Morgunblaðið - 03.10.1987, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987
51
Minning:
Pétur Sigfús-
son, Alftagerði
því fyrir öðru vísi. En mér líður það
ekki úr minni, að hann gaf okkur
Bjama sínar tíu krónumar hvomm.
Það var okkur nýstárleg sjón. Þetta
var rauður seðill með kóngi á og
allt. Mér er Pétur minnisstæður á
þessari stundu í sínum stóra frakka.
Það liðu mörg, mörg ár, þangað til
ég sá annan slíkan seðil.
Við Bjami festum fljótlega rætur
hjá afa og ömmu og bömunum
þeirra í þessum ljúf-fagra dal.
Mamma var komin í þær bestu
hendur, sem völ var á, og lífið
brosti blíðara enn áður og þroski
okkar orðinn meiri til þess að meta
það. Lífið heldur áfram við leik og
störf og við getum lofað margan
sólskinsdag að kvöldi. En það leyn-
ir sér ekki að við Bjami þroskumst
mjög sinn til hvorrar áttar.
Bjami er hæglátur, prúður og
hlýðinn og verður hvers manns
hugljúfi. Hann er dulgefinn í skap-
höfn, svo að ekki er alltaf vitað
hvað hugur hans stendur til. Alltaf
hlýr í viðmóti og forðast að standa
í útistöðum við neinn. Hann hefir
útlitið með sér. Hægleik ættarinnar
og músíkgáfu hefir hann hlotið í
vöggugjöf og hefir orðið frábær
teiknari hefði hann lagt rækt við
það. Strax í bernsku er hann
skyldurækinn við störf sín, þótt
honum væri kærara að tálga spýtu
eða spila á harmomku heldur en
fást við búsmala. Ég tel, að hann
hafi alltaf farið nauðugur til kinda,
þótt hann léti það ekki uppi. Mest
vegna þess hvað honum gekk illa
að þekkja þær í sundur. „Þær era
allar eins," sagði hann, ef þær bára
sama lit. Hvort þær vora hymdar
eða kollóttar veitti hann naumast
athygli. í skóla reyndist Bjami mjög
góður til náms. Tvo vetur gengum
við saman í bamaskóla. Honum var
stundum raun að því. Fannst ég
óknyttasamur og alltof lítið
hæverskur. Aldrei klagaði hann það
heim. Svo kom að því að dvöl hans
styttist í dalnum hjá afa og ömmu
og leiðir okkar skiljast. Vorið 1928
fermist hann. Sumarið er dapurt.
Mamma hefir ekki stigið í fætur
um langa hríð og 14. júlí deyr hún.
Því var tekið af skilningi hjá öllum
og í raun feginsamlega, eins og
komið var fyrir henni, þótt hún
væri aðeins 39 ára gömul. Þá veik-
ist Jóhannes bróðir hennar, sem var
í raun og vera forsjá heimilisins,
24 ára gamall, og dregur það hann
til dauða á þrem vikum. Þá varð
stór harmur í litlum dal; eins og
oft vildi henda á íslandi. 011 sveitin
táraðist við fráfall hans. Hann var
hugljúfur, stæltur og dugmikill at-
orkumaður, sem öllum þótti vænt
um. Af honum var mikils vænst
fyrir byggðarlagið. Jóhannes var
7. í röðinni, sem afí og amma þurftu
að sjá á bak, af 12 bömúm sínum,
nær öll í blóma lífsins. Áfallasamt
hefír það verið. „Þeir verða að
missa, sem eiga," sagði afí. „Drott-
inn gaf og Drottinn tók,“ sagði
amma.
Svo skiljast leiðir hjá okkur
Bjama. Hann fer í Núpsskóla til
náms, og þaðan til náms í söðla-
smíði hjá Stefáni Pálssyni á Kirkju-
bóli í Ónundarfírði. Áð því námi
loknu fer hann til Keflavíkur til
Guðmundar Kristjánssonar, skipa-
miðlara, föðurbróður okkar, sem
þá hafði allmikið umleikis í
Keflavík. Þá er Bjami tvítugur að
aldri. Árið 1935 tók hann mjög
gott próf inn í Verslunarskólann í
Reykjavík, en fékk samt ekki skóla-
vist, sökum þess að skólinn rúmaði
ekki alla þá, sem eigendur hans
þurftu að koma til náms. Þar hafn-
aði Vilhjálmur Þ. góðum nemanda.
Bjama urðu það mikil vonbrigði að
fá ekki þessa skólavist og varð þess
vegna ekki af frekara námi hjá
honum. Hann stundar verslunar-
störf um árabil í Keflavík, uns hann
fór til Esso á Keflavíkurflugvelli og
afgreiddi þar í allmörg ár, eða þang-
að til hann setti á stofn Gler- og
speglasölu í bílskúmum heima hjá
sér. Þann rekstur stundaði hann
fram á þetta sumar, eða til þess
dags, sem meinaði honum að
stjóma för sinni lengur.
Okkur ættmennum Bjama
fannst dauði hans ótímabær, vegna
þess að hann var andlega og líkam-
lega vel á sig kominn, þrátt fyrir
73 ár að baki. En þá hljótum við
að líta til þess að okkur hefír ekki
verið falið að tímasetja lát nokkurs
manns. Sem betur fer er slík
ákvörðun í styrkari höndum, heldur
en þeim sem við veifum. Okkur er
kennt að sú ákvörðun sé í hendi
guðdómsins og ef við getum ekki
fengið okkur til þess að trúa því,
þá hljótum við að hafa eitthvað
annað betra, þótt ég þekki það ekki,
til þess að fela okkar forsjá og sem
skapar okkur þau örlög, sem við
verðum að lúta.
í Keflavík kvæntist Bjami Ólöfu
Pálsdóttur frá Akurhúsum í
Grindavík. Hjúskapur þeirra var
traustur og farsæll. Óla er þeim
kostum búin að fágætt er. Það er
leitt til þess að vita að suma af
þeim góðu kvenkostum hafa of
margar nútímakonur aflagt. Óla er
það sönn og hugljúf í viðmóti að
allir fá traust á henni og kenna
vellíðan í návist hennar. Hún er
næm og viðkvæm fyrir harmi og
bágindum annarra, en þeim mun
sterkari f eigin raunum. Það var
heillandi fegurð í því fólgin, að líta
það með eigin augum, í sjálfu
mannlífínu, eins og það gerist,
hvemig hún fómaði sér í aðhlynn-
ingu við Bjama á banabeði hans.
Allir gátu fundið að það var ekki
tilbúin skyldurækni, heldur órofa
tryK&ð við góðan vin. Af því hefði
margur getað lært.
Ólöf og Bjami eignuðust tvo
sonu. Gest, sem er bifvélavirki í
Keflavfk, og Pál, sem er arkitekt í
Hafnarfírði.
Gestur er kvæntur Sigríði Birgis-
dóttur úr Grindavík og eiga þau tvö
böm. Bjama, sem numið hefír húsa-
smíði, og Ásdísi, sem er í námi við
Fjölbrautaskólann í Keflavík.
Páll Valur, sonur Bjama og Ólu,
nam húsagerðarlist í Englandi og
er starfandi arkitekt í Hafnarfirði.
Hann er kvæntur Sigríði Harðar-
dóttur úr Keflavík og eiga þau þijár
dætur á bemskuskeiði. Þær heita
Ólöf, Sigurrós og Þorgerður. Allt
er þetta mannkostafólk, eins og það
á kyn til, og sómi sinna forfeðra.
Þannig heldur lífíð áfram með
sínu skini og skúram eins og mönd-
ull klukkunnar, sem telur árin og
glymur þeim með sama hætti og
Líkaböng, sem nema skulu staðar
á göngunni, skipta um göngulag
og hefja líf með nýjum hætti.
Við kveðjum hér hugljúfan, mæt-
an mann, sem bar gæfu til þess að
færa gleðiauka mörgum sálum á
góðri stund. Mann, sem gerði sér
far um að ganga sinn veg án þess
að spyma við öðram, sem vora á
sömu leið.
Við þökkum honum farsæla sam-
leið, hlýhug og tryggð. Við biðjum
honum velfamaðar í stóram örlög-
um og signum gröf hans með þeim
kveðjuorðum, sem Ingibjörg amma
notaði við okkur: „Guð veri með
þér.“ Við getum ekki komist fram
hjá þeirri tilfinningu að: „Það er
heilög stund, þá góðir vinir kveðj-
ast.“
Skarphéðinn Össurarson
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjóm blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins i Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins era
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar era
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Fæddur 28.janúar 1917
Dáinn 23. september 1987
Utför Péturs Sigfússonar bónda
í Álftagerði verður gerð frá Víði-
mýrarkirkju í Skagafirði laugar-
daginn 3. október nk.
Þegar ég fékk fréttir af láti Pét-
urs í Álftagerði, rifjuðust upp þær
mörgu ánægjustundir sem ég átti
í Álftagerði, þau sumur sem ég var
þar í sveit sem bam.
Pétri kynntist ég fyrst þegar ég
var 5 ára gamall; páskana 1957.
Þá hafði fjölskylda mín farið til
dvalar á hótelinu í Varmahlíð. Hót-
elstjóri í Varmahlíð á þeim áram
var Páll Sigurðsson, góðvinur Pét-
urs. Hafði hann marga hesta á
fóðram og fengu hótelgestir sem
fast sóttu að fara í útreiðartúra um
nágrennið. Naut Páll við þetta að-
stoðar Péturs heitins, sem þá rak
tamningastöð í Varmahlíð. Þar sem
öll reiðhross Páls vora of viljug fyr-
ir 5 ára potta, lánaði Pétur undir
mig gamlan og spakan dráttarklár,
sem kallaður var Gamli-Gráni. Fór
ég á honum í mína fyrstu útreiðart-
úra. Þær stundir gleymast mér
aldrei. Fannst mér oft erfítt að
fylgja fullorðna fólkinu eftir, en þá
kom Pétur mér til hjálpar og reið
með mér í rólegheitum á eftir þeim
sem hraðar riðu. Var Pétur óþreyt-
andi við að sinna mér, ókunnugum
drengnum. Hefðu flestir fremur
kosið að ríða í fjöragri reið full-
orðna fólksins. Kynntist ég þar
fyrst öðljngnum og bamagælunni
Pétri í Álftagerði. Tveimur áram
síðar fór ég í sveit til þeirra hjóna
Péturs og Rúnu. Urðu sumrin hjá
þeim hjónum sjö alls, hvert öðra
skemmtilegra. Áttu þau mikinn
þátt í að móta lífsviðhorf mín á
þessum áram. Hefur það reynst
mér á allan hátt ómetanlegt vega-
nesti.
Heimilið í Álftagerði var einstak-
lega skemmtilegur dvalarstaður.
Óvenju gestkvæmt var þar, og ætíð
vora móttökur frábærar, enda var
gestrisni þeirra Péturs og Rúnu
rómuð. Þau kvöld sem setið var
yfír góðgerðum í eldhúsin og spjall-
að, eða lagið tekið við undirspil
harmónikku og gítars vora mörg.
Pétur í Álftagerði.bjó yfír mörg-
um mannkostum. Auk þess að vera
mikill fjölskyldumaður og félags-
lyndur með afbrigðum var hann
mikill hestamaður, svo að aðra hef
ég ekki séð lagnari. Man ég glöggt
eftir því á hestamannamótunum á
Vallarbökkum, er Pétur sýndi sína
eigin hesta, eða var fenginn til að
sýna fyrir aðra. Fylgdumst við
strákamir þá með honum, fullir af
stolti, enda heyrði maður oft á tali
manna að þeim þótti Pétur einstak-
lega laginn við að fá það besta út
úr öllum hestum.
Nú þegar komið er að því að
kveðja góðan vin, sem lengi verður
minnst, sendum við hjónin Rúnu
og fjölskyldunni allri okkar, innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Óli Haukur
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sendu okkur samúöarkveöjur
viö fráfall og jarðarför móður okkar, tengdamóöur, ömmu og
langömmu,
HALLDÓRU LIUU JÓNASDÓTTUR,
Hafnargötu 78,
Keflavfk.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks og lækna á Krabbameinsdeild
og 13d á Landspítalanum. Guö blessi ykkur öll.
Hreinn Óskarsson,
Gróa Hreinsdóttir,
Sigurður I. Hreinsson,
Óskar Jón Hreinsson,
og barnabarnabörn.
Guörún Ásta Björnsdóttir,
Guömundur Kr. Sigurðsson,
Sigrún Júlíusdóttir,
Jóhanna J. Helgadóttir
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför eiginmanns mins, fööur, fósturföður, bróður, tengdafööur,
afa og langafa okkar,
FRIÐÞJÓFS BALDURS GUÐMUNDSSONAR
útvegsbónda
frá Rifi.
Sórstakar þakkir færum viö öllu starfsfólki á sjúkrahúsi Stykkis-
hólms fyrir frábæra ummönnun.
Halldóra Kristleifsdóttir,
Ester Friöþjófsdóttir,
Sævar Friöþjófsson,
Svanheiður Friðþjófsdóttir,
Kristinn J. Friöþjófsson,
Sæmundur Kristjánsson,
Hafsteinn Björnsson,
Guöbjörg Guðmundsdóttir,
María Guðmundsdóttir,
Helga Hermannsdóttir,
Jóhann Lárusson,
Þorbjörg Alexandersdóttir,
Auður Grfmsdóttir,
Steinun Júlfusdóttir,
Katrfn Guðmundsdóttir,
Ásta Guömundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
1600, 5 gíra, verð 249.000
1500, 4 gíra, verð 235.000
Góö greiðslukjör.
Opið á laugardögum 10-16 - beinn sími í söludeild 31236
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVELAR
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur
1