef leitað er nauðungarsamninga getur kaupfélagið vænst þess að Sambandið muni taka mjög vel beiðni þeirra um að færa niður eða afskrifa 30 milljónir að því tilskyldu að aðrir lánardrottnar geri það sama,“ sagði Kjartan. „Þetta er gert til þess að sýna kaupfélaginu og öðrum lánardrottnum velvilja Sambandsins við aðgerðir Kaup- félagsins," sagði hann. ALMENNUR félagsfundur í verkamannafélaginu Hlíf S Hafn- arfirði hefur samþykkt að hafna öllum umsóknum erlendra manna um atvinnu á félagssvæð- inu, þar til leiðretting hefur fengist á launum verkafólks. Fundurinn var haldinn 1. október síðastliðinn og hljóðar samþy'kkt hans þannig í heild: „Fundur í verkamannafélaginu Hlíf samþykk- ir að félagið hafni öllum umsóknum erlendra manna um atvinnu þar til leiðrétting, sem félagið getur sætt sig við, er fengin á launum verka- fólks". Skólinn á Núpi tekinn til starfa HÉRAÐSSKÓLINN á Núpi í Dýrafirði tók til starfa í liðinni viku eftir árs hlé. Miklar endur- bætur hafa verið gerðar á húsnæði skólans sem var í nið- urníðslu að sögn Kára Jónssonar skólastjóra. Hreppstjórnir í sýsl- unni munu veita nemendum Forsætisráðherra um yfirlýsingu Gorbachev: Gagnkvæm afvopnun að Úralfjöllum frumskilyrði ÞORSTEINN Pálsson forsætisráðherra telur kjarnorkuvopna- laust svæði á Norðurlöndum geta orðið að veruleika gangi Sovétmenn að sömu skilyrðum og sett voru í ályktun Alþingis um afvopnunarmál vorið 1985. Aðspurður um yfirlýsingu Mik- hail Gorbachev leiðtoga Sovétríkjanna um afvopnun í Norður- höfum sagði Þorsteinn að hún væri óljós og þvi varla hægt að taka afstöðu til hennar. „Ef Gorbachev er að meina gagnkvæma afvopnun sem nær til þess hluta Sovétríkjanna sem að Norðurlöndunum snýr erum við tilbúnir að ræða tillöguna. Vilji hann leggja víghreiðrið á Kolaskaga niður stendur ekki á okkur," sagði Þorsteinn. „Þessi yfirlýsing er mjög óljós og í raun ekkert ákveðið um hana að segja á þessu stigi." Þorsteinn sagði að ályktun Al- þingis frá 23. maí 1985 um afvopnunarmál, eins og hún hefði verið skýrð af formanni utanríkis- málaneftidar, yrði lögð til grund- vallar ef til viðræðna kæmi um afvopnun í þessum heimshluta. Samkvæmt henni nær Norður- Evrópa allt frá Grænlandi til Úralfjalla. Sjá ennfremur viðtöl á blað- síðu 27 og nánar um ræðu Gorbachevs á bls. 30 og 31. styrk til að stunda nám við skól- ann. Skólinn var settur sunnudaginn 27. september að viðstöddu íjöl- menni. Síðastliðinn miðvikudag hófst kennsla. Þrjátíu og fimm nem- endur setjast á skólabekk og njóta handleiðslu sjö kennara, þar af þriggja fastráðinna. Kennsla er veitt í níunda bekk grunnskóla og framhaldsdeild, sem skiptist í heilsugæslusvið og fomám. Heilsugæslusviðið veitir réttindi til náms á þriðja ári sambærilegra brauta í fjölbrautaskóla, en fomám- ið er ætlað til undirbúnings fyrir framhaldsskóla. Skipverji á Detti- fossi slasaðist HÁSETI á Dettifossi slasaðist við vinnu sína um borð þegar skipið lá i höfn í Riga i Sovétríkjunum þann 20. september. Hann var fluttur í sjúkrahús þar í borg, en kom aftur til íslands í gær. Slysið varð þegar verið var að festa keðju um borð. Strekkjari, sem notað- ur var við vinnuna, slóst í andlit mannsins, sem mun meðal annars hafa misst nokkrar tennur og skadd- ast á nefi. Gert var að meiðslum hans í sjúkrahúsi í Riga og varð hann ...þar-eftirþegarDfittifoss.sigldi heim..
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.