Morgunblaðið - 03.10.1987, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987
Vetrarstarf í Áskirkju
Sunnudaginn 4. október hefst
vetrarstarf í Áskirkju. Breytist þá
messutíminn frá því sem var í sum-
ar og bamastarf hefst og jafnframt
akstur til og frá kirkju tvisvar í
mánuði.
Bamastarfið byrjar með bama-
guðsþjónustu kl. 11 á sunnudaginn
og verða bamaguðsþjónustur í Ás-
kirkju framvegis hvem sunnudags-
morgun á sama tíma. Þar em
bömunum kenndar bænir og vers
og sagðar sögur og afhentar biblíu-
myndir og afmælisbömn fá litla
gjöf, en bamasálmar og hreyfí-
söngvar eru sungnir. Bamaguðs-
þjónustumar annast Anna
Ingólfsdóttir og Guðrún M. Bimir
ásamt sóknarpresti.
Þá er fermingamndirbúningur
vetrarins að heíjast og verða reglu-
legar samvemstundir með ferming-
arbömum á laugardögum í
Safnaðarheimili Áskirkju.
Eins og aðra sunnudaga_ vetrar-
ins verður guðsþjónusta í Áskirkju
á sunnudaginn kl. 14. Sönginn þar
leiðir kirkjukór Áskirkju, en organ-
isti er Kristján Sigtryggsson.
Á sunnudaginn mun Safnaðarfé-
lag Ásprestakalls láta bifreið aka
að dvalarheimilum og fjölmennustu
byggingum sóknarinnar til að gefa
íbúum þar kost á flutningi til og
frá kirkju, en það hefur félagið
gert einu sinni í mánuði undanfama
vetur. Nú er í ráði að auka þessa
þjónustu, sem hefur mælst mjög
vel fyrir og mun félagið senda bif-
reið tvisvar í mánuði í vetur og
verða ferðimar auglýstar nánar.
Eftir guðsþjónustuna á sunnu-
daginn selur Safnaðarfélag As-
grestakalls kaffi í Safnaðarheimili
Áskirkju til ábata fyrir bygginga-
sjóð kirkjunnar og fjölþætta starf-
semi félagsins, en það heldur
reglulega félagsfundi með fjöl-
breyttri dagskrá í Safnaðarheimili
Áskirkju þriðja mánudag hvers
mánaðar kl. 20.30.
Er það von mín að sóknarböm
og velunnarar Áskirkju fjölmenni
til kirkjunnar á sunnudag til að
njóta þar helgrar stundar og styðja
ennfremur starf Safnaðarfélagsins.
Arni Bergur Sigurbjörnsson
■ :■
Heitavatnið
greiðir þú
Hitaveitmmi sjálfri
frá og með 5. okt.
Mánudaginn 5. október tekur Hitaveita Reykjavíkur viö
innheimtu og gerð hitavatnsreikninga af Rafmagnsveitu
Reykjavíkur sem annast hefur hvort tveggja fram aö
þessu.
Þér, ágæti viðskiptavinur, er vinsamlega bent á að ekki
er unnt að greiða orkureikninga Hitaveitunnar hjá
Rafmagnsveitunni eftir 2. október. Þeir óskast greiddir
í bönkum, sparisjóðum, pósthúsum eða á skrifstofu
Hitaveitunnar, Grensásvegi 1 (opið mánudaga -
föstudaga frá 8.20- 16.15).
Þessi breyting felur jafnframt í sér að nú þarf að tilkynna
Hitaveitunni um aðsetursskipti.
Allar nánari upplýsingar veitir Hitaveita Reykjavíkur í
síma 82400
HITAVEITA REYKJAVÍKUR
Grensásvegi 1, Sími 82400
%
RAFMAGNSVEITA
REYKiAVÍKUR
SUtXIRLANDSBRAUT 34 SÍMI686222
Nokkur orð um
ógeðfelldan
hávaða
eftir Vigdísi
Jónsdóttur
Það var mér hugarléttir að lesa
greinar þeirra Steingríms Gauts
Kristjánssonar (24.9.) og Sigurðar
Þórs Guðjónssonar um hávaða, þær
birtust í Morgunblaðinu. Sigurður
Þór hefur áður beitt orðsins brandi
gegn hávaðanauðung, ef ég man
rétt í Mánudagsblaðinu og sennilega
víðar.
Þess er að vænta að menn veiti
athygli málflutningi þessara snjöllu
manna og láti sér skiljast hvert
stefnir ef frumskógalögmál ræður
þar sem mönnum helst uppi að hella
allskonar rusli úr hávaða græjum
yfír hvem sem fyrir verður.
Hægt er að forðast ógeðfelldan
hávaða í verslunum, veitingastöðum
og öðrum fyrirtækjum í eigu ein-
staklinga með því að leita annað um
þjónustu, en hvað á farþegi í strætis-
vagni eða í bíl á sérleyfisleið að gera?
Eftir vonda reynslu á ferðalagi í
sumar tók ég það til bragðs að skrifa
Félagi sérleyfíshafa, en hef ekki
fengið svar ennþá. Því langar mig
til að birta bréfíð og jafnframt að
benda á að þeir sem telja sig órétti
beitta, í skiptum við stofnanir sem
ekki er hægt að flýja frá, ættu ekki
að taka því með þögn og þolinmæði,
heldur láta í ljósi álit sitt og vilja.
Að öðrum kosti gerist ekkert.
Fer bréfíð hér á eftir:
Til Félags sérleyfíshafa
U mferðarmiðstöðinni
Vatnsmýrarvegi 10
Reykjavík
Undirrituð beinir því til Félags
sérleyfíshafa að gerðar verði ráðstaf-
anir til að farþegar í áætlunarbílum
á íslandi njóti vemdar gegn ofbeldi
sem í því felst að hella yfír þá
misjafnlega illa fluttri dægurtónlist.
Það er lítt bærilegt að aka hálfan
hringveginn án þess að nokkurt hlé
verði á þessari plágu. Nýjar popp-
stöðvar og rásir virðast njóta mikillar
hylli þeirra sem farartælq'unum
stjóma og er hart að þurfa að standa
í útistöðum við starfsmenn bílanna
til að fá þögn og stundarhlé.
Ekki er þó óskandi að góð tónlist
verði send gegnum hátalarana í
bílunum, þeir eru of lélegir til þess
og vélarhljóðið spillir hverskonar tón-
list, einnig poppinu.
Þess skal að lokum getið að fá-
heyrt mun í veröldinni að ráðamenn
almenningsfarartækja hafi leyfí til
að láta farþega þola nauðungar-
hlustun dögum saman.
Vona ég að heiðraðir sérleyfís-
hafar taki þetta mál fyrir og geri sér
grein fyrir alvöru þess.
Höfundur er fyrrverandi skóla-
atjóri Hússtjómarkennaraskóla
íslands.