Morgunblaðið - 15.10.1987, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987
Stjörau-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Að þykja vœnt um
í dag ætla ég að fjalla um
væntumþykju. Ástæðan fyrir
þvf að ég tek þetta efni til
athugunar er sú að mig
grunar að þar sé umhugsunar
þörf. Ég held að við tjáum
okkur ekki nógsamlega, oft
vegna hugsunarleysis eða af
því að við gerum okkur ekki
grein fyrir mikilvægi þess að
tjá tilfinningar okkar í garð
annars fólks.
Gamli vinur
Um daginn var ég á gangi
upp Skólavörðustíg og mætti
þar gömlum vini mínum sem
ég hafði ekki séð lengi. Hann
sá mig fyrst og kallaði til
mln: „Nei, blessaður Gulli,
manstu eftir mér, ég heiti...
o.s.frv." Það sérstaka við
þetta mál var að ég mundi
vel eftir honum, enda hefur
mér alltaf þótt vænt um hann.
Ekkertsagt
Eftir á var mér hugsað til
þess að ég gerði ekkert til að
leiðrétta að ég ætti sérstak-
lega að muna eftir honum.
Það eina sem ég sagði var að
auðvitað myndi ég eftir hon-
um. Það var hins vegar ekki
sérlega persónuleg eða hlý
kveðja. Af hveiju sagði ég
ekkert hlýlegra?
Köld samskipti
Þetta litla mál vakti mig til
umhugsunar. Ég fór að líta í
kringum mig. Það sem ég sá,
þó til séu undantekningar í
sumum Qölskyldum, var að
fólk virðist sjaldan tjá tilfinn-
ingar sfnar og væntumþykju
í garð hvers annars, eða segja
beint að því þyki vænt um
ákveðinn mann. Það virðist
sem við séum heldur óper-
sónuleg og lokuð gagnvart
hvert öðru. En skyldi það vera
nauðsynlegt? Er þessi lokun
nokkuð annað en slæmur
ávani sem við getum breytt
ef við viljum?
JákvœÖ hvatning
Sálfræðingar segja að hrós
og jákvæð hvatning hafi góð
áhrif á allt fólk og sé í raun
nauðsynleg. Böm þurfa á
hrósi og væntumþykju að
halda til að geta byggt upp
heilsteyptan persónuleika. 011
þurfum við að finna að ein-
hveijum þyki vænt um okkur.
Þá vitum við um leið að við
eigum bakhjarl ef á bjátar.
Fólk sem vinnur við hjálpar-
störf segir t.a.m. að meðferð
geðlækna, sálfræðinga og fé-
lagsfræðinga dugi skammt
þegar geðrænir erfiðleikar eru
annars vegar ef hinn sjúki fái
ekki jákvæðan stuðning frá
ættingjum og vinum. Þetta
er í raun það sem allir vita.
Við vitum að líf okkar er lítils
virði ef enginn elskar okkur.
Skiptir þá einu hvort við erum
sjúk eða heilbrigð.
AÖ segja frá
Það sem ég er að hugsa f
þessu sambandi er að ef já-
kvæð hvatning er okkur
nauðsynleg af hveiju gerum
við þá ekki meðvitað átak f
því að tjá jákvæðar tilfinning-
ar okkar? Af hveiju segjum
við ekki því fólki sem okkur
þykir vænt um að okkur þyki
vænt um það. Á þann hátt
getum við glatt aðra og veitt
stuðning. Oft gengur fólk í
gegnum erfið tímabil óvissu
og efa, án þess að við vitum
af því. Á slfkum stundum
gætu fáein vinarorð verið dýr-
mæt. Hveiju höfum við svo
sem að tapa með þvf að segja
nokkur vingjamleg orð? Verð-
um við okkur til skammar?
Nei, við sýnum að við erum
fólk með tilfínningar, að okk-
ur þyldr vænt um vini okkar.
Slíkt gleður. Þegar við vitum
að annað fólk elskar okkur,
verðum við sterkari. fy'áum
því væntumþykju okkar.
GARPUR
GRETTIR
:::::::: TOMMI OG JENNI
4V /VOU KNOW UiHAT'5) V5ICKENING?/ T0 BE PRINKIN6 FKOM A 6LA55 IN A RE5TAUKANT, ANPTHEN PISCOVERTMAT THERE'5 LIP5TICK 0N IT! _ / VOU'RE KI6MT.. / VjHAT'S 5ICKENINGI/
Veiztu hvað er viður-
styggilegt?
Að drekka úr glasi á veit-
ingastað og sjá svo varalit
á því.
Satt er það, þetta er viður-
styggilegt.
SMÁFÓLK
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Einn af meðlimum bandarfsku
sigursveitarinnar um Rosen-
blumbikarinn sfðastliðið haust
er Bob Lipsitz. Hann er hér að
verki, sem sagnhafi f flórum
hjörtum:
Austur gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ K
♦ 874
♦ G1043
+ ÁD852
Norður
♦ Á74
VKG93
♦ Á872
♦ K6
Austur
♦ DG9652
♦ 6
♦ D6
♦ G1093
Suður
♦ 1083
♦ ÁD1052
♦ K95
♦ 74
Vestur Norður Austur Suður
— — 2 spaðar Pass
Pass Dobl Pa8s 4 fyðrtu
Pass Pass Pass
Opnun austurs var veik og
lofaði sexlit f spaða.
Vestur kom út með spaða-
kóng og fékk að eiga þann slag.
Hann tók þá laufás og spilaði
meira laufí á kóng blinds.
Lipsitz tók þrisvar tromp og
velti vöngum. Tvær leiðir komu
til greina, í fyrsta lagi var hægt
að spila upp á tfgulinn 3—3,
þ.e.a.s. gefa þar slag og vonast
til að hægt yrði að losna við
spaða ofan í ftftígul. í öðru lagi
kom til greina að taka tvisvar
tfgul og spila spaðaás og meiri
spaða. Eigi austur ekki tígul í
þeirri stöðu verður hann að spila
út í tvöfalda eyðu og gefa tromp-
un og afkast.
Talningin í hálitunum var ljós,
austur var sannaður með sex
spaða og eitt hjarta, en hvort
átti hann 3—3 eða 2—4 f láglit-
unum? Lipsitz hafði aðeins við
eitt að styðjast, sem var opnun
austurs. Hún var greinilega f
veikara lagi og því voru líkur á
að skiptingin bætti upp háspila-
fæðina. Með þessum rökum valdi
Lipsitz sfðamefndu leiðina og
reyndist hafa rétt fyrir sér.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Lloyds-banka skákmótinu f
London um daginn kom þessi
staða upp f skák ensku stórmeist-
aranna Murray Chandler, sem
hafði hvftt og átti leik, og Jim
Plaskctt.
28. Hxe7! og svartur gafst upp,
þvf hann kemst ekki hjá því að
tapa manni. 28. — Hxe7 er auðvit-
að svarað með 29. Rxd5 og ef
svartur leikur 29. — Bxd5 verður
hann mát í borðinu. Chandler sigr-
aði á mótinu ásamt Bandarfkja-
manninum Wilder. Þeir hlutu
báðir 8 v. af 10 mögulegum. 7V2
v. hlutu Bandaríkjamennimir
Benjamin og Federowicz. Rogers
frá Ástralfu og Svfinn Emst.