Morgunblaðið - 03.10.1987, Page 29

Morgunblaðið - 03.10.1987, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987 29 Ítalía: Tekist á um trúfræðslu í skólum Róm, Reuter. NOKKUR óvissa og átök virðast framundan í ítölskum stjórn- málum vegna tilrauna Páfagarðs til að bregða fæti fyrir ráðgerðar breytingar á trúfræðslu í ríkis- skólum. Hefur hann komið því á framfæri við ríkisstjórnina, að breytingarnar fari í bága við sáttmála rikis og kirkju frá árinu 1985. Sáttmálinn frá 1985 er á milli ítalska ríkisins og Páfagarðs, sem er sjálfstætt ríki, og með mótmæl- unum nú verða umræðumar um trúfræðsluna ekki lengur innanrík- ismál á Ítalíu, heldur milliríkjamál. Hefur stjórnarandstaðan með kom- múnista í fararbroddi brugðist ókvæða við afskiptum Páfagarðs og hætt er við, að þetta mál geti orðið ríkisstjóm Giovanni Goria skeinuhætt. Trúfræðsla er valgrein í ítölskum ríkisskólum og er jafnan varið til hennar einni klukkustund á viku. Fyrirhuguð breyting er sú, að þessi kennsla fari fram utan venjulegs námstíma og óttast kirkjunnar menn, að það verði til, að flestir nemendur sleppi henni. Flokkamir fimm, sem standa að ríkisstjórninni, höfðu samþykkt endurskoðunina en nú eru kristileg- ir demókratar í klípu því að kaþó- likkar styðja þá fremur en aðra flokka. Hinir stjómarflokkarnir §órir vilja hins vegar ekki ljá máls á neinum undanslætti. Spánn: Stefnir í met- ferðamannaár Madrid. Reuter. FERÐAMENN, sem komu til Spánar á fyrstu átta mánuðum ársins, voru 35,7 milljónir tals- ins, 7,5% fleiri en á sama tíma í fyrra, að því er ferðamálaráðu- neytið sagði í gær. Tekjur af ferðamönnum vom 8,2 milljarðar dollara fyrstu sjö mánuð- ina, 19,9% meiri að raunvirði en á sama tíma í fyrra. Tölur fyrir ágúst- mánuð lágu ekki fyrir. Á flóðasvæðunum í Suður-Afríku Þessi mynd er tekin í Lindelan-héraði fyrir norðan Durban í Suður- Afríku í gær, en það hérað varð illilega fyrir barðinu á flóðunum, sem verið hafa í landinu undanfama daga. Starfsmenn Rauða krossins em þama að útdeila mat til hungraðra og heimilslausra bama. Bretland: Vill stytta leyfilegan tíma til fóstureyðinga St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni fréttaritara Morgunblaðsins. SÍÐASTLIÐINN laugardag sagði David Alton af sér forystu- hlutverki í þingflokki Fijáls- lynda flokksins. Hann hefur ákveðið að beita sér fyrir frum- varpi, sem kveður á um, að leyfilegur tími til fóstureyðinga verði styttur úr 28 í 18 vikur. Hann taldi, að svo mikil átök yrðu um frumvarpið, að óeðlilegt væri, að hann leiddi þingflokk- inn. A hveiju ári draga þingmenn um það að fá að leggja fram fmmvörp í eigin nafni, og njóti þau stuðn- ings, eiga þau góða möguleika á að verða að lögum. Þetta er eina raunveralega tækifærið fyrir ein- staka þingmenn að koma fram frumvörpum í þinginu. David Alton varð þriðji í röðinni þetta árið og hefur ákveðið að leggja fram frum- varp um styttingu á leyfílegum tíma til fóstureyðinga. Árið 1967 lagði David Steel, núverandi leiðtogi frjálslyndra, fram fóstureyðinga- frumvarp, sem síðar varð að lögum. David Alton segir, að David Steel hafí ekki reynt að þrýsta á sig um að leggja fram framvarp um mál, sem minni deilur yrðu um. Hann hafí skilið ástæðumar til þessarar ákvörðunar og þeir séu bestu vinir. Hins vegar hafí ákvörðun hans ver- ið ósamrýmanleg því hlutverki að halda einingunni í þingflokknum. David Alton er þingmaður fyrir Mosley Hill í Liverpool. Hann á írska móður og breskan föður, var skírður af Fransiscusarmunkum og skólaður hjá Jesúítum. Um tíma ætlaði hann að verða trúboði, en ákvað að fara í kaþólskan háskóla í Liverpool og læra guðfræði og sögu. Hann kenndi fötluðum eftir skólanám og gekk í Frjálslynda flokkinn. „Ef maður trúir því, eins og ég,“ segir hann, „að eftir getnaðinn hafí nýr og sjálfstæður einstaklingur byijað að þroskast, þá hlýtur réttur- inn til lífsins að koma á undan öllu öðru hjá manni. Það væri fásinna af mér að reyna að hrinda fóstur- eyðingalögunum. Það er ekkert unnið við það, að konur sæki á ný ólöglegar fóstureyðingastofur, en nú, þegar hægt er að bjarga lífi 23 vikna gamals bams, þá er það hreinn viðbjóður að eyða sjö mán- aða gömlu bami.“ Holland: Karlar útilok- aðir frá skóla- sljórastöðum Jarðskjálftinn í Los Angeles: Japanar láta sér fátt um finnast Tókió, Reuter. ÞRÁTT fyrir að Los Angeles hafi riðað og skolfið á fimmtu- dag, létu japönsk dagblöð sér fátt um finnast og höfðu ekki fyrir því að slá fréttinni upp, enda Japanir vanir mun öflugri skjálftum og kalla ekki allt ömmu sína í þeim efnum. Dagblaðið Yomiuri gat skjálftans lítillega á forsíðu, en önnur dag- blöð, sem eitthvað kveður að, létu sér nægja að segja frá skjálftanum á innsíðum aftarlega. Skjálftinn í Los Angeles, sem mældist vera 6,1 stig á Richters- kvarða, er allt að því smávægilegur á japanskan mælikvarða. í septem- ber 1985 varð öflugur skjálfti í Tókíó, sem mældist vera um 6,9 stig á Richters-kvarða. Annar slíkur átti sér stað á eynni Kyushu á suð- urhluta Japans-eyja í mars á þessu ári. Þá má ekki gleyma skjálftanum mikla, sem jafnaði Tókíó við jörðu fyrir 64 árum og Japanar minnast enn með hiyllingi. I kjölfar þess skjálfta sigldu ýmiskonar varúðarráðstafanir. Settar vora á stofn eftirlitsstöðvar og þar fylgjast sérfræðingar með öllu, sem bent gæti til yfírvofandi jarðskjálfta — allt frá eftirliti með hverskonar jarðhræringum til at- ferlisathugana á leirgeddum. Þá hafa flestir Japanar tilbúnar vistir og annan neyðarbúnað ef „Sá stóri" skyldi ríða yfír. Haag, Reuter. BORGARSTJÓRN Amsterdam hefur lagt bann við, að karlar verði ráðnir í skólastjórastöður næstu fimm árin. Er það gert í því skyni að hvetja konur til að taka að sér stjórnunarstöður inn- an menntakerfisins, að því er talsmaður borgarstjórnarinnar sagði í gær. Talsmaðurinn, Raphael Smit, sagði, að ákvörðunin, sem tekin var á miðvikudagskvöld, miðaði að því að leiðrétta misvægi í menntakerf- inu. Um 65% kennara í 123 skólum Amsterdam era konur, en aðeins þriðji hver skóli hefur kvenskóla- stjóra. Hollensk lög leyfa, að stjómvöld grípi til tímabundinnar mismununar á sviðum, þar sem annað kynið er í meirihluta, en gegnir tiltölulega fáum stjómunarstöðum, sagði Smit. Aðstoðarráðherra í menntamála- ráðuneytinu, Nel Ginjaar-Maas, sem er kona, var andvíg banninu. „Þetta er ekki jafnrétti, heldur yfír- drottnun," sagði hún. Tölvumyndavél á viðráðanlegu verði Tókló, Reuter. JAPANSKA fyrirtækið Casio mun setja nýja gerð tölvu- myndavélar á markað 30. nóvember og segja sérfræðing- ar hún gæti orðið fyrsta vélin af þessu tagi til að ná vinsældum meðal almennings. „Ljósmyndataka með rafeinda- tækni hefur um langt skeið verið tæknilega möguleg og aðeins verið beðið eftir leið til að gera hana nothæfa almenningi," sagði Darryl Whitten, sérfærðingur fyrirtækis- ins Pradential Bache Securities, í gær. „Nú er fyrsta áfanga náð að því markmiði að hinn almenni neytandi hafí efni á að njóta þess- arar tækni.“ Ljósmyndavélin frá Casio, VS-101, verður seld fyrir 870 Bandaríkjadollara (um 34.000 ísl. kr.). Hún getur geymt um 50 myndir, sem teknar eru með raf- eindatækni, á tölvudiski. Diskinn má nota aftur og aftur. Að sögn talsmanns Casio verður hægt að skoða myndimar á sjónvarps- skermi um leið og þær hafa verið teknar með því að tengja mynda- vélina sjónvarpsviðtæki. Sérfræðingar segja að hingað til hafi rafeindamyndir verið léleg- ar að gæðum og tæknin hafí því ekki náð útbreiðslu. „Ljósmyndim- ar era helmingi lélegri en venjuleg- ar sjónvarpsmyndir," sagði atvinnuljósmyndari. Segja sérfróðir menn að myndir nýju Casio-vélarinnar verði ugg- laust lélegri en þær sem teknar era á bestu tölvumyndavélar á markaðnum vegna þess að mynd- skynjarinn í henni sé ekki jafn fullkominn. Myndskynjarinn breyt- ir því sem fyrir hann ber í stafræn tákn og þau ritast á tölvudiskinn. „Verðið á Casio-vélinni markar tímamót, en ekki myndavélin sjálf," sagði einn sérfræðingur. Tölvumyndavél, sem fyrirtækið Canon setti á markað í júlí á þessu ári, kostar tæplega 50 þúsund doll- ara (um tvær milljónir ísl.kr.). Reuter Stúlkan á myndinni heldur á 34.000 króna myndavélinni frá Casio.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.