Morgunblaðið - 04.11.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 04.11.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987 31 Samtök um jafnrétti og félagshyggju: Kjördæmisfund- ur á landsvísu Morgunblaðið/Þorkell Frá vinstri Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Þróunarsviðs Byggðastofnunar, Guðmundur Malm- quist forstjóri Byggðastofnunar, Stefán Guðmundsson formaður stjómar Byggðastofnunar, Sigurgeir Sigurðsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Unnar Stefánsson starfsmaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ráðstefna um byggða- mál haldin á Selfossi B Y GGÐ ASTOFNUN og Sam- band íslenskra sveitarfélaga gangast fyrir ráðstefnu um byggðamál dagana 13. og 14. nóvember næstkomandi undir yfirskriftinni „Hefur byggða- stefnan brugðist?". Fer ráðstefn- an fram í félagsheimilinu Ársölum á Selfossi. Meðal framsögumanna er Þor- steinn Pálsson forsætisráðherra sem mun gera grein fyrir byggðastefnu ríkisstjómarinnar. Leif Grahm pró- fessor við Verslunarháskólann í Kaupmannahöfn fjallar um byggðar- þróun og byggðastefnu á Norður- löndum, Einar K. Guðfinnsson útgerðarstjóri í Bolungarvík ræðir um hlutverk og ábyrgð sjávarútvegs á byggðarþróun, Davíð Oddsson borgarstjóri I Reykjavík flytur erindi um hlutverk höfuðborgarinnar I Baldur Óskarsson Döggskál í höndum Ný ljóðabók eft- ir Baldur * Oskarsson ÚT ER komin ljóðabókin Döggskál í höndum eftir Bald- ur Oskarsson. Bókin er 56 blaðsíður að stærð og útgef- andi er Ljóðhús. Um höfundinn segir svo á bók- arkápu: „Baldur Óskarsson gaf út fyrstu ljóðabók sína fyrir rúm- um tuttugu árum og mun þeirri bók hvorki hafa verið betur né ver tekið en venjan er um frumsmíðar. Síðan hafa komið út eftir Baldur allmargar ljóðabæk- ur, og er hann meðal athyglisverð- ustu ljóðskálda þessara ára. Ljóðstíll hans og tónn er sérkenni- legur, en myndmálið er þó sú eigind ljóða hans sem gerir þau að alveg persónulegu framlagi til ljóðabókmennta þessara ára.“ byggðarmynstrinu og Bjöm Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri á Stöðv- arfirði fjallar um þátt sveitarstjóma og landshlutasamtaka í byggðar- þróun. Auk þess flytur Þórhallur Pálsson arkitekt á Egilsstöðum erindið: Byggðastefna eða nýlendustefn?, Hjörtur Þórarinsson framkvæmda- stjóri Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi og Haukur Ágústsson formaður Menningarsamtaka Norð- lendinga fjalla um þátt menningar I byggðafestu og Indriði G. Þorsteins- son rithöfundur talar um byggðar- öskun í bókmenntum í kvöldverðar- boði Byggðastofnunar á föstudagskvöldið. Á laugardaginn hefst dagskrá ráð- stefnunnar klukkan rúmlega 9 með því að Ingi Bjömsson framkvæmda- stjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar §allar um nýjungar í atvinnulífi landsbyggðarinnar. Þá talar Guð- mundur Stefánsson landbúnaðar- hagfræðingur um stijálbýli á krossgötum og Bjöm G. Ólafsson þjóðfélagsfræðingur hjá Byggða- stofnun fjallar um gengi og gjaldeyr- isöflun. Að loknum hádegisverði verða al- mennar umræður um nýja byggða- stefnu. Málshefjendur eru Guðjón Ingvi Stefánsson framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Vestur- landi, Bjami Einarsson aðstoðarfor- stjóri Byggðastofnunar, Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri á fsafirði, Halldór Blöndal alþingismaður og Guðfinnur Sigurvinsson formaður Sambands sveitarfélaga á Suðumesj- um. Ráðstefnan verður öllum opin en fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Skráning fer fram hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og lýkur henni föstudaginn 6. nóvember n.k. Á blaðamannafundi þar sem ráð- stefnan var kynnt sagði Sigurgeir Sigurðsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga að á þessari ráðstefnu yrði ekki sneitt framhjá viðkvæmum málum heldur yrðu þau vakin upp til þess að skapa umræðu- grundvöll. Sagðist hann vonast til að umræður á ráðstefnunni yrðu fjör- ugar. Ef ráðstefnan heppnaðist vel yrði önnur haldin í kjölfarið annars staðar á landinu. Stefán Guðmunds- son tók forstjóri Byggðastofnunar tók undir orð Sigurgeirs og sagðist vonast til að ráðstefnan yrði kveikjan að meiri umræðu um byggðamál. Á fundinum kom fram að þetta er I fyrsta sinn sem Samband íslenskra sveitarfélaga gengst fyrir ráðstefnu sem eingöngu flallar um byggðamál. SAMTÖK um jafnrétti og félags- hyggju munu um næstu mánaða- mót halda kjördæmisfund í Norðurlandskjördæmi eystra. Á fundinn verður boðið fólki úr öðrum kjördæmum. „Það hafa ýmsir aðilar úr öllum kjördæmum talað við mig og virðist vera áhugi fyrir okkar málflutr.- ingi,“ sagði Stefán Valgeirsson, þingmaður samtakanna, í samtali við Morgunblaðið. „Það hefur verið rætt á fundum fyrir norðan hvort ekki væri rétt að efna til funda á landsvísu og gefa mönnum kost á að koma saman og ráða úr því hvemig við getum náð rétti lands- byggðarinnar og um ieið láglauna- fólksins í landinu. Um helgina hefur sú hugmynd verið rædd að halda kjördæmisfund um næstu mánaða- mót og bjóða þangað því fólki sem vill kynna sér stefnu okkar og úr- ræði. Ég hef orðið var við að það er gífurleg óánægja með ríkisstjómina og áhugi á að hrinda þeirri hug- mynd að setja söluskatt á búvörar og einnig að sjá til þess að þeir sem era á lægstu laununum fái mann- sæmandi laun til lífsviðurværis. Menn era að átta sig á því að það sem er að era lágu launin og að störf framleiðslustéttanna era van- metin.“ Ekki hefur enn verið ákveðið hvar fundurinn verður haldinn en framkvæmdanefnd samtakanna mun halda fund um næstu helgi þar sem það verður ákveðið. Akraneskaupstaður: Selur eignarhlut sinn í fyrirtækjum á Akranesi Akranesi. BÆJARSTJÓRN Akraness hefur samþykkt að selja eignarhlut sinn í nokkrum fyrirtækjum á Akra- nesi og meðal þeirra er útgerðar- fyrirtækið Krossvík hf., sem á og rekiu- skuttogarana Krossvik AK og Höfðavík AK. Akranes- kaupstaður átti 25% hlut i fyrir- tækinu og var söluverðið um 12,5 miiyónir króna. Það vora útgerðarfyrirtækin Haf- öm hf., HB og Co. hf. og Heimaskagi hf. sem keyptu þennan eignarhlut en þessi fyrirtæki áttu ásamt Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness langstærstan hlut í fyrirtækinu. Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan tók ekki þátt I kaupum á þessum eignar- hlut. Það er stefna bæjaryfírvalda að losa sig sem mest út úr eignaraðild í fyrirtækjum og í byijun þessa árs fór fram sala á hlut bæjarins í Nóta- stöðinni hf. Þá hefur bæjarstjóm samþykkt tilboð sem starfsmenn Verkfræði- og teiknistofunnar sf. gerðu í eignarhlut bæjarins í fyrir- tækinu sem er 70%. Gengið verður frá kaupunum á næstu dögum og er söluverðið röskar fimm milljónir króna staðgreitt. Akrar.eskaupstaður hyggst með sölu á eignarhlutum færa fjármuni úr rótgrónum fyrirtækjum til ann- arra í gegnum nýstofnaðan atvinnu- þróunarsjóð Akraness. Ekki liggur fyrir sala á eignarhlutum bæjarins í öðram fyrirtækjum að sinni. - JG Dögun hf. vill reisa mótel við Skúlagötu BYGGINGAFÉLAGIÐ Dögun hf. hefur óskað eftir því við Reykjavíkurborg að fá keypta Völundarlóðina við Skúlagötu. Þar hyggst félagið reisa 130 til 160 ibúða mótel með svipuðu sniði og tiðkast viða erlendis. Verið er að kynna borgaryfir- völdum hugmyndina. í frétt frá Dögun hf. segir að hugmyndin sé að stofna sérstakt rekstrarfélag um íbúðimar sem verða tveggja til þriggja herbergja með eldunaraðstöðu. Einstakling- um og fyrirtækjum verður gefinn kostur á að kaupa íbúðimar fullbún- ar, en rekstrarfélaginu er ætlað að sjá um rekstur og viðhald milli þess sem eigendur nota íbúðimar sjálfir. íbúðimar gætu komið námsmönn- um utan af landi að góðum notum auk annarra sem þurfa að gista Reykjavík langdvölum að vetri. Þá segir enn fremur að hér geti verið um arðbæra og áhættulitla fjárfestingu að ræða þar sem íbúð- imar verða þinglýst eign hvers um sig. Morgunblaðið/Gréta Friðriksdóttir Skemma hefur verið byggð við söltunarstöðina hjá AustursQd. Reyðarfjörður: Austursíld byggir Þijár bækur frá Æskunni BÓKAÚTGÁFA Æskunnar gef- ur út þijár bækur fyrir jólin, unglingabók eftir Eðvarð Ingólfs- son sem nefnist „Pottþéttur vinur“ barnabókina „Ásta litla lip- urtá“ eftir Stefán Júlíusson, sem er endurútgefin, og bókina „Leð- uijakkar og spariskór" eftir Hrafnhildi Valbjörnsdóttur, en hún vann fyrstu verðlaun i hand- ritasamkeppni um unglingabók sem Stórstúka íslands hélt í til- efni 100 ára afmælis sína á síðasta ári. Að sögn Karls Helgasonar hjá Æskunni er nýja bókin níunda bók Eðvarðs, en bók hans „Sextán ára í sambúð" var söluhæsta bókin á íslenskum bókamarkaði fyrir jólin 1985. „Pottþéttur vinur“ fjallar að sögn Karls um unglinga sem era að ljúka 9. bekk, og samskipti þeirra við flölskyldur sínar og hitt kynið. Aðalpersónar bókarinnar er Pétur, fatlaður strákur sem er einangraður og með minnimáttarkennd vegna fötlunar sinnar. Hann kynnist tveim- ur skólasystrum sínum sem eiga þátt í því að losa hann úr þessari einangran, og verður hrifínn af ann- arri þeirra. Reyðarfirði. AUSTURSÍLD stækkaði við sig í haust og lét byggja skemmu við söltunarstöðina. Húsið er frá Aldek í Danmörku. Það er byggt úr léttbyggðri stálgrind, sem er skrúfuð saman og síðan strengdur á grindina plast- o INNLENT dúkur, sem er bæði eldþolinn og níðsterkur. Húsið er reist á malbikuðu plani og fest niður með jarðteinum sem reknir eru í gegnum malbikið. Gólfflötur hússins er 360 m2 og vegghæð 4 metrar. Mjög fljótlegt var að reisa húsið, tók aðeins 4 daga fyrir 3—4 menn. Þetta hús er ætlað sem lager- hús undir léttverkaða saltsíld og má með góðu móti lagera 5 þús- und tunnur í því. Þetta gjörbreytir allri vinnuaðstöðu hjá fyrirtækinu, þegar hægt er að lagera alla síld inni, í stað þess að vera að vinna við pæklun og hirðingu úti í mis- jöfnum veðram. — Gréta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.