Morgunblaðið - 15.10.1987, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987
19
á Norðurlandi þegar málið var rætt
við hann.
Fækkunarsamningar
seint á ferðinni
í sláturtíðinni hóf Framleiðni-
sjóður að bjóða mönnum svokallaða
fækkunarsamninga, eins og gert
var í fyrrahaust, til að hjálpa þeim
að aðlagast fullvirðisréttinum. Geta
menn þannig losað sig við kjötið
af fullorðnu fé sem þeir eru með
umfram fullvirðisrétt, gegn því að
ijölga ekki fé næstu árin. Ýmsir
hafa haft áhuga á þessu og bíða
með ákvörðun um ráðstöfun um-
framffamleiðslunnar. Hefur ýmsum
bændum þótt þessi möguleiki koma
allt of seint fram og erfítt hafí ver-
ið að fá nákvæmar upplýsingar
hvað væri í boði og með hvaða skil-
yrðum. Það dregur til dæmis úr
áhuga margra að dilkamir fylgja
ekki fullorðna fénu við þessa samn-
inga og þeir sitja því uppi með
dilkakjötið eftir sem áður. Guð-
mundur Sigþórsson skrifstofustjóri
í landbúnaðarráðuneytinu svarar
þessu þannig til að þessum bændum
hafí staðið til boða að gera fækkun-
arsamning í fyrrahaust til að koma
í veg fyrir þessa framleiðslu og
vandi þeirra nú sé til kominn vegna
þess að þeir þáðu ekki fækkunar-
samning þá. En ljóst er að margir
bændur sem eru með umframlömb
á túnunum hjá sér hafa áhuga á
fækkunarsamningum en slátra
lömbunum heima að öðmm kosti.
„Svartamarkaðsverð“
Stór hluti kindakjötsins sem fell-
ur til við heimaslátrunina er vafalít-
ið notaður af heimilisfólki og gefínn
ættingjum. En eitthvað af kjötinu
er selt öðrum. Af augljósum ástæð-
um er erfítt að grafast fyrir um
„svartamarkaðsverðið" á kjötinu en
það hefur f einhveijum tilvikum
verið selt á 150—200 krónur kílóið.
Bændur fá 240 krónur fyrir kílóið
af 1. flokks dilkakjöti við innlegg í
sláturhús, þ.e. ef þeir hafa fullvirð-
isrétt fyrir kjötið, en þeir fá ekkert
fyrir innlagt kjöt umfram fullvirðis-
rétt. Hámarkssmásöluverð á 1.
flokks dilkakjöti í heilum skrokkum
er nú 303,40 kr. kílóið.
Sigurður Sigurðarson settur yfír-
dýralæknir segir að aukin heima-
slátrun sé áhyggjuefni. Eftirlit með
því fé sem slátrað væri heima væri
lakara en í sláturhúsum, en gott
eftirlit með fullorðna fénu væri
sérstaklega nauðsynlegt vegna
smitsjúkdóma sem kjmnu að vera
í því. Þá væru menn ekki í sömu
æfíngu við slátrun og áður fyrr
þegar meira var slátrað heima og
því meiri hætta á að ekki væri geng-
ið nógu vel frá úrgangi, og hann
þannig orðinn dreifíngarleið fyrir
sjúkdóma. Vildi Sigurður hvetja
menn til að vanda sig sérstaklega
við frágang úrgangs og að taka
sýni af fullorðna fénu.
Heimilt að slátra
til heimanota
Sveitafólki er heimilt að slátra
fé til heimanota. Kjötið má þó
hvorki gefa né selja annað, að sögn
Sigurðar. Þá er heimaslátrun í þétt-
býli bönnuð. Sigurður segir að þó
heimaslátrun hafí viðgengist lengi
megi búast við að hún verði meiri
í haust og þá jafnframt meiri hætta
á að reynt sé að selja kjötið. Hann
sagði að menn væru almennt ekki
vanir því að slátra heima og slátrað
væri við misgóð skilyrði. Því vildi
hann vara fólk við því að taka við
kjöti af heimaslátruðu þó það væri
í boði.
Guðmundur Sigþórsson segir að
samkvæmt reglugerð um fullvirðis-
rétt í kindakjötsframleiðslu sé
bændum óheimilt að taka til heimil-
is meira kjöt en sem svarar til 60
kg á hvem heimilismann. Ef menn
slátruðu heima í stórum stíl væru
þeir að taka markað frá heildinni
og ef það sannaðist væri óhjá-
kvæmilegt að skerða fullvirðisrétt
þeirra.
Kirkjur og líknar-
félög njóta góðs af
Bændur sem slátra heima eiga
sumir í vandræðum með gæmmar
af kindunum. Þeir geta lagt þær inn
í sláturhús og fengið 250—300
krónur fyrir stykkið. Það getur hins
vegar haft slæmar afleiðingar fyrir
þá. Framleiðsluráð og skattstjóri
sjá strax að gæmmar passa ekki
við fjölda innlagðra kjötskrokka.
Getur því komið bakreikningur frá
skattstjóra og yfirvöld landbúnað-
armála geta reiknað kjöt inn í
gæmmar og dregið frá fullvirðis-
rétti viðkomandi bónda. Bændur
sem ekki vilja grafa gæmmar hafa
sumir leyst málið á þann hátt að
setja umframgærumar í poka,
merkja þá sóknarkirlqunni og skilja
eftir við sláturhúsdymar. Gæmmar
em þannig lagðar inn á nafn kirkj-
unnar. í einum hreppi á Vesturlandi
var heimaslátmn svo mikil að gæm-
innleggið dugði fyrir upphitun
kirkjunnar allt árið en upphitun er
víða erfíðasti kostnaðarliður sókn-
amefnda. Ýmis líknarfélög hafa
einnig notið góðs af gærainnleggi
á haustin. Einstaka menn hafa ver-
ið svo bíræfnir að leggja gæmmar
inn á nafn skattstjórans síns. Hvort
það er til vitnis um vilja þeirra til
að standa skil á sköttum sínum eða
eitthvað annað skal ekki fullyrt um.
Uorgunblaðið/Sig.Sigm.
Láttu verðin koma þér þægilega á óvart
Settu markið hátt
fáðu þér
- sjónvarpstæki
- myndbandstæki
- útvarpstæki
-morgunhana
Háþróuð hljómtæki
Mikið úrval - í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI
&SAMBANDSINS Og KAUPFÉLÖGIN
ÁRMÚLA3 SÍMAR 687910-81266