Morgunblaðið - 03.10.1987, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987
43
Roberto Benigni í hlutverki sínu í myndinni, Undir fargi laganna, sem sýnd var á Kvikmyndahátíð
Listahátfðar.
Kvikmyndahátíð Listahátíðar 1987:
Undir fargi laganna
Seinheppnir sölumenn
#
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Undir fargi laganna (Down By
Law). Bandarísk, 1986. Leik-
stjóri: Jim Jarmusch. Handrit:
Jim Jarmusch. Kvikmyndataka:
Robby Muller. Tónlist: John
Lurie. Helstu hlutverk: Tom
Waits, John Lurie og Roberto
Benigni.
I scream, for you scream, for
we scream for Icecream.
Bob.
Jack og Zack. Zack og Jack. Og
Bob og Jack og Zack. Þrír aldeilis
ólánsamir menn hittast af engri til-
viljun í fangaklefa í Louisiana. Jack
er melludólgur. Zack var einu sinni
plötusnúður á útvarpsstöð. Bob er
meinlausastur á að líta; ítalskur
ferðalangur með hrífandi áhuga
fyrir engilsaxneskunni. En hvað er
þetta mislita fé að dúsa í fangelsi?
Jack var plataður á stefnumót
við stúlku undir lögaldri og löggan
var allt f einu komin um allt og
Jack var handtekinn áður en hann
gat sagt svo mikið sem halló. Nú,
Zack. Hann var að skipta sér af
engu þegar gamall kunningi kom
og bað hann, fyrir 1.000 dollara,
að keyra tiltekinn bfl á tiltekinn
stað. Gamli kunninginn var ekkert
að láta Zack vita af líkinu í skott-
inu. En löggan fékk að vita um líkið
og stoppaði Zack og Zack lenti í
steininum. En Bob? Já, Bob. Hann
gæti ekki gert flugu mein en hann
er þó sá eini sem brotið hefur eitt-
hvað verulega af sér. Hann er
morðingi. Að vísu ekki sérlega kald-
rifjaður. Hann var að spila fjár-
hættuspil við þessa náunga sem
föttuðu að hann svindlaði, en venju-
lega svindlar Bob mjög vel svo
yfirleitt kemst aldrei upp um hann.
En þessir náungar urðu verulega
reiðir svo Bob tók á rás og á flóttan-
um hljóp hann í gegnum ballskákar-
sal og til að gera eitthvað greip
hann kúlu, nánar tiltekið kúlu núm-
er átta sem er mjög góð kúla, og
henti henni aftur fyrir sig. Hún lenti
á enninu á einum spilafélaganum
og hann dó með það sama. Mjög
slysalegt allt saman og algjörlega
óvart.
Þannig er nú saga þeirra Jack
og Zack og Bobs í Louisiana-fang-
elsinu.
Það er auðvelt að hrífast af þess-
um persónum myndar Jim Jarm-
usch, Undir fargi laganna (Down
By Law). Þótt Jack og Zack séu
talsvert fráhrindandi við fyrstu
kynni mýkjast þeir aðeins þegar á
líður og Bob er dásamlegur karakt-
er. Þessir þrír ólánsmenn eiga
ekkert sameiginlegt nema veggina
f fangelsinu og slæm örlög, sem
þeir ekki réðu. Samband þeirra jaðr-
ar alltaf við að vera fjandsamlegt,
Jack og Zack eiga í sffelldum erjum
og Bob stendur einhvers staðar á
milli og nfðist á enskri tungu í hvert
skipti sem hann opnar munninn.
Það er kaldhæðnislegt að Jack og
Zack skuli sitja inni fyrir það sem
þeir gerðu ekki, en hámark kald-
hæðninnar er að Bob skuli vera
morðinginn í hópnum.
Þar til þeir lenda saman í fangels-
inu og Bob kemur í myndina er
ekki auðvelt að sjá hvert stefnir. í
upphafsatriðinu keyrir myndavélin
fram og aftur um hijóstrugt lands-
lag fátæktarhverfa og auðnar og
nemur staðar við tvo íbúa í slömm-
inu. Jack situr undir skömmum frá
mellunni sinni og Ellen Barkin, sem
er eins og fellibylur í litlu aukahlut-
verki, hendir kærastanum Zack út
og vill aldrei sjá hann aftur. Þannig
hefst ferð sakleysingjanna í fang-
elsið. Þar hitta þeir Bob og skyndi-
lega verður Undir fargi laganna
gamanmynd. Bob gefur myndinni
ríkulegan kómfskan svip með enda-
lausu blaðri og ítalski grínarinn sem
leikur hann, Roberto Benigni, fer
einfaldlega á kóstum í hlutverkinu
Kvlkmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó: Löggan í Beverly
Hills H — The Beverly Hills cop
n ★ ★ 1/2
Leikstjóri: Tony Scott
Handrit: Eddie Murphy o.fl.
Tónlist: Harold Faltemeyer
Aðalleikendur: Eddie Murphy,
Judge Reinhold, Ronny Cox,
Jurgen Prochnow, Birgitte Niel-
sen.
Bandarisk. Paramount 1987.
Meginmálið er það að Murphy
er bæði svo bráðfyndinn og hæfi-
leikaríkur gamanleikari og súper-
stjama að hann getur sagt sama
brandarann aftur — og allir hlæja.
En jafnframt verður honum að
miklu leyti kennt um ófrumleika
þessarar framhaldsmyndar, sem á
köflum er slfk eftiröpun þeirrar fyrri
að undrum sætir. Einkum þegar
haft er í huga að það eru engir fjár-
vana nýgræðingar hér við stjóm,
heldur blóminn úr Hollywood í dag
og ómælt fjármagn Gulf & West-
em. Það er ólíkleg blanda alvöru-
löggumyndar og farsakenndrar
gamanmyndar sem er undirstaða
þessarar vinsælustu myndar ársins.
Að hluta til meira að segja örlítið
væmin hefndarþriller! Murphy er
semsé aftur kominn til Beverly-
hæða, nú til að hafa uppá glæpalýð
sem hefur m.a. sært vin hans Ronny
Cox, lögregiustjóra, næstum til ólíf-
is. Sú sem stendur á bak við ódæðið
er kvenskratti mikill og ljóshærð-
ur...
Murphy hafði allt að segja hvað
varðaði endanlegt handrit, enda er
BHC II fyrst og fremst vettvangur
fyrir einstaka gamanhæfileika pilts.
Hann mætti þó gjaman víkka skop-
skynið sem einkum er bundið við
ótrúlega hraðmælsku og derring —
og svo þenhan ómótstæðilega hlát-
með gáfulegan svipinn og furðusög-
umar um hvemig hann varð
morðingi og hvemig mamma hans
var skrítin. John Lurie leikur mellu-
dólginn Jack, en plötusnúðurinn
Zack er leikinn af tónlistarmannin-
um Tom Waits og báðir líta þeir
út eins og fangelsið sé þeirra annað
heimili. Aðeins Bob á eftir að fínna
hamingjuna þegar þeir flýja fang-
elsið, leiðir Jack og Zack skilja án
þess að vinátta hafí kviknað á milli
þeirra. Það er ekkert sem bindur
þá saman.
Það er líka auðvelt að hrífast af
vinnubrögðum Jarmusch, svart/
hvítu kvikmyndatökunni, uppstill-
ingum í fangaklefanum, lunknu og
oft bráðfyndnu handritinu og góð-
um leiknum. Jarmusch er sannar-
lega sérstakur og athyglisverður
kvikmyndagerðarmaður í sjálfskip-
aðri útlegð frá Hollywood. Amerísk
kvikmyndagerð nýtur mikið góðs
af henni.
ur. Það sem á vantar er frumlegri
söguþráður og fyndni. Hinsvegar
fær Reinhold, samleikari hans að
sýna á sér ögn mannlegri hlið en í
fyrri myndinni og er það vel, hann
klárar sig vel sá piltur. Sama verð-
ur ekki sagt um Nielsen, en einhver
ágætur maður lét svo um mælt að
gerði fátt annað í myndinni en að
sýnast stóra systir Max Headroom!
Tæpast nógu góð þegar haft er í
huga að bak við Beverly Hills Cop
II stendur gengið sem gerði Top
Gun, með Tony Scott í fararbroddi
og sjálfan Eddie Murphy, einkum
sökum þess að hún minnir um of á
mynd I. Engu að síður mjög góð
afþreying sem á örugglega eftir að
slá í gegn hér sem annars staðar.
Kvikmyndlr
Arnaldur Indriðason
Seinheppnir sölumenn (Tin Men).
Sýnd í Bíóborginni. Stjömugjöf:
★ ★ ★ ‘/2
Bandarísk: Leikstjóri og hand-
ritshöfundur: Barry Levinson.
Framleiðandi: Mark Johnson.
Kvikmyndataka: Peter Sova.
Tónlist: Fine Young Cannibals.
Helstu hlutverk: Richard Dreyf-
uss, Danny DeVito og Barbara
Hershey.
Þegar BB (Richard Dreyfuss),
straufínn að vanda, keypti sér bfl
einn daginn, stóran, renniiegan
Kadilakk, og var að bakka honum
útúr bflasölunni, þurfti þá ekki þessi
mannapi Tilley (Danny DeVito) að
koma brunandi niður götuna, rúll-
andi feitum hausnum á herðunum
(af því hann er með vöðvabólgu)
og renna beint inní Kadilakkinn.
Rifrildið sem á eftir kemur verður
einkennandi fyrir samskipti þeirra;
Bananahaus og Litli lávarðurinn
eru meinlausu gæluyrðin sem þeir
nota hvor á annan.
Þetta er upphafíð á miskunnar-
lausri óvináttu BB og Tilleys og
sérlega góð kynning á höfðupersón-
um hinnar stórskemmtilegu
gamanmyndar, Seinheppnir sölu-
menn (Tin Man), sem sýnd er í
Bíóborginni. Það er óhemju gaman
að þeim Richard Dreyfuss og Danny
DeVito í hlutverkum óvinanna þeg-
ar þeir eigast hatrammir við í
myndinnni útí gegn og leikstjórinn
og handritshöfundurinn Barry Lev-
inson hefur ekki verið öllu fyndnari.
Hann er aftur kominn til uppáhalds-
staðarins, Baltimore, til uppáhalds-
tímabilsins, öndverður sjöundi
áratugurinn, í mynd sem einhver á
örugglega eftir að segja að sé uppá-
halds Levinson-myndin sín. Sein-
heppnir sölumenn er afbragðsgóð
kómedía og spaugileg manngerða-
lýsing, sem maður brosir að
mörgum dögum eftir að hafa séð
hana.
Myndin gerist sumsé í Baltimore
árið 1963 og segir frá þeim BB og
Tilley, sem eru ekkert ólíkir þótt
þeir hati hvom annan eins og pest-
ina. Það kemur í ljós að þeir eru
báðir sölumenn og meira að segja
selja þeir sömu vöruna, álklæðning-
ar á hús, en fyrir sitthvort fyrirtæk-
ið. Og sölubrellumar sem þeir nota
eru ótrúlegar. Stór partur af húm-
omum í myndinni liggur í lýsingu
Levjnsons á bíræfnum sölumönnum
álsölufyrirtækjanna, bæði söluað-
ferðunum sem þeir beita, félagsand-
anum á milli þeirra og persónunum
sem þeir hafa að geyma. Aðferðim-
ar til að ná í kaupendur em vægast
sagt óprúttnar. BB og félagi hans
beita t.d. Life-aðferðinni á ein hjón-
in en hún er fólgin í því að sölu-
mennimir stilla sér upp fyrir
framan hrörlegt hús með myndavél
og segja heimilisfólkinu að þeir séu
á vegum tímaritsins Life að taka
„fyrir og eftir" myndir í sérstöku
aukablaði um álklæðningar og að
þetta hrörlega hús sé tilvalið í „fyr-
ir“mynd en þeir hafí annað álklætt
hús í „eftir“ mjmd. Húsmóðirin
æjar og óar og semur um að henn-
ar hús verði á „eftir" mynd, hún
þurfi bara að kaupa sér álklæðn-
ingu. „Ljósmyndarinn" BB segir
henni að líklega sé nú ekki búið að
loka hjá þessu ákveðna álsölufyrir-
tæki. Og svo sjá aðrir um kaup-
samninginn.
Nei, hún er ekki fyrir heiðurs-
menn þessi vinna. Tilley lofar eldri
hjónum ókeypis álklæðningu og
skrifar undir samning um það en
sendir svo félaga sinn í húsið með
þær fréttir að litli, bústni sölumað-
urinn sem var héma áðan væri
bilaður og þetta mgl um ókeypis
álklæðningu hreinasta firra. En það
væri sjálfsagt að reyna að fínna
eitthvert samkomulag sem allir geti
verið ánægðir með. Annar kaup-
samningur í höfn.
En þetta er aðeins meðlætið.
Aðalrétturinn er stormasöm sam-
skipti BB og Tilleys. Kadilakkinn
er vömmerki sölumannanna og
þegar einhver kmmpar Kadilakkinn
manns kmmpar hann ímyndina.
Tilley keyrði ekki bara á Kadilakk-
inn hans BB, hann keyrði á BB.
Og baðst ekld afsökunnar. Og BB
ræðst ekki á Tilley þegar hann leit-
ar hefnda, heldur á Kadilakkinn
hans. Það sama gerir Tilley, hann
ræðst á Kadilakk BB. En það er
ekki hægt að lemja á bflum enda-
laust og til að gera útum málið og
hefna sín ærlega lokkar BB, sem
er ógiftur, vanrækta eiginkonu
(Barbara Hershey) Tilleys til að
sofa hjá sér og hringir svo í Tilley
til að segja honum frá því. En Till-
ey kann ráð við því: Hirtu hana
bara, segir hann enda orðinn dauð-
leiður í hjónabandinu og BB, sem
naut þess að vera piparsveinn, situr
uppi með eiginkonu. Það stefnir í
stríð sem enginn getur unnið.
Levinson matreiðir þetta á af-
bragðs máta með skemmtilegri
fyndni, auðugu hugmyndaflugi og
auga fyrir persónum, sem maður
skyldi aldrei treysta í viðskiptum.
Hann hefur allt undir fullkominni
stjóm enda kominn heim til Balti-
more. Það eru atriði hér sem minna
stundum á myndina hans Diner frá
1982, um strákaklíku í Baltimore
árið 1959. Levinson er æði flinkur
í því að færa okkur aftur í tímann
með svolitlum söknuði gagnvart
gömlu góðu dögunum, þegar stórir
Kadilakkar liðu um götumar, Bon-
anza var i sjónvarpinu og menn
veltu því fyrir sér af hveiju enginn
i þáttunum hefði áhuga á kven-
fólki, menn hittust og ræddu málin
á nk. Múlakaffí í hádeginu og sam-
viskulausir sölumenn lugu sig hása.
Dreyfuss og DeVito finna sig vel
í þessum Kadilakk-heimi; Dreyfuss
hreinn og strokinn og smart, albú-
inn að svikja og pretta og DeVito,
sem hefur einstídct lag á að láta
mann hlægja að öllum þeim óförum
sem hann lendir í.
ÞJÓÐDANSAR
Hafíð þið áhuga á að læra íslenska og
erlenda þjóðdansa?
Verið þá með á fímmtudagskvöldum
kl. 20.30.
Hægari yfirferð en í opnu tímunum.
BARNADANSAR
Á mánudögum frá kl. 17-18.30.
Öll börn velkomin.
GÖMLU
DANSARNIR
sem þig hefur alltaf langað til að læra.
Nú er tækifærið. Vinsælu opnu tímamir verða
næstu 5 mánudaga kl. 21-23.
5. október: Rælar, polki, stjömupolki.
12. október: Skottís, Óli skans, kátir dagar.
19. október: Vínarkruss, skoski dansinn, Ten-
nesseepolki.
26. október: Mars, vals, marzurka.
2. nóvember: Tirolavals og hopsa, svensk ma-
skerade, hambo.
Gömlu dansarnir fyrír byrjendur.
10 tíma námskeið á mánudögum
kl. 20-21.
/un:
Nánari upplýsingar í sfmum 687464 og 681616.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur, Sundlaugavegi 34 (Farfuglahelmilið)
Gamlar lummur