Morgunblaðið - 03.10.1987, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987
4
KAPPAKSTUR / NIGEL MANSELL SKRIFAR
Höggin og hamagangurinn
hrista upp í líkamanum
„Það eru þijú mót eftir enn og ég á enn möguleika í heimsmeistaratitilinn ..
sinni um sigurinn á Jerez-kappakstursbrautinni á Spáni um sl. helgi.
ÞEGAR græna Ijósiö birtist í
upphafi spánska kappakst-
ursins var óg staðráðinn að
ráða lögum og lofum á Jerez-
brautinni. Ég ætlaði að vinna.
Ég var annar úr rásmarkinu á
eftir Nelson Piquet, hann var
á keppnisbfl með sjálfvirkri
jafnvægisstillingu fjöðruna-
rbúnaðarins, en óg á venju-
legum keppnisbíl, með
hefðbundna fjöðrun. Bfll hans
átti að virka betur, þegar iiði
á keppnina, um leið og bens-
ínið minnkaði og þyngd
bflanna um leið. Eg vissi hins-
vegar að það yrði enginn
leikur að fara fram úr Piquet.
Við náðum báðir góðu starti,
Piquet varð fyrstur. Ég lét
hann hins vegar fínna fyrir mér,
ók alveg í skottinu á honum, þann-
ig að ég hef fyllt út í hliðarspegl-
ana hjá honum. Ég hef mikla trú
á því að ef maður vill vinna, þá
verður maður að leggja strax til
atlögu við fyrsta sætið. Ef maður
ekur grimmt á réttum stöðum,
þá er hægt að vinna upp mikinn
tíma á aðra, sem aka bara jafnt
og þétt. Ég vissi líka að minn
bfll yrði betri í hörðum beygjum,
fyrri hluta keppninnar. Svo aka
sumir ökumenn þannig að allt er
í hers höndum, þeir virðast halda
að allir ökumenn séu með pláguna
og forðast að eiga við aðra keppn-
isbfla.
Ég fékk tækifæri til að komast
framúr, strax í upphafí annars
hrings, var í sjötta gír á 320 km
hraða. Ég var á meiri hraða en
Piquet, stefndi á miðja vinkil-
beygju, sem var framundan.
Piquet hjálpaði mér, fór alltof ut-
arlega í beygjuna og ég skaust
framúr. Ég hafði bremsað dálítið
seint, en slapp með skrekkinn.
Ég ákvað að keyra stíft, en af
mýkt, skipta snöggt um gíra og
passa mig á því að opna ekki
greiða leið fyrir Piquet, sem var
ýmist hægra eða vinstra megin í
speglunum hjá mér.
Ég vissi að bfll Piquet yrði betri
.“ segir Bretinn Nigel Mansell í grein
en minn á lokasprettinum, vildi
auka bilið á milli okkar. Hann ók
hinsvegar hratt, ég náði ekki
nema 0,1 sekúndu á hvem hring,
en brautin er 4,20 km löng og
við ökum 72 hringi, samtals 303
km. Ég ók 20 hringi af fullu
kappi, byijaði að ná þeim sem óku
hægast og hentist framúr þeim.
Piquet lenti stundum í vandræðum
fyrir aftan mig, var ekki eins
ákveðinn. Hann þarfnaðist heldur
ekki þessa sigurs eins mikið og
ég. Ég náði 10 sekúnda forskoti,
þessi sekúndubrot sem ég hafði
ekið hraðar en Piquet í hvetjum
hring fóru að hafa áhrif.
Ég lét skipta um dekkin fjögur
um miðbik keppninnar og það tók
11 sekúndur, en ég tapaði ekki
niður forustunni þrátt fyrir það.
Stuttu síðar var ég kominn með
33 sekúndna forskot og sigurinn
var í augsýn. Skyndilega fann ég
fyrir miklum sársauka í bakinu
og hægri fóturinn dofnaði. Ég
hafði klemmt taug enn einu sinni.
Ég er búinn að aka kappakst-
ursbfl lengi og þeir fara ekki alltof
vel með mann, höggin og hama-
gangurinn hristir upp í líkaman-
um! Þetta stöðvaði þó ekki
aksturinn hjá mér, það var engin
ástæða til þess. Ég kom fyrstur
í mark.
Þetta var góður sigur og ég var
ánægður með að hafa unnið
fimmtu keppni ársins. Það eru
þijú mót eftir enn og ég á enn
möguleika á titlinum, ekki mikla
en þó möguleika. Ef ég fæ jafn-
góðan bfl og á Jerez-brautinni,
er aldrei að vita hvað gerist.
HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNIN
UBK mætir danska
liðinu HÍK í dag
Kristján Halldórsson línumaðurinn snjalli hjá UBK verður í eldlínunni í
dag. Beiðablik tapaði illa fyrir HÍK í fyrri leik liðanna í Danmörku en Blikam-
ir ætla sér stærri hlut í dag.
í dag, laugardag, klukkan 17.00
hefst síðari leikur Breiðabliks
og HÍK í Evrópukeppni félags-
liða í Digranesi. Fyrri leik
liðanna lauk með stórsigri HÍK,
28:11. Það verður því sem
næst ómögulegt fyrir Breiða-
blik að vinna upp þann mun,
en liðið ætti þó að geta unnið
þá á heimavelli sinum.
Lið Breiðabliks stóð sig vel í 1.
deildinni á síðastliðnu ári. Liðið
-^riáði öðru sæti eftir að hafa komið
upp úr 2. deild árið áður. Þetta er
trúlega besti árangur sem nýliðar
í 1. deild hafa náð. Liðinu hefur
síðan bæst nokkur styrkur, sem er
Hans Guðmundsson, Andrés Magn-
ússon, Tryggvi Tryggvason og
Alexander Þórisson.
Sem hluta af undirbúningi fyrir
veturinn var farin æfínga- og
keppnisferð til Þýskalands. I lokal-
eik Reykjanesmótsins gegn ÍBV
gerðist það hins vegar að brotið var
illa á einum homamanni Blikanna,
Jóni Þóri Jónssyni. Það gerði það
'að verkum að hann gat vart leikið
með í fyrri leik HÍK og Breiðabliks
ytra. Einnig vantaði Breiðablik í
þeim leik hinn aðalhomamann liðs-
ins, Þórð Davíðsson, en hann
meiddist á æfíngu í Danmörku.
Vonir standa til að báðir verði orðn-
ir heilir heilsu og taki þátt í leiknum
A dag.
Lið HÍK er að flestra áliti sterkasta
félagslið Danmerkur um þessar
mundir. Per Skaamp gengur svo
langt að telja liðið sterkasta félags-
lið sem Danir hafa eignast í ein
10—15 ár. Liðið vann forkeppni
danska meistaramótsins með mikl-
um yfírburðum í fyrra, en endaði í
fjórða sæti í úrslitakeppninni vegna
meiðsla lykilleikmanna. Allir þessir
leikmenn eru nú heilir heilsu og að
auki hefur liðinu bæst nokkur
styrkur frá fyrra ári. Nú í haust
hefur liðið staðið sig vel. Meðal
annars vann það danska landsliðið
og það þrátt fyrir að tveir lyk.il-
manna væru landsliðsmegin í
leiknum. Einnig vann það sovéska
liðið SK. Minsk, sem er uppistaða
sovéska landsliðsins, á heimavelli.
Þótt erfítt sé að draga út ákveðna
einstaklinga úr svo jöfnu liði, verður
að minnast á þá Michael Fenger,
homamann og skyttu; Lars Lund-
bye, homa- og línumann; Lars
Gjöls-Andersen, liðsstjómanda.
Leikurinn í Digranesi verður eins
og áður segir í dag kl. 17.00. Leik-
urinn ætti að geta orðið skemmti-
legur á að horfa. Eitt besta félagslið
Danmerkur gegn efnilegu liði
Breiðabliks.
KNATTSPYRNA
EVRÓPUKEPPNIN
DREGIÐ var í 2. umferð Evrópukeppninnar í knattspyrnu í Zurich
í Svissi í gær. Fyrri leikimir fara fram 21. október og þeir síðari
4. nóvember.
Evrópukeppni meistaraliða
Xamax (Sviss) — Bayem Miinchen (V-Þýskalandi).
Real Madrid (Spáni) — Porto (Portúgal).
Bordeaux (Frakklandi) — Lilleström (Noregi).
Aarhus (Danmörku) — Benfica (Potúgal).
Glasgow Rangers (Skotlandi) — Gomik Zabrze (Póllandi).
Sparta Prag (Tékkóslóvakíu) — Anderlecht (Belgíu).
Rapid Vín (Austurríki) — PSV Eindhoven (Hollandi).
Steaua Búkarest (Rúmeníu) — Omonia Nicosia (Kýpur).
Evrópukeppni blkarhafa
Shkoder (Albaníu) — Rovaniemen (Finnlandi).
OFI Crete (Grikklandi) — Atalanta (Ítalíu).
Young Boys (Sviss) — Den Haag (Hollandi).
Real San Sebastian (Spáni) — Dynamo Minsk (Sovétríkjunum).
Kalmar FF (Svíþjóð) — Sporting Llssabon (Portúgal).
HSV (Vestur-Þýskalandi) — Ajax (Hollandi).
St. Mirren (Skotlandi) — Mechelen (Belgíu).
Marseille (Frakklandi) — Hajduk Split (Júgóslavíu).
Evrópukeppni félagsliða
Dundee United (Skotlandi) — Vitkovice (Tékkóslóvakíu).
Werder Bremen (V-Þýskaíandi) — Spartak Moskva (Sovétríkjun-
um).
Sportul Búkarest (Rúmeníu) — Bröndby (Danmörku).
Inter Milan (Ítalíu) — Turun (Finnlandi).
Beveren (Belgíu) — Guimaraes (Portúgal).
AC Milan (Ítalíu) — Espanol (Spáni).
Wismut Aue (Austur-Þýskalandi) — Vlora (Albaníu).
Aberdeen (Skotalandi) — Feyenoord (Hollandi).
Chaves (Portúgal) — Honved (Ungveijalandi).
Verona (Ítalíu) — Utrecht (Hollandi).
Dortmund (V-Þýskalandi) — Velez Mostar (Júgóslavíu).
Barcelona (Spáni) — Dynamo Moskva (Sovétríkjunum).
Toulouse (Frakklandi) — Leverkusen (V-Þýskalandi).
Panathinaikos (Grikklandi) — Juventus (Ítalíu).
Rauða Stjarnan (Júgóslavíu) — Brugge (Belgíu).
Victoria (Rúmeníu) — Dynamo Tbilisi (Sovétríkjunum).
4-