Morgunblaðið - 04.11.1987, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
60
Minning:
Albertína F. Elías-
dóttir - ísafirði
Fædd 10. desember 1906
Dáin 28. október 1987
Hvað er hel?
öllum líkn, sem lifa vel,
engill, sem til lífsins leiðir,
ljósmóðir, sem hvflu breiðir.
Sólarbros, er birta él,
heitir hel.
(Matthías Jochumsson)
A kveðjustundinni viljum við
þakka fyrir öll okkar kynni, sem
voru mjög á aðra lund en spaugsög-
umar alkunnu um erfið samskipti
tengdamæðra og tengdadætra. Frá
upphafi einkenndust þessi kynni af
þeirri gleði og þeim kærleik sem
ávallt fylgdu tengdamóður okkar.
Af gjafmildi sinni gaf hún öllum
þeim sem hún kynntist hlutdeild í
þessum eiginleikum sínum. Með
lífsviðhorfi sínu kenndi hún okkur
þau dýrmætu sannindi, að gleðin
er gullinu betri og gimsteinum feg-
urri.
Fátt er ungmennum hollara í
umróti æskuáranna en að eiga gott
samband við eldri ættliði, sem af
umburðarlyndi lífsreynslunnar gefa
sér tíma til að hlusta og skilja.
Bömin okkar vom svo lánsöm að
eiga ömmu á Grænagarði, sem allt-
af tók þeim fagnandi, hvenær sem
þeim datt í hug að fara inneftir.
Og það voru ekki fáar ferðimar
þeirra inn að Grænagarði til afa
og ömmu, til ömmu sem hafði svo
einstakt lag á því að létta lundina
þegar eitthvað bjátaði á.
Þær voru ómetanlegar bömunum
okkar, ferðimar með ömmu og afa
á Sigurvoninni til Hesteyrar. Það
vom ævintýraferðir sem þau munu
minnast alla tíð. Þá lærðu þau að
t
Eiginmaður minn,
ODDURÞÓRÐARSON
frá Eilífsdal,
Álfheimum 46,
lést í Borgarspítalanum aðfaranótt þriðjudagsins 3. nóvember.
Fyrir hönd vandamanna
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir.
t
GUÐBJÖRG LIUA ÁRNADÓTTIR,
Bólstaðarhlið 45,
Réykjavík,
lést í Landspítalanum 2. nóvember.
Jóhannes Björnsson,
Ingólfur Jóhannesson, Þórunn Benný Finnbogadóttir.
t
Eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÓLÖF LYDÍA BRIDDE,
Kjalarlandi 9,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 5. nóvember kl. 13.30.
Ólafur Ólafsson,
Þórdfs G. Bridde,
Ólafur Alexander Ólafsson, Ellen María Frederiksen,
Andrés Ellert Ólafsson, Anna Margrét Halldórsdóttir.
Þórdfs Ólafsdóttlr,
Gyða Ólafsdóttir,
Díana Ósk Ólafsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓRUNN S. JÓNSDÓTTIR,
Hagamel 27,
sem lést laugardaginn 24. október, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni föstudaginn 6. nóv. kl. 13.30.
Gunnar Ægir Sverrisson,
Anna Th. Rögnvaldsdóttir,
Ólafur Rögnvaldsson,
Victor Gunnarsson,
Ólafur Björn Gunnarsson,
Úlfur Karlsson,
Óla Kjartansdóttir,
Selma Rut Gunnarsdóttir,
Ingunn Helga Gunnarsdóttir,
Arnar Steinn Ólafsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
CLARA GUÐRÚN ISEBARN,
Gnoðarvogi 40
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju miðvikudaginn 5. nóvember
kl. 13.30.
Elfn Halldórsdóttir, Skaftl Björnsson,
Margrét Halldórsdóttir, Pótur V. Maack,
Björn H. Halldórsson, Ólöf B. Ásgeirsdóttir
og barnabörn.
BrynjarK. Gunn-
laugsson—Minning
höggva í eldinn og kveikja upp í
ofninum, vitja um silunganetið og
fylgjast með bátnum á legunni. Þar
fengu þau að kynnast náttúrunni,
ótrufluð af skarkala nútímans.
Það var bömunum okkar ávallt
tilhlökkunarefni að heimsækja
ömmu sína. Þá voru gjaman dregin
fram spil, og þeir vom ófáir ólsen-
amir og mannamir sem voru
spilaðir við eldhúsborðið á Græna-
garði. Eða þá að lagið var tekið,
eða sagðar sögur, oft frásagnir úr
raunveruleikanum, sem amma
gæddi lífí og lit. Það voru sögur
um líf og leiki fyrri ára, sem tengja
æskuna við liðinn tíma og flytja
þannig íslenska menningu frá einni
kynslóð til annarrar.
Fyrir allt þetta, og fyrir alla þá
hlýju og umhyggju sem tengdamóð-
ir okkar umvafði okkur, viljum við
þakka með þessum fátæklegu orð-
um. Æviferill hennar er fögur
lífssaga tryggðar, kærleika og
gleði. Við vomm svo lánsamar að
eignast hlutdeild í þeirri sögu.
Albertína Elíasdóttir, tengda-
móðir okkar, verður lögð til hinstu
hvíldar við fjörðinn sinn, þar sem
fjöllin speglast í lognsléttum pollin-
um. Við biðjum þess að hún megi
hvfla þar í Guðs friði.
Lena og Sigga
Fæddur 28. september 1965
Dáinn 27. október 1987
Dáinn, horfínn! - Harmafregn!
Hvflíkt orð mig yfir dynur.
En ég veit að látinn lifir;
Það er huggun harmi gegn.
(J. Hall.)
Á sunnudegi berst sú fregn að
Brynjar frændi liggi þungt haldinn
á sjúkrahúsi eftir eldsvoða. Nokkrir
dagar líða í angist og kvíða, en
honum varð ekki bjargað.
Eins og svo oft áður emm við
minnt á að vegir Guðs em órann-
sakanlegir.
Brynjar var fæddur 28. septem-
ber 1965. Hann var yngstur bama
hjónanna Þorbjargar Einarsdóttur,
systur okkar, og Gunnlaugs Gunn-
arssonar. Hann átti þijú systkini,
Gunnar Karl, Einar Má og Bimu.
22 ár er ekki löng ævi. Erfítt er
að sætta sig við að svo ungur mað-
ur sé hrifínn brott í blóma lífsins.
Minningar um Brynjar em marg-
ar og góðar. Við munum eftir litlum
ljóshærðum dreng með fagurblá
augu. Sólargeisli allra í fjölskyld-
unni. Drengurinn óx og varð
myndarlegur ungur maður. Það var
gaman að fylgjast með honum við
leik og störf. Hann hafði sínar
ákveðnu, sjálfstæðu skoðanir, var
alltaf hress, glaðlyndur og átti auð-
velt með að koma fólki í gott skap.
Brynjar var góður sonur, bróðir
og mikill félagi foreldra sinna og
systkina.
Eftir að skólanámi lauk starfaði
Brynjar við fyrirtæki föður síns og
reyndist einstakur og alls trausts
verður.
Elsku Dodda, Gulli, Gunni, Einsi,
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNA Þ. GUNNLAUGSDÓTTIR,
Hæðargarði 32,
áður búsett íVestmannaeyjum,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. nóvember
kl. 15.00.
Guðjón Gislason,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Sonur minn og bróðir okkar,
BARÐI GUÐMUNDSSON,
sem lést af slysförum 23. október sl. verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju í dag, miðvikudaginn 4. nóvember, kl. 13.30.
Elín Guðjónsdóttir og börn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
ÁRNA GUÐMUNDSSONAR
frá Kambi f Holtum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir frábæra umönnun.
Guðrún Árnadóttir, Alfreð Guðmundsson,
Guðfinna Árnadóttir, Atli Örn Jensen,
Guðmundur Árnason, Elín Sæbjörnsdóttir,
Ágústa Birna Árnadóttir, Þorsteinn Eggertsson,
Adda Gerður Árnadóttir, Börkur Thoroddsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SIGRÍÐAR G. SIGURÐARDÓTTUR
frá Hólabaki,
Hraunbæ 98.
Baldur Magnússon,
Magnhildur Baldursdóttir,
Ingibjörg Baldursdóttir, Hörður Hafsteinsson,
Kristjana Baldursdóttir, Kristinn Karlsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Biddý og Erla, við vottum ykkur
öllum okkar dýpstu samúð. Megi
góður Guð veita ykkur styrk í þess-
ari miklu sorg.
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá
aftur huga þinn, og þú munt sjá að þú
grætur vegna þess, sem var gleði þín.“
(Kahlil Gibran.)
Blessuð sé minning Brynjars
Gunnlaugssonar.
Hafdís og fjölskylda,
Ingvar og fjölskylda.
Símhringing á sunnudags-
morgni. Binni bróðir hafði lent í
eldsvoða og er á gjörgæsludeild
Borgarspítala í lífshættu. Það var
eins og allur máttur hyrfí og gífur-
legur dofí kom. Næstu dagar voru
martröð sem ekki var hægt að
vakna úr. Eftir tíu daga var litli
bróðir dáinn, aðeins 22 ára gamall
með allt lífíð framundan.
Hann sem oftast var glaður og
hlæjandi með sínar ákveðnu skoð-
anir. Hann sem var alltaf svo
hjálpsamur. Ekki þurfti nema eitt
símtal þá var hann kominn til að-
stoðar, t.d. hengja upp gardínur,
tengja hitt og þetta eða bara passa
Dagný litlu meðan skroppið var í
bíó. Það voru ófá skiptin sem við
sátum saman að tala um lífíð og
tilveruna, ræða framtíðarplön eða
bara nýjustu kjaftasögumar.
Við náðum vel saman þrátt fyrir
fímm ára aldursmun og þó sérstak-
lega á síðustu árum. Það var svo
margt sem hann ætlaði að gera.
Næsta sumar átti að keyra um
Bandaríkin og skoða sig um.
Ekki er langt síðan við vorum
að tala um jólagjafír og þá langaði
okkur í sama hlutinn, kínverskan
steikingarpott. Svo við ákváðum að
gefa hann hvort öðru, því honum
þótti svo gaman að elda.
Elsku mamma, pabbi, Erla,
Gunni, Einsi og þið öll hin. í hjarta
okkar er nístandi sársauki. En við
eigum góðar minningar, minningar
sem við aldrei gleymum.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
(Vald. Briem.)
Biddý
Blóma-og
skreytingaþjónusta
hvert sem tilefnið er.
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBÆ,
Álfheimum 74. sími 84200