Morgunblaðið - 03.10.1987, Síða 10

Morgunblaðið - 03.10.1987, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987 Rannsóknarstöð Hjarta- verndar fær 200 þús- und krónur að gjöf Stjórnendur fyrirtækjanna Pharmaco hf. og Delta hf. færðu nýlega Rannsóknarstöð Hjarta- verndar tvö hundruð þúsund krónur að gjöf í tilefni tuttugu ára afmælis rannsóknarstöðvar- innar, en hún tók til starfa i október 1967. Á myndinni er Werner Rasmusson stjórnar- formaður fyrirtækjanna að afhenta Nikulási Sigfússyni yfir- lækni Rannsóknastöðvar Hjarta- verndar gjöfina. Furugrund Mjög góð 4ra herb. íb. á 5. hæð í lyftublokk. Bílskýli. Suðursv. Frábært útsýni. Engihjalli Mjög góð 90 fm (nettó) 3ja herb. íb. á 6. hæð i lyftublokk. Tvenn- ar svalir. Þvottahús á hæðinni. Ákv. sala. 114120-20424 Sýnishorn úr söluskrá l Garðabær - raðhús Bráðvantar fyrir ákv. og traustan kaupanda ca 150-200 fm raðhús í Garðabæ. Óvenju góðar greiðsl- ur fyrir rétta eign. Önnur stað- setning kemur til greina. Sjá auglýsingu með f jölda eigna í Mbl. á morgun, sunnudag HEIMASIMAR: 622825 - 667030 miðstöðin HATUNI 2B- STOFNSETT 1958 Sveinn Skúlason hdl. B SIMAR 21150-21370 S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS L0GM J0H Þ0ROARS0N HDL Bjóðum til sölu meðal annars : Suðuríb. i Vesturborginni Skammt frá Sundlaug Vesturbæjar 3ja herb. íb. á 4. hæð um 70 fm nettó. Vel skipul. ágæt sameign. Sólsvalir. Mlkið útsýni. Skuldlaus. Ákv. sala. Rúmgóðar íbúðir í smíðum 3ja og 4ra herb. v. Jöklafold í Grafarv. Fullb. u. trév. næsta sumar. Sameign fullgerð. Byggjandl Húnl sf. Fokheldar á næstunni. Kynnið ykkur nánar frábær greiðslukj. Á vinsælum stað í Kópavogi Steinh. á einni hæð. 135 fm nettó auk bílsk. 26 fm nettó. 4 góð svefn- herb. Falleg ræktuð lóö. Beln sala eöa skiptl fyrir góöa 3ja herb. íb. Ákv. sala. Teikn. á skrifst. í Hafnarfirði - hagkvæm skipti Til kaups ðskast góö 4ra herb. íb. helst í Noröurbæ eöa nágr. Skipti mögul. á hæð og rish. í Kinnunum með 6-8 herb. glæsil. íb. Svalir og snyrting á báöum hæðum. Rúmg. bílsk. Glæsileg eign á góöu veröi Nú þegar Fullb. u. trév. 5 herb. glæsll. íb. 127 fm nettó á 1. hæö í suðurenda, á besta stað i Seljahv. Sárþvhús. Öll sameign fullfrág. Bflhýsi fylgir. Teikn., myndir og nánari uppl. á skrifst. Fjöldi fjársterkra kaupanda aö einbhúsum, raöh., sérh. og Ib. Marglr bjóða útborgun fyrir rátta eign. Ennfremur getum við boðið margskonar eignaskipti. Opið i dag laugardag kl. 11.00-6.00. AIMENNA FASTEI6HASAIAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Sinfóníuhljómsveit íslands: Fyrstu tónleikamir Tónlist Jón Ásgeirsson Efnisskrá: Haustkvöld Vorið Orð hennar Trönurnar Aría Tatjönu úr Eugene Onegin Sinfónia nr. 7 J. Sibelíus E. Grieg T. Rangström J. Sibelius P.Tsjaíkovskí A Bruckner Einsöngvari: Elísabet Söderström Stjórnandi: Frank Shipway Tónleikamir hófust með þrem- ur söngatriðum, er Söderberg flutti frábærlega vel, bæði Haust- kvöld eftir Sibelíus en einkum þó hið undurfallega lag, Vorið, eftir Grieg. Þtjú smálög eftir Ture Rangström stóðu svo lítið á ská við fyrri lögin og þó Rangström hafi verið ágætur lagasmiður, voru þessi lög ekki alls kostar passandi við fyrri lögin. Trönusýn- in er leikhústónlist eftir Sibelius sem að mestu er gleymd og hefði sem best mátt sleppa en eina lag- ið við leikritið Kuolema, sem heyrist oft flutt, er Valse triste. Söderström söng aríu Tatjönu úr óperunni Eugene Onegin eftir Tsjaikovskí og var söngur hennar mjög glæsilegur. Að skaðlausu hefði mátt segja eitthvað um efni söngverksins (nafnið á aríunni) og að minnsta kosti segja hlust- endum frá því að Tatjana hefur orðið ástfangin af Onegin greifa og tjáir honum ást sína bréflega. Fyrir tiltækið les hann henni pist- ilinn og skammar hana fyrir ókvenlega hegðan og alls óviðeig- andi framkomu. Seinna fær hún svo tækifæri til að vísa honum á bug, sem hún og gerir. Tónleikunum lauk með þeirri sjöundu eftir Bruckner og til liðs við hljómsveitina höfðu verið Morgunblaðið/Sverrir Hljómleikagestir þakka Frank Shipway hljómsveitarstjóra og Elisabetu Söderström. fengnir „Wagnertúbu“-spilarar frá Englandi. Sjöunda sinfónían var frumflutt í Leipzig 30. desem- ber 1884. Stjómandi var Artúr Nikisch og er þess sérstaklega getið að áheyrendur hefðu fagnað verkinu með fimmtán mínútna klappi. Þetta er í raun fyrsta verk Bruckners sem „slær í gegn“. Bruckner hóf að semja verkið árið áður en Wagner lést en lauk við það 21. apríl 1883, um það bil níu vikum eftir Iát meistarans. Hægi þátturinn, ekki síst fyrir þá sök að þar notar tónskáldið „Wagnertúbur“, er talinn af sagn- fræðingum vera sorgaróður vegna andláts Wagners en þessi þáttur allur er með því fallegasta sem Bruckner samdi. Bæði fyrsti og annar þátturinn var ágætlega leikinn og auðheyrt að Shipway hefur unnið vel með hljómsveitinni. Skersó-þátturinn og sá síðasti eru hins vegar af þeirri gerðinni sem aðeins „stór“ hljómsveit ræður alls kostar við. Strengjasveitin er of fáliðuð fyrir venjuleg sinfónísk verk, hvað þá þann hljómbálk sem Bruckner hleður upp í seinni köflum sjö- undu. Til þess að jafnvægi hefði verið á milli strengja og blásturs- hljóðfæra í þessu verki, hefði strengjasveitin mátt vera tvisvar sinnum ijölmennari. Þá hefði gef- ið að heyra „stórsinfónískan" hljóm. „Wagnertúbumar“ hljómuðu mjög fallega þó af og til mætti merkja ónákvæmni í samspili. Okkar menn stóðu vel fyrir sínu og á köflum lék hljómsveitin mjög vel. Morgunblaðið/Sverrír Bresku túbuleikaramir sem komu til landsins til að leika í 7. sinfóníu Bruckners. Reykjavík: Ráðstefna um ferðamál FERÐAMÁLANEFND Reykjavíkur stendur að ráðstefnu um ferðamál i Holiday Inn í Reykjavík mánudaginn 12. októb- er 1987 frá klukkan 9.30 til 19.00. Ráðstefnan nefnist „Reykjavik - fundarstaður framtíðarinnar“. Dagskrá ráðstefnunnar hefst klukkan 9.30 en Klukkan 10.00 verð- ur slðan farið í skoðunarferð um Reykjavlk undir leiðsögn fulltrúa embættis borgarverkfræðings og verður ekið um helstu staði sem tengjast ferðamálum, svo sem Hótel Sögu, Hagatorg og Háskólasvæðið, Flugleiðasvæðið, Laugardalssvæðið og nýja miðbæinn að Borgarleik- húsi. í Borgarleikhúsinu klukkan 11.45 verður slðan kynning á nýju borgarskipulagi í umsjón Borgar- skipulags Reykjavíkur. Að loknum hádegisverði í Holiday Inn og eftir stutt ávörp Júlíusar Hafsteins formanns Ferðamála- nefndar Reykjavíkur og Davíðs Oddsonar borgarstjóra flytur Frank Mankiewicz, varastjómarformaður Hill og Knowlton Public Affairs Worldwide í Washington, erindi um það hvemig aðrar þjóðir og land- svæði hafa á skipulegan og mark- vissan hátt byggt upp ferða- og ráðstefnuþjónustu á fáum árum. Mankiewicz, sem hefur langa reynslu í kynningarmálum, er þjóðkunnur Bandaríkjamaður, var meðal annars blaðafulltrúi Roberts Kennedys og náinn samheiji John F. Kennedys Bandaríkjaforseta á sjötta og sjö- unda áratugnum. Einnig munu Bjami Sigtryggsson aðstoðarhótelstjóri Hótels Sögu, Steinn Logi Bjömsson fulltúi for- stjóra Flugleiða, Þómnn Ingólfsdótt- ir Ferðaskrifstofu Ríkisins og Hildur Jónsdóttir Samvinnuferðum/Land- sýn, flytja erindi en að þeim loknum verða umræður með Þátttöku Birgis Þorgilssonar ferðamálastjóra, Emu Hauksdóttir framkvæmdastjóra Sambands veitinga- og gistihúsa, Friðriks Haraldssonar formnns Fé- lags leiðsögumanna, Jóhannesar Gunnarssonar frá Ferðamálanefnd Reykjavíkur, og Sigfúsar Erlingsson- ar framkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða. Stjómandi umræðnanna verður Jón Hákon Magnússon. Þór- unn Gestsdóttir varaformaður ferða- málanefndar mun síðan slíta ráðsteftiunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.