Morgunblaðið - 04.11.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
Gömul hesthús í Votadal brennd.
Morgunblaðið/Theodór K. Þórðarson
Hús brennd í Votadal
BÆJARSTARFSMENN í Borg-
arnesi brenndu nokkur gömul
og aflögð hesthús í svonefndum
Votadal um daginn.
Að sögn Bjama Johansen
byggingafulltrúa er fyrirhugað að
þama rísi um 8 einbýlishús og 3
þriggja til fimm íbúða fjölbýlis-
hús. Hefur gatan hlotið nafnið
Hamravík. Sagði Bjami að í vetur
yrði unnið að hönnun og frekara
skipulagi Votadalsins.
Saltsíldarsalan til Sovétríkjanna:
Sairniingamir voru undir-
ritadir um hádegisbilið
Hæpið að skilaboð utanríkisráðherra hafi getað borizt
sovézku samninganefndinni fyrir undirritun
SAMNINGAR um saltsíldar-
kaup Sovétmanna héðan voru
ekki undírritaðir siðdegis
Reykjavík:
Ný jólaljós
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að keypt verði ný ljósasamstæða
til skreytingar í miðbænum um
jólin, en Ijósin sem hingað til
hafa verið notuð eru úr sér geng-
in.
Borgarráð samþykkti að
Reykjavíkurborg legði fram helm-
ing kostnaðarins, 1.250.000 krónur,
á móti Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
í dag
ll\ ADKR ÍBMDIMJ?
síðastliðinn föstudag eins og
fram hefur komið í ýmsum fjöl-
miðlum. Þeir voru undirritaðir
fyrir klukkan 13 að íslenzkum
tíma, en þá höfðu viðræður
staðið yfir í islenzka sendiráð-
inu frá klukkan 9 um morgun-
inn. Um klukkan 14 var skeyti
komið til íslands, þar sem skýrt
var frá samningum. Morgun-
blaðið hafði samband við
samningamenn í Moskvu klukk-
an rúmlega 14 og voru þeir þá
á leið úr sendiráðinu út á flug-
völl og staðfestu þessar tíma-
setningar. Aldrei slitnaði upp
úr viðræðunum.
Klukkan 12 voru samningar
komnir svo langt að aðeins um
1% bar á milli. Um það leyti
hringdi Steingrímur Hermanns-
son, utanríkisráðherra í formann
Stálu og
breyttu
skellinöðru
LÖGREGLAN í Reykjavík kom á
íslenzku sendinefndarinnar, eins
og fram hefur komið, og sagði
honum að hann hefði rétt í því
rætt við sendiherra Sovétríkjanna
hér á landi og gert honum grein
fyrir því, sem hann hefði talið al-
gjörlega ljóst, að yrði ekki af
þessum viðskiptum, hlyti það að
hafa mjög mikil áhrif á heildarvið-
skipti landanna, til dæmis olíukaup
og fleira. Rúmlega hálfri stundu
síðar voru samningarnir undirrit-
aðir. Skilaboð utanríkisráðherra
með milligöngu sovézka sendiherr-
ans hér á landi gátu því tæpast
borizt sovézku sendinefndinni áður
en samningar voru undirritaðir.
Samningaviðræður hófust á
þriðrjudag. Fundum á miðvikudag
var frestað að beiðni sovézku
samninganefndarinnar, en á
fímmtudag var viðræðum haldið
áfram. Um miðjan dag á fímmtu-
dag var samhljóða skeyti sent
sjávarútvegsráðherra og utanrík-
isráðherra, þar sem þeim var gerð
grein fyrir gangi mála. Aldrei
slitnaði upp úr samningaviðræð-
um, en á fímmtudag var staðan
talin mjög erfíð. Á föstudagsmorg-
un komst skriður á málin og
samningar voru því aldrei komnir
í strand.
Kostnaðarhækkanir
valda erfiðleikum
- segir Friðrik Pálsson forstjóri SH
FRIÐRIK Pálsson forstjóri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna segir að fiskvinnslan
muni lenda í verulegum erfið-
leikum á næstu mánuðum, ef
kostnaðarhækkanir innanlands
stöðvast ekki. Hann segir að
fastgengisstefna ríkisstjórnar-
innar gangi ekki upp nema
fylgt sé um leið „fastkostnaðar-
stefnu".
Friðrik segir þetta í viðtali við
Frost, fréttablað SH. Hann segir
þar að fískvinnslan standi frammi
fyrir vaxandi rekstrarerfíðleikum
í kjölfar lækkunar á gengi dollars
á undanfömum misserum. Þá
hækki kostnaður um 2% á mánuði
og sé það erfitt að axla þar sem
markaðsverð hafi staðið í stað
undanfama mánuði.
Verðhækkun á loðnuafurðum:
Kemur okkur fyrst til
góða eftir áramótin
30.000 lestir af mjöli seldar á mark-
aðsverði liðins sumars
UM 30.000 tonn af loðnumjöli og
10.000 af lýsi voru seld fyrirfram
af islenzkum útflytjendum og
framleiðendum fyrir þessa
vertíð. Fyrirfram sala hefur
tiðkazt árum saman og ýmist
valdið því, að verð hefur hækkað
eða lækkað, þegar mjölið hefur
verið afhent. Að þessu sinni
bjuggust framleiðendur við því
að vertíðin færi af stað á svipuð-
um tima og með svipuðum hætti
og í fyrra eða í júlímánuði og
vildu því fyrirbyggja birgðasöfn-
un. Vegna þessa eru þessar
afurðir nú afhentar á verði, sem
er undir markaðsverði og hækk-
un afurðaverðs kemur íslending-
um tæpast tíl góða fyrr en eftir
áramót.
Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenzkra fískmjölsframleið-
enda, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að auðvitað væri erfítt að
sjá þróun mála fyrir fram. Af því,
sem selt hefði verið fyrirfram, hefðu
um 20.000 tonn af mjöli átt að fara
utan í september og október. Mjöl-
skorturinn hefði valdið mönnum
óþægindum, en menn hefðu komizt
hjá klandri, að minnsta kosti enn.
Þá gat Jón þess, að Félag físk-
mjölsframleiðenda væri fylgjandi
því að loðnukvótinn félli áfram í
hlut skipanna, en þó með þeim
hætti að einhver hluti leyfílegs afla
yrði ekki inni í kvótanum, heldur
yrði skipunum ftjálst að sækja í
hann þar til hann væri upp urinn.
Það gæti orðið hvati til að hefja
veiðar fyrr en ella og einhver skip-
anna myndu þá eiga möguleika á
aflaaukningu. Þetta þýddi ennfrem-
ur að betra gæti orðið að standa
við gerða sölusamninga svo mark-
aðir töpuðust ekki vegna óáreiðan-
leika í viðskiptum. Jón sagði að
sjávarútvegsráðherra hefði verið
kynnt þessi hugmynd félagsins.
Bremerhaven:
50 krónur
fyrirkarfa
ÖGRI RE seldi á mánudag og
þriðjudag 259 lestir, mest karfa
í Bremerhaven. Meðalverð var
fremur lágt, en þó hærra en í
síðustu viku, er það fór niður
fyrir 40 krónur í nokkrum tilfell-
um.
Ögri seldi alls fyrir 13 milljónir
króna, meðalverð var 50,29 krónur.
Önnur íslenzk fiskiskip selja ekki
afla í Þýzkalandi í þessari viku, en
héðan verða um 15 gámar á mark-
aðnum, tæpar 200 lestir. Hins vegar
er mikið framboð af físki úr heima-
bátum, en þeir eru að mestu ieyti
með mjög smáan ufsa og því næst
hærra verð fyrir karfann en í
síðustu viku.
Nýtt hlutafélag
stofnað um sauma-
stofu Hagkaups
NÝTT hlutafélag hefur verið komið í frétt Morgunblaðsins
stofnað um rekstur saumastofu hafði Hagkaup ákveðið að leggja
Hagkaups. Eins og fram hefur saumastofuna niður frá og með
--------------- síðustu mánaðamótum.
Mikið slasaður eftir
slys á skellinöðru
mánudagskvöld upp um fjóra
unglingspilta, sem höfðu stolið
skellinöðru og unnu að þvi að
breyta henni, svo hún þekktist
ekki.
Skellinöðrunni var stolið fyrir um
mánuði frá eigandanum, sem býr
við Langholtsveg. Lögreglunni
barst ábending um að fjórir piltar
væru eitthvað að pukrast með
skellinöðru í kofaræskni í austur-
bænum og ákvað að kanna málið á
mánudagskvöld. Þá kom í ljós, að
piltamir unnu í kofanum að því að
breyta stolna hjólinu, til dæmis með
því áð mála það að nýju. Málið er
nú að fullu upplýst.
Einn piltanna er Qórtán ára, en
félagar hans þrír eru sextán ára.
FJÓRTÁN ára piltur liggur nú
mikið slasaður á sjúkrahúsi, eftir
slys sem hann varð fyrir i Hafn-
arfirði á föstudagskvöld. Piltur-
inn, sem ók skellinöðru, hafði
ekki réttindi til þess og hjól hans
var óskráð.
Pilturinn ók skellinöðrunni suður
Hringbraut í Hafnarfírði um kl.
21.30 á föstudagskvöld. Við gatna-
mót Hringbrautar og Suðurgötu var
bifreið sveigt í veg fyrir piltinn, sem
skall á henni. Pilturinn er mikið
brotinn, á sex eða sjö stöðum. Hjól-
ið hans er ónýtt og bifreiðin mikið
skemmd'.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar
í Hafnarfírði hafði pilturinn ekki
réttindi til að aka skellinöðru og
hjólið var ekki skráð. Því er hann
ótryggður gegn slíku slysi.
Að sögn Stefáns Jörundssonar,
sem verið hefur forstöðumaður
saumastofunnar undanfarin fjögur
ár og er einn af hinum nýju hluthöf-
um, er ætlunin að gefa starfsfólki
saumastofunnar kost á að gerast
hluthafar í nýja fyrirtækinu. Hann
sagði að í ráði væri að fara út í
nýja vöruþróun og vörutegundir.
Fimmtán manns eru nú starfandi
hjá fyrirtækinu og sagði Stefán að
fólki yrði bætt við eftir því sem
verkefnum fjölgaði. „Við höfum
næg verkefni eins og er og lítum
björtum augum á framtíðina þrátt
fyrir allar hrakspár um íslenska
fataiðnaðinn. Það erenginn barlóm-
ur í okkur“, sagði Stefán.