Morgunblaðið - 03.10.1987, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987
SNYETI
VÖRUE
í Gamla
miðbænum
Austurstræti 16
SOFFÍA
“•emmtorg j
topptískan
1 Aða»str*tí9
KÍGNS^B0t>1N
SÁPUHÚSIÐ
Laugaveg*
ATHUGIÐ
Viðhöfum opið í Gam/a miðbænum
frá kl. 10-16 ídag.
GAMLI
MIÐRÆRINN
LAUGARDAGS-
OPNUN
ER STAÐREYND
Að undanförnu hafa samtökin Gamli miðbærinn hvatt
kaupmenn, sem versla á miðbæjarsvæðinu, til þess
að hafa verslanir sínar opnar frá kl. 10-16 á laugar-
dögum. Við lítum svo á, að laugardagsopnun sé
staðreynd, sem ekki þýðir að berjast á móti, og að
þeir kaupmenn sem ekki hafa nú þegar meðtekið
þetta, séu aðeins að fæla viðskiptavini sína í fangið
á þeim stórmörkuðum, sem tilbúnir eru til þess að
veita þessa þjónustu. Sem betur fer eru flestir kaup-
menn sér meðvitaðir um það, að þjónustu á að veita
á þeim tíma, sem viðskiptavinir helst eru líklegirtil
að nýta hana. Við teljum, að með því að hafa opið
á laugardögum til kl. 16 gefist fólki betri tími til inn-
kaupa og að fljótlega komi í Ijós, að laugardagur
verði aðalverslunardagur vikunnar. Þeir kaupmenn,
sem ekki nýta sér þennan tíma, muni því fljótlega
komast að því, að með því að bíða og sjá til, eins
og sumir segja, eru þeir að hrekja viðskiptavini burtu
til annarra. Við lauslega könnun, sem gerð var, kom
í Ijós, að um 90% verslana á miðbæjarsvæðinu voru
opnar til kl. 16, þannig að um 10% eru ekki komnir
í startholurnar enn. Við viljum því hvetja kaupmenn
til að standa saman um þennan tíma, því ekkert er
hvimleiðara fyrir viðskiptavini en að koma að lokuð-
um dyrum hjá kaupmönnum, sem kannski hafa notið
viðskipta við þetta fólk árum saman; fólk, sem ætlar
sér að nota daginn og gera innkaup í rólegheitum.
Verum því samtaka um að bjóða fólk velkomið til
viðskipta
Á LAUGARDÖGUM FRÁ KL. 10-16.
OPNUNARMIÐAR
Þessa dagana erum við að bera út og selja miða,
þar sem fram kemur hver opnunartími viðkomandi
verslunar er. Þetta teljum við sjálfsagða þjónustu
við viðskiptavini. Við stefnum að því að allir félags-
menn GM, sem reka verslanir, verði með þessa
miða í sínum gluggum og gangi þar með á undan
og sýni gott fordæmi.
BÍLASTÆÐI
Við biðjum viðskiptavini í Gamla miðbænum að at-
huga vel að nóg bílastæði eru í miðbænum á
laugardögum. Við bendum á bílastæði í kringum
Hlemm, nýja bílastæðið við höfnina, Kolaportið í
húsi Seðlabankans, bílastæði á Skólavörðuholti og
mörg fleiri.