Morgunblaðið - 15.10.1987, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987
47
Sesselja Eysteins-
dóttir - Minning
Fædd 20. mars 1914
Dáin 5. október 1987
Kveðja frá Blindravina-
félagi íslands
Sesselja Eysteinsdóttir fæddist í
Litla-Langadal á Skógarströnd 20.
mars 1914. Foreldrar hennar, hjón-
in Jóhanna Oddsdóttir og Eysteinn
Finnsson, bjuggu þar við vanalegt
búskaparlag þess tíma og ólu upp
stóran bamahóp. Þau eignuðust 13
böm. Sesselja var 8. bamið. Það
má vel hugsa sér að stundum hafí
bláþráður mnnið þar um greipar til
að „endar næðu saman", eins og
nútímafólk kemst að orði. En það
tilheyrir þeirri sögu, sem landið
geymir og aldrei verður skráð.
Seinna, eða 1940, flutti fjölskyld-
an að Breiðabólstað í sömu sveit,
en þá var Sesselja farin að heiman
til að vinna annarstaðar, svo hún
átti sín æskuár í Litla-Langadal.
Það em óblíð örlög fyrir unga
stúlku, sem bíður þess að láta æsku-
draumana rætast, að missa ljós
augna sinna, en slíkt varð hlut-
skipti Sesselju. Hún missti sjón
23—24 ára gömul, þó sjónleifar
hafí varað eitthvað lengur og eftir
langa og stranga baráttu og sjúkra-
húsvist varð hún alblind. Á þeim
tíma leið hún oft miklar höfuðkvalir.
Þegar öll von var úti að endur-
heimta sjónina kom hún til Blindra-
vinafélags íslands og hóf að læra
þau störf, sem þar vom unnin. Hún
lagði stund á burstagerð, körfugerð
og vefnað og faldaði gólfklúta í
saumavél. Hún var vandvirk og
vann öll sin störf af kostgæfni.
Á fyrstu ámnum lærði hún einn-
ig að lesa blindraletur og skrifa á
blindraritvél og einnig dálítið á
vanalega ritvél til að geta skrifað
vinum sínum smábréf.
Jónína Þorleifsdóttir frá Ólafs-
fírði bjó með Sesselju í Ingólfsstræti
16. Hún hafði fyrri árin nokkra sjón
og var Sesselju til hjálpar á margan
hátt, auk þess sem hún var yndis-
legur félagi bæði í starfi og sambúð.
Að því kom að Jónína treysti sér
ekki lengur til að búa heima og
flutti á Hrafnistu árið 1980 og dvel-
ur þar aldin að ámm. Síðan bjó
Sesselja ein í litlu íbúðinni þeirra
og var ótrúlega dugleg að hjálpa
sér sjálf með daglegar þarfír og
vann á vinnustofunni niðri.
Sesselja var vinföst og trygglynd.
Hún var áhugasamur félagi
Blindravinafélags íslands og sat í
stjóm þess um árabil, þar til yfír
lauk hjá henni. Hún var ein af hetj-
um hversdagslífsins, bar sína byrði
með hljóðlátri reisn og kannski
fannst okkur hinum sjáandi félög-
um stundum ekki taka því að kvarta
yfír lágum launum og löngum
vinnutíma, þó aðrir gerðu það, því
við hlutum að fínna hvað við vomm
rík, við höfðum þau forréttindi fram
yfír blinda félaga okkar að geta
notað blessað dagsljósið með eigin
augum.
Já, við lærðum sannarlega margt
af þeim.
Sesselju er sárt saknað af sam-
starfsfólki í Ingólfsstræti 16 og
mörgum góðum vinum. Burtför
hennar varð með skjótum hætti.
Við þökkum henni samfylgdina.
Hennar stund var komin og því
samfögnum við henni er hún byijar
nýtt lífsskeið í himnesku ljósi. Það
er aftur bjart hjá henni Sesselju.
Systkinum hennar, venslafólki
og frændum vottum við innilega
samúð.
Kveðjuorð:
Bragi Jónsson
framkvæmdasljóri
Fæddur 12. september 1936
Dáinn 5. október 1987
Bragi Jónsson, framkvæmda-
stjóri Orku hf., er horfínn af
sjónarsviðinu. Við ræðum ekki oftar
um sameiginlega áhugamálið okkar
— það mál að íslenska þjóðin eign-
ist tónlistarhús.
Bragi var mikill tónlistaraðdá-
andi og fastagestur á tónleikum
mörg undanfarin ár. Ég hafði oft
tekið eftir þessum hógværa og kurt-
eisa manni á tónleikum þegar leiðir
okkar lágu svo saman fyrir fjórum
árum þegar áhugamenn um tónlist
bundust samtökum um að vinna að
framgangi þess að hér risi tónlistar-
hús. Bragi skipaðist ósjálfrátt þar
í fremstu víglínu, boðinn og búinn
til hvers þess sem mætti verða
málinu til framdráttar.
Hann valdist í framkvæmda-
stjóm og varð formaður happdrætt-
isnefndar og hrinti landshappdrætti
af stokkunum. Það happdrætti varð
til þess að mögulegt var að halda
Norræna samkeppni um hönnun
hússins og innsiglaði Bragi þar með
að hér var ekki um stundarfyrir-
brigði að ræða. Við yrðum að halda
áfram og linna ekki fyrr en tónlist-
arflutningi yrði búin sú umgjörð
sem íslandi hæfði. Boðið, sem Bragi
og Kolbrún héldu okkur eftir að
happdrættinu var lokið og Bragi
afhenti þá Samtökunum milljónir
króna, líður okkur seint úr minni.
Þá var gott að gleðjast í góðra vina
hóp.
Bragi hafði víða ferðast og kom-
ið í tónlistarhús í mörgum löndum.
Enda lagði hann mörg góð ráð til
þegar kom að forsögn hússins. Fátt
var fjær honum en að flíka tilfinn-
ingum sínum eða að láta ljós sitt
skfna. Það sem hann tók að sér var
gert og þurfti ekki að hafa neinar
áhyggjur af þeim hlutum, sem
Bragi sá um. Svo var einnig í þeim
viðskiptum sem fyrirtæki mitt átti
við Orku hf. Þar stóð allt eins og
stafur á bók.
Enda þótt oft væri rætt saman
síðastliðinn vetur og í vor og sumar
fór ekki hjá því að við tækjum eft-
ir að eitthvað amaði að f lífí Braga.
Ekkert okkar grunaði þó að hann
myndi ekki komast yfír þá erfíðleika
og leggja áfram hönd á plóginn.
Vegir guðs eru órannsakanlegir
og megi Bragi fara á hans vegum.
Frá okku1- fylgja honum góðar
hugsanir og minningin um elskuleg-
an dreng.
Ég votta aðstandendum virðingu
mína og samúð.
F.h. Samtaka um byggingu
tónlistarhúss.
Ármann Ö. Armannsson.
t
Faðir minn,
BJÖRN HARALDSSON
bankafuUtrdl,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 16. október kl.
13.30. Fyrir hönd aðstandenda,
Axel Bronko Björnsson.
t
Hjartans þakkir til ykkar allra sem auðsýnduð okkur samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, fööur, tengda-
föður og afa,
GUÐMUNDAR KOLBEINS EIRÍKSSONAR,
Bergstaðastræti 60a.
Þórný Magnúsdóttir,
Þórdís Guðmundsdóttir, Helgi Hákon Jónsson,
Runólfur Þ. E. Guðmundsson, Camilla Richardsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúö við fráfall,
BRAGA JÓNSSONAR.
Fyrir hönd vandamanna,
Jón Pálsson, Jónína Magnúsdóttir.
byrjendanámskeið
FJölbreytt, gagnlegt og skemmtilegt byrj-
endanámskeið í notkun einkatölva.
Leiðbeinandi:
Dagskrá:
• Grundvallaratriði við notkun PC-
tölva.
• Stýrikerfið MS-DOS.
• Ritvinnsiukerfið WordPerfect.
• Töflureiknirinn Multiplan.
• Umræöur og fyrirspurnir.
Logi Ragnarsson,
tölvufræðingur.
T!mi: 20., 22., 27. og 29. okt. kl. 20-23
Innritun í símum 687590 og 686790
VR og BSRB styðja sina félaga til þátttöku i námskeiðinu.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.
HAUSTTILBOÐ
RAFHA eldavél og vifta.
Pakkaverð Kr. 36.875.—
* miðað við stgr.
NYJA ELDAYELIN
FRÁ
vörumerki hvers heimilis í 50 ár.
LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI 50022